Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2004, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2004, Page 27
DV Fókus ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 27 Nafn Moniku Abendroth hljómar kunnuglega í eyrum flestra enda hafa plötur þessa þýska hörpuleikara og Páls Óskars selst í fleiri þúsundum eintaka. En það vita sjálfsagt fæstir að þessi orkumikla og lífsglaða kona er búin að eiga heima á íslandi i hartnær 30 ár og smitaði foreldra sína svo vel og vandlega af íslandsáhuga að þau létu bæði jarða sig hér á landi. Enn færri vita að Monika hefur farið upp í rúm með Hilmi Snæ. Monika Abendroth Hreifst af íslandi fyrir þrjátiu árum og hefur ekki farið siðan. í dag lit- ur hún hvorki á sig sem Þjóðverja né islending. Flestir þekkja Moniku af samstarfi hennar við Pál Óskar en hún spilar einnig með Sinfoniu- hljómsveitinni, hoppaði upp irúm með Hilmi Snæ i 101 Reykjavik og leið- beinir þýskum túristum um landið á sumrin. Þegar blaðamaður heimsótti Moniku á heimili hennar á Seltjarn- arnesi var útsendingu íslensku tón- listarverðlaunanna rétt nýlokið en þar vann hún til verðlauna sem meðlimur í Sinfóníuhljómsveit ís- lands. „Það er hálf undarlegt að fá tónlistarverðlaun fyrir klassík og gullplötu á einu og sama árinu," seg- ir Monika og hlær en jólaplata henn- ar og Páls Óskars, Ljósin heima, hef- ur selst í yfir 5 þúsundum eintaka. „Sölutölur eru samt bara sölutölur. Það sem skiptir mig mestu máli er að heyra fólk segja að tónlist okkar hafl snortið það á einhvern hátt. Einhver fór með diskinn okkar á fæðingardeildina, annar huggaði sig við tónlistina eftir lát ástvinar og enn annar hlustaði á diskinn þegar hann var að læra undir próf.“ „Upprunalega þýsk" Þegar Monika er spurð um upp- runa sinn segist hún „upprunalega vera þýsk“ og bætir því við að hún líti eiginléga hvorki á sig sem Þjóð- verja né íslending. „Það er svo und- arlegt að fæðast svona í einu landi og setjast að í öðru. Maður gleymir því hvernig það er að vera þýskur og aðlagast nýja staðnum, að minnsta kostiþeim hlutum sem henta manni vel. Eg er eiginlega hvorki fugl né fiskur. Einhvern tímann sagði vinur minn við mig: „Þú ert bara fljúgandi fiskur" og ég kann nokkuð vel við það,“ segir Monika og hlær. „Það er alls ekki þannig að ég umgangist bara Þjóðverja og sæki sérstaklega í þeirra félagsskap. Ég reyni fyrst og fremst að umgangast skemmtilegt fólk." (slandsbakterían stórhættu- lega Monika flutti til Islands árið 1976 en þá hafði hún þegar komið tvisvar hingað sem ferðamaður. „Ég sigldi hingað með Gullfossi árið 1973 og heillaðist af þeirri stórbrotnu nátt- úru sem hér er. Ég vissi það ekki fyrr en seinna að þarna hafði ég fengið þessa frægu og stórhættulegu ís- landsbakteríu. Arið eftir kom ég aft- ur í heimsókn og þegar ég kom heim settist ég niður, skrifaði Sinfóníu- hljómsveit Islands bréf og óskaði eftir stöðu hörpuleikara.'1 Moniku barst svar skömmu síðar þar sem henni var tjáð að staðan væri upp- tekin. „Ég hélt að þetta væri bara kurteisleg leið til að segja þvert nei en ári síðar fékk ég annað bréf þar sem mér var boðin staðan." Monika tók sér ársleyfi frá stöðu sinni sem hörpuleikari í Rheinische Philharmonie í Koblenz og flutti til íslands ásamt þáverandi sambýlis- manni sínum. „Dvölin hérna reynd- Stærsta