Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2004, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004
Sport DV
McBride á leið
til Fulham
Allt bendir til þess að
Fulham muni fá bandaríska
framherjann Mark McBride
til þess að leysa Frakkann
Luis Saha af hólmi en hann
er á leiðinni til Manchester
United eins og fram kemur
annars staðar á síðunni.
Blackburn hefur lengi reynt
að fá McBride en það lítur
út fyrir að Chris Coleman,
knattspyrnustjóri Fulham,
hafi haft vinninginn og
boðið McBride betri laun
heldur en kollegi hans,
Graeme Souness. McBride,
sem hefur leikið með
Columbus Crew í band-
arísku atvinnumanna-
deildinni, hefur áður spilað
í ensku úrvalsdeildinni en
hann lék með Everton við
góðan orðstír.
Spánn vann
Sviss tvívegis
Spánverjar unnu
Svisslendinga tvívegis í
vináttulandsleikjum í
handknattleik um helgina
en liðin mættust í Sviss.
Spánverjar unnu fyrri
leikinn, 28-25, og þann
síðari, 30-25. Cesar Ardiles,
þjálfari Spánverja, sagði
eftir leikina að þeir hefðu
ekki verið erfiðir en að liðið
væri ekki komið í sitt besta
form ennþá. Arno Ehret,
þjálfari Svisslendinga, sagði
að markmið hans liðs væri
að komast í miliiriðil á EM
en að liðið þyrfti að hafa
mikið fyrir því að ná því
markmiði.
Rodman með
14fráköst
Vandræðagemlingurinn
Dennis Rodman spilaði
sinn fyrsta leik með Long
Beach Jam í ABA-deildinni í
körfuknattleik í fyrrinótt og
ekki er hægt að segja að
frammistaða hans hafi
komið neinum á óvart.
Rodman tók 14 fráköst í
leiknum en tók ekki eitt
einasta skot á körfuna í
öruggum sigri Long Beach
á Fresno, 130-110. Hann
tapaði fjórum boltum og
fékk fjórar villur í leiknum.
Fulham hefur samþykkt tilboð meistara Manchester United í franska sóknar-
manninn Luis Saha.
Ensku úrvalsdeildarfélögin Fulham og Manchester United náðu loksins
samkomulagi í gær um kaup ensku meistaranna á franska
sóknarmanninum Luis Saha. Þessi frábæri Frakki hefur verið undir
smásjánni hjá Alex Ferguson í nokkurn tíma en Fulham hefur ekki verið
tilbúið til að selja hann þar til í gær þegar Manchester United bauð 10,5
milljónir punda í kappann.
og borga uppsett verð fyrir Saha.
Manchester United gaf út
yfirlýsingu í gær þar sem kom fram
að félagið hefði náð samkomulagi
við Fulham í öllum grundvallar-
Saha hefur sjálfur lýst yfir áhuga
sínum á að ganga til liðs við
Manchester United og reiddist
forráðamönnum Fulham þegar þeir
neituðu að selja hann. Saha var því
meira en lítið glaður í gær þegar
hann fékk fréttirnar að kaupin
hefðu gengið í gegn.
„Ég er svo hamingjusamur. Ég
hélt að þetta myndi ekki ganga eftir
en ég er yfir mig ánægður með að
félögin hafa komist að samkomu-
lagi. Ég er hamingjusamasti maður í
Englandi núna," sagði Saha.
Mitt eina tækifæri
„Old Trafford er happavöllur
fyrir mig. Ég lék minn fyrsta leik í
ensku úrvalsdeildinni þar og
skoraði tvö mörk. Mér leið
afskaplega vel hjá Fulham en ég get
ekki beðið eftir því að takast á við
þá áskorun að sanna mig hjá
stærsta félagsliði heims. Ég vil spila
í meistaradeildinni og vinna
meistaratitla og því var Manchester
United alltaf fyrsti kostur fyrir mig.
FERILL LUISSAHA
1978 - fæddur 8. ágúst í París.
1991 - fékk inngöngu í hirin
víðfræga Clairefontaine-
knattspyrnuskóla fyrir efnilegustu
knattspyrnumenn Frakklands.
Júní 2000 - gekk til liðs við Fulham
frá Metz fyrir 2,1 milljónir punda.
2000- 2001 - skoraði 32 mörk fyrir
Fulham í 1. deildinni á sínu fyrsta
tímabili.
