Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2004, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2004, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 2004 Fókus DV Eitt afmörgum minnisstæðum dæmum um rómaða þverúð okkar íslendinga og hæfileika til að þrasa um hé- góma aflífi og sál eru alþingiskosningarnar haustið 1908, hinar fyrstu eftir að landsmenn fengu heimastjórn. Hundrað ára afmælis hennar er minnst með viðhöfn um þessar mundir en fyrstu ár hennar einkenndust hvorki afeindrægni né sáttahug leiðandi afla hins nýja samfélags. Þvert á móti lögðu menn lykkju á leið sína til að ná höggi á andstæðingana. Svo skemmtilega og óvenjulega vill til að varðveist hefur í húsi einu í Reykjavík áþreifanleg minning þessarar þverúðar. Huröin í Safnahúsinu Ráðamenn landsins með Hannes Hafstein ráðherra í broddi fylkingar höfðu þetta vor, 1908, náð sam- komulagi við Dani um að festa heimastjómarskipulagið í sessi og efla hina innlendu stjórn með nýjum lögum um stöðu íslands í danska rík- inu. Gekk það undir nafninu „Upp- kastið" enda átti það eftir að fá stað- festingu Alþingis sem var rofið og efnt til kosninga svo að þjóðin fengi að leggja blessun sína yfir áformin. Hnigu sterk rök að því að Uppkastið væri skynsamleg málamiðlun og virt- ist í fyrstu sem um það ætlaði áð takast samstaða þvert á ílokkslínur. Þetta féll gömlum þrætuseggjum á þingi, með Skúla Thoroddsen og Björn Jónsson ritstjóra ísafoldar í broddi fylkingar, ekki í geð. Þótt Dan- ir hefðu aldrei boðið betur og mundu lfldega aldrei bjóða betur fannst þeim ekki koma til greina að samþykkja Uppkastið. Það yrði að sauma betur að kónginum í Kaupmannahöfn og ráðgjöfum hans. Sumarið 1908 gerðu þeir félagar og fleiri þingmenn með þvergirðingshætti og smá- munaþrefi einstæða uppreisn gegn heilbrigðri skynsemi í stjórnmálum. Og tókst að fá kjósendur um land allt á sitt band. í kosningum 10. septem- ber 1908 hrundi heimastjómarmeiri- hlutinn á Alþingi; náðu 24 frambjóð- endur, sem vom á móti Uppkastinu, kjöri en aðeins 10 úr hópi stuðnings- manna þess. Blasti þá við að fyrsti ís- lenski ráðherrann, Hannes Hafstein, hlyti að víkja úr embætti þegar Al- þingi kæmi saman í byrjun næsta árs, en þingstörfum var á þessum tíma hagað með öðrum hætti en nú á dög- um. Gekk þetta’síðan eftir og hinn nýi meirihluti ákvað að styðja Björn Isa- foldarritstjóra til ráðherradóms. Starfsglaður ráðherra Hannesar Hafstein er að makleg- heitum minnst sem mikils fram- kvæmdamanns. Á okkar dögum er sýnilegasti ávöxtur starfsgleði hans sem stjórnmálamanns lfldega gamla Safnahúsið, nú Þjóðmenningarhúsið, við Hverfisgötu, sem reist var á árun- um 1906 til 1908. Hafði Hannes for- göngu um byggingu hússins, aflaði fjár með sölu rfldsjarðar, réð danska húsa- meistarann persónulega og tryggði vafningalausa framkvæmd með því að sjá til þess að þrír áhugasamir þing- ílokksbræður hans mynduðu bygging- arnefndina: Tryggvi Gunnarsson bankastjóri, Guðmundur Björnsson landlæknir og Jón Jacobson lands- bókavörður. Kostnaður við húsbygginguna varð vitaskuld svimandi hár en ekki mátti gleyma því, eins og ráðherrann minnti á þegar hornsteinninn var lagður haustið 1906, að það átti að verða „varðkastali og forðabúr þjóðemistil- finningarinnar." Slflct mannvirki má kosta nokkuð! Skyldi það til frambúð- ar vera samastaður tveggja höfuðsafna landsins, Landsbókasafnsins og Landsskjalsafnsins, en til bráðabirgða fengu þar einnig inni Forngripasafnið og Náttúmgripasafnið. Dyrum læst í þingkosningunum um haustið vom tveir byggingarnefndarmanna í ffamboði á ný, landlæknir og lands- bókavörður; báðir einarðir stuðn- ingsmenn Uppkastsins. Því miður féllu þeir báðir af þingi. Þarf víst ekki að fara í grafgötur um að þeir vom súrir yfir þessum úrslitum. Varla hef- ur það dregið úr gremju landsbóka- varðar að húsnautur hans, Jón Þor- kelsson landsskjalavörður, harð- skeyttur og atkvæðamikill andstæð- ingur Uppkastsins, sem einnig var í framboði, hlaut glæsilega kosningu í Reykjavík Arkitekt safnahússins, Magdahl- Nielsen hinn danski, ætlaðist í upp- hafi til þess að söfnin tvö, sem þar áttu að vera til frambúðar, deildu með sér stóra lestrarsalnum í mið- rýminu, þar sem nú er bókasalur Þjóðmenningarhússins. Kemur þetta glöggt fram á frumteikning- um hans. En