hlutverkið til þessavarí 101 Reykjavík þar sem ég lék drukkna konu á barsem endaði heima í rúmi með Hilmi Snæ ist honum erfið enda var hann leik- ari og fékk lítið að gera á meðan ég blómstraði í tónlistinni. Hann gafst þess vegna fljótlega upp og flutti aft- ur til Þýskalands." Monika hins vegar bjó hér í tvö ár, flutti þá aftur til Þýskalands en tók ári síðar ákvörðun um að flytjast hingað fyrir fullt og allt. Foreldrarnir jarðaðir í Foss- vogskirkjugarði Foreldrar Moniku eru látnir en svo undarlega vill til að þau eru bæði jörðuð hér á landi. „Fólk verður mjög hissa þegar það heyrir það og finnst þetta mjög sérstakt fyrir- komulag. Þau létust bæði í Þýska- landi, voru brennd þar en grafin hér. Þau voru bæði mildð hér og fannst gaman. Bróðir minn býr í Sviss, syst- ir mín í Bæjaraskógi en foreldrar mínir bjuggu rétt hjá Múnchen. Fjölskyldan er þess vegna dreifð út um víðan völl. Pabbi stakk upp á því einhvern tímann að þau myndu bara láta jarða sig hér, þetta var eig- inlega svona skyndihugdetta. En eft- ir því sem þau íhuguðu þetta betur komust þau að þeirri niðurstöðu að þetta ætluðu þau að gera," segir Monika og brosir. „Mamma dó fyrst og þegar pabbi kom hérna um jólin fórum við með kerti að leiðinu hjá henni. Honum fannst þetta alveg frábært og sannfærðist um að þau hefðu tekið hárrétta ákvörðun." Harpan eins og stór gítar Fæstir vakna upp einn daginn og ákveða að byrja að læra á hörpu. Þannig var það ekki heldur með Moniku sem byrjaði að læra á gftar þegar hún var 9 ára. „Flest sem hef- ur gerst f lífi mínu hefur verið tilvilj- unum háð þótt ég sé farin að halda að einhver hafi raðað þessu svona saman. Þegar ég var 17 ára bauðst mér að spila á gítar í leiksýningu. Ég var með mikla leikhúsdellu en ég fékk ekki frí í skólanum til þess að mæta á æfingar. í þýskum skólum fær maður ekki frí fýrir svona vit- leysu! Mamma og pabbi ákváðu hins vegar að ég skyldi fá að spila í þess- ari sýningu og skrifuðu skólanum bréf þar sem stóð að ég væri veik. Svo vildi þannig til að í sýningunni var líka hörpuleikari. Eg fór að spjalla við hann og ákvað að skipta úr gítarnum yfir í hörpuna. Ef for- eldrar mínir hefðu ekki skrifað bréf- ið þá væri ég ekki hörpuleikari í dag," segir Monika og vill ekki kann- ast við að sakna gítarsins. „Nei, nei, blessuð vertu. Harpan er bara eins og stór gítar." Monika ákvað síðar að hefja há- skólanám í hörpuleik. „Mamma vildi alltaf að ég lærði eitthvað „al- mennilegt" og stakk upp á því að ég yrði íþróttakennari. En pabbi sann- færði hana um að sumir gætu haft atvinnu af tónlist, það þyrftu ekki allir að spila á torgum," segir Mon- ika og skellir upp úr. í rúminu með Hilmi Snæ Páll Óskar og Monika hafa komið fram víða á undanförnum tveimur árum og hafa spilað á tónleikum um allt land, í brúðkaupum, jarðarförum og um borð í skemmtiferðaskipum svo eitthvað sé nefnt auk þess sem mikill tími fer í æfingar fyrir sinfóníu- hljómsveitina. Monika segist samt reyna að finna sér tíma fyrir sitt aðal- áhugamál, leiklistina. „Gamli draum- urinn var alltaf að verða leikkona. Ég er í Leiklistarfélagi Seltjarnarness og hef leikið í tveimur leikritum og nokkrum kvikmyndum. Stærsta hlut- verkið til þessa var í 101 Reykjavík þar sem ég lék drukkna konu á bar sem endaði heima í rúmi með Hilmi Snæ," segir Monika og hlær þegar hún sér svipinn á blaðamanni. „Upp- haflega þegar mér var boðið hlut- verkið hugsaði ég með mér: „Ég er hörpuleikari f Sinfóníuhljómsveit Is- lands, ég get ekki gert þetta!" En mig langaði svo mikið að spreyta mig á þessu, sjá hvort ég myndi þora og sló þess vegna til.