19. ágúst 2001 - skoraði tvö
glæsileg mörk gegn Manchester
United í sínum fyrsta leik í
úrvalsdeildinni.
2001- 2002 -skoraði aðeins níu
mörk á tímabilinu þrátt fyrir góða
byrjun.
2002- 2003 - vonbrigðatímabil þar
sem Saha skoraði aðeins sjö mörk.
19. janúar 2004 - seldur til
Manchester United fyrir 10,5
milljónir punda eftir að hafa skorað
14 mörk það sem af er tfmabilinu.
Ég er búinn að bíða eftir þessu í
rúman mánuð og ég vissi að ég fengi
ekki annað tækifæri til að komast að
hjá félaginu því að félagið hefði
getað verið búið að kaupa annan
framherja í júní,“ sagði Saha.
Hann sagðist jafnframt ekki hafa
áhyggjur af því að þurfa að berjast
fyrir sæti sínu í liðinu.
„Það er gífurleg samkeppni hjá
öllum stórum Iiðum og ég veit það.
Ég ætla mér hins vegar að spila eins
marga leiki og ég mögulega get og ég
hlakka til þess,“ sagði Saha.
Nauðbeygðir
Manchester United
hefur gengið afskaplega
illa að skora að
undanförnu og eftir
tvo markalausa
leiki í röð, gegn
Newcastle og
Wolves, þá ákvað
Ferguson að
taka upp veskið
atriðum um kaupin á Saha og að-
eins ætti eftir að ganga frá nokkrum
smáatriðum. Það er fastlega búist
við því að allt verði klöppuð og klár
í lok þessarar viku og svo gæti farið
að Saha verði í leikmannahópi
Manchester United þegar liðið
mætir Southampton á heimavelli
um næstu helgi.
Það er ekki algengt að Man-
chester United eyði svona miklu
púðri í að fá til sín leikmann sem á
ekki einu sinni fast sæti í landsliði
sínu. Saha, sem er 25 ára gamall, er
reyndar ekki að keppa við neina
aukvissa þar en þetta sýnir trúna
sem Ferguson hefur á honum.
oskar@dv.is
::
„Ég er svo hamingju-
samur. Ég hélt að
þetta myndi ekki
ganga eftir en ég er
yfir mig ánægður með
að félögin hafa kom-
ist að samkomulagi.
Ég er hamingjusam-
asti maður í Englandi
núna."
Sæll og glaður Luis
Saha er afskaplega
hamingjusamur með að
vera orðinn leikmaður
Manchester United.
Reuters
Ferdinand áfrýjar Rio Ferdinand sendi igær enska knattspyrnusambandinu greinagerð þar
sem hann áfrýjar átta mánaöa banninu sem hann var dæmdur i fyrir jói. Reuters
Lyfjamálið heldur áfram í Englandi
Ferdinand áfrýjar
Enska knattspyrnusambandið
staðfesti í gær að það hefði fengið
áfrýjun frá Rio Ferdinand,
varnarmanni Manchester United og
enska landsliðsins, gegn átta
mánaða banninu sem sambandið
dæmdi hann í fyrir jól eftir að
Ferdinand gleymdi að mæta í
lyfjapróf í lok september á síðasta
ári.
Sambandið fékk 120 blaðsíðna
greinagerð þar sem áfrýjun
leikmannsins kemur fram en hann
mun byrja að taka út bannið í dag.
Það gerir hann til þess að eiga
möguleika á því að spila með enska
landsliðinu í Evrópukeppninni í
Portúgal f sumar ef bannið verður
stytt þegar það verður tekið fyrir.
Enska knattspyrnusambandið
hefur ekki enn ákveðið hvenær
áfrýjunin verður tekin fyrir en
staðfesti að Rio Ferdinand myndi
byrja að taka út bannið í dag, 20.
janúar, þar sem ekki hefði komið
fram beiðni um annað. >
Ferdinand var valinn af
handahófi til að taka lyfjapróf á
æfingasvæði Manchester United 23.
september síðastliðinn, gleymdi að
mæta í það en stóðst prófið 36
klukkustundum síðar.
Miklar deilur hafa verið að
undanförnu hvort bannið sem hann
fékk hafi verið of langt eða ekki.
Sepp Blatter, forseti FIFA, hefur lítið
gefið út um lengd dómsins en hann
hefur gagnrýnt tímann sem það
heufr tekið að koma Ferdinand af
leikvellinum og í bann.