“ Moniku hefur líka brugðið fyrir í myndunum Ikingut, Monster og Split en hennar nýjasta verkefni var leikur í Kaldaljósi. „Þar lék ég skurðlækni í einni senunni. Þegar ég mætti á frumsýninguna rakst ég á Hilmar Oddsson sem sagði við mig.',,Æi, ég hefði átt að hringja í þig. Senan sem þú lékst í var klippt út,“ segir Monika og er augljóslega skemmt. Tónleikar í París í næstu viku Þegar Monika á frí í bæði hörpuleik og leiklist reynir hún að ferðast um heiminn með einkadóttur sinni, Önnu Gyðu, sem er 21 árs. „Ég er ferðafrík. Mér finnst æði að fara til framandi landa og Anna Gyða er frábær ferðafé- lagi. Við erum búnar að fara saman til Taílands, Egyptalands, Gambíu og Dóminíkanska lýðveldisins en þar á ég SOS fósturbarn sem við heimsóttum. Það var ótrúleg upplifun." Næsta ferðalag sem Monika fer í er ævintýraferð að vissu leyti þótt ekki sé hún til framandi lands. „Ég er að fara til Parísar til að spila á útgáfutónleik- um á disknum Lady & Bird með Barða í Bang gang. Ég veit ekkert hvernig þetta verður en við Barði erum búin að hittast einu sinni, ég þekki lögin og veit hvað ég á að gera," segir Monika og brosir en uppselt er á tónleikana. Hafa selt yfir 8 þúsund eintök Páll Óskar og Monika héldu sína fyrstu tónleika í Grasagarðinum fyr- ir tæpum þremur árum og samstarf- ið vakti strax rnikla athygli. „Ég man að Fréttablaðið hringdi og spurði: „Hvað eruð þið eiginlega að gera saman?!" Fjórum dögum eftir þessa tónleika tókum við svo ákvörðun um að gera disk. Það rná segja að í þessu samstarfi okkar hafi Palli farið lengra yfir í klassík áður en hann kíkti yfir í minn heim og ég í hans. Við erum samt mjög ólík og vinnu- brögðin líka. Palli er ofboðslega músíkalskur. Hann þarf bara að hlusta tvisvar á lag og þá kann hann það. Ég þarf að hafa mínar nótur og æfa og æfa.“ Þótt þær tvær plötur sem dúóið hefur sent frá sér hafi hvarvetna hlotið einróma lof og selst í samtals meira en 8 þúsund eintökum segist Monika ekki reikna með að þriðja platan líti dagsins ljós. „Það er alls ekki auðvelt að gera „follow up“ disk svo vel sé og við Palli biðum með það í 2 ár. Þá hafði hann fengið þá hugmynd að gera jóladisk og mér leist vel á það. Okkar tónlist lientar einmitt anda jólanna svo vel." Sextugsafmæli á Snæfellsjökli Monika verður sextug í júní næstkomandi en hún segist ekki vera farin að hugsa mikið um það. „Þegar ég varð fimmtug hélt ég stóra veislu. Ég hugsa að ég geri það ekki aftur. En ég hef mjög gaman af tíma- mótum og fékk reyndar þá hug- mynd að bjóða vinunum upp á Snæ- fellsjökul, halda bara almennilega veislu þar." Monika er alls ekki ókunnug jökl- inum því þá tvo mánuði sem Sinfón- íuhljómsveit Islands liggur í dvala á sumrin, nýtir hún tækifærið og vinn- ur sem leiðsögumaður urn ísland. „Ég sýni mínum gömlu löndum landið sem ég hreifst svo mikið af fyrir 30 árum síðan," segir Monika og bætir við hlæjandi. „Eins og þú heyrir að þá er ég alls ekki bara hörpuleikari í Sinfó!"

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.