þetta varð aldrei og er ekki ósennilegt að pólitískir fáleikar með landsbókaverði og lands- skjalaverði, sem ágerðust haustið 1908, þegar flutt var inn í húsið, hafi átt sinn þátt í því. Um sama leyti og skjöl og bækur voru bornar inn var dyrunum milli lestrarsalar- ins og landsskjalasafnins lokað og læst. Fylgir ekki sögunni hvorum megin lyklinum var snúið. Kannski var það til að tryggja að ekki yrði reynt að hnekkja þessari ráðstöfun að stór skápur, sem geymdi bóka- skrá Landsbókasafnsins, var stuttu seinna settur upp að hurðinni og stóð þar næstu áratugina. Spellvirki? Næstu níutíu árin eða svo voru dyrnar tryggilega lokaðar. Um þær gekk ekki nokkur sála. Og ekki hvarfl- aði að neinum að opna á milli, þótt bókaverðir og skjalaverðir af yngri kynslóðum væru farnir að skrafa saman í bróðerni þegar leið á öldina. Svo gerðist það fyrir tæpum tíu árum, að Landsskjalasafnið, sem þá var orðið að Þjóðskjalasafni, fékk um tíma yfirráð yfir öllu Safnahúsinu en þá var Landsbóksafnið flutt í Þjóðar- bókhlöðuna. Flaug þá arftaka Jóns Þorkelssonar í hug að nýta mætti gamla lestrarsalinn fyrir ættfræðinga og aðra skjalakönnuði enda mikil þrengsli á þeirra gamla heimavelli. Var gömlum og ryðguðum lykli stungið í skrána og næstum aldar- gamall bimrleiki kvaddur án þess að nokkurs staðar heyrðist hósti eða stuna. Og þó, heyrt hef ég að eitthvert uppnám hafi orðið í höfuðstöðvum húsafriðunarnefhdar rfldsins, sendi- nefnd komið til að sannspyrja hvort spellvirki hefðu hugsanlegu verið unnin á friðuðum innréttingum, en þá sögu kann ég ekki frekar. Annað minnismerki Þó að dyr þverúðarinnar hafi ver- ið opnaðar og merkileg söguleg hefð þannig rofin getum við glaðst yfir því að annað minnismerki hennar er varðveitt í upprunalegri mynd í Þjóð- menningarhúsinu. Er það á framhlið hússins þar sem á granítgerða dyraumgjörðina er letrað hástöfum: LANDSBÓKASAFN. Spumingin, sem margir hafa spurt en ekkert svar fengið við, er þessi: Af hverju er bara nafn Lands- bókasafns á umgjörðinni úr því að húsið var einnig ffamtíðarheimili Landsskjalasafnsins? Og viti menn, svolítil athugun á skjölum hins hund- rað ára gamla Stjórnarráðs leiðir í ljós að fyrstur til að spyrja þessarar spurningar var landsskjalavörður sjálfur, Jón Þorkelsson, er honum varð nokkmm dögum fyrir þingkosn- ingarhaustið 1908 gengið upp tröpp- ur hússins. Sá hann þá hvar tveir danskir steinsmiðir vom að höggva nafn bókasafnsins í granítið. Þeir kváðust ekki hafa nein fyrirmæli um frekari steinhögg og væm að fara af landi brott innan tíðar. Undrandi og hneykslaður sendi landsskjalavörður byggingarnefndinni bréf daginn eftir og óskaði eftir því að nafn skjala- safnsins gleymdist ekki áður en verk- Þótt Danir hefðu aldrei boðið betur fannst gömlum þrætu- seggjum á Alþingi ekki koma til greina að samþykkja Uppkastið. Það yrði að sauma betur að kónginum í Kaupmannahöfn. Sumarið 1908gerðu þeir félagar og fleiri þingmenn með þver- girðingshætti og smá- munaþrefí einstæða uppreisn gegn heii- brigðri skynsemi í stjórnmálum. inu lyki. Af einhverri ástæðu sýritíi nefndin erindinu lítinn áhuga en benti honum á að snúa sér til Stjórn- arráðsins, þ.e. til Hannesar ráðherra. Hefur bréf Jóns til hans varðveist með eftirfarandi áritun ráðherrans til embættismanna sinna: „Kjörboe [umsjónarmaður framkvæmdanna] skýrir frá, að ekki sé að neinu leyti hentugra að gera þessa breytingu nú en einhvern tfma síðar, ef endilega eigi að gera hana. En hann efast um, að nokkur maður hér geti hoggið í granítina svo nokkur mynd sé á, enda muni verkfæri til þess vanta.“ Málinu var lokið. Eftir þetta fékkst engu þokað. Auðvitað liggur ekki skjalfest fyrir svo óyggjandi sé að hér hafi heimastjórnarmenn bmgðið fæti fyrir pólitískan andstæðing sinn. Litia mannþekkingu þarf þó til að álykta að stjórnmálahitinn þessa haustdaga kunni að hafa haft lam- andi áhrif á þá miklu framtaksmenn sem erindið fengu: ráðherrann og byggingamefnd hans. Samkvæmi seinkar Safnahúsið var sýnt í fyrsta sinn 26. mars 1909 að viðstöddum 150 málsmetandi gestum. Þá vom aðeins fimm dagar eftir af fyrra ráðherra- skeiði Hannesar Hafstein. Vígslan var því lfklega síðasta embættisverk hans. Kannski við hæfi svo mjög sem hann hafði lagt metnað sinn í að þetta hús risi og yrði vel úr garði gert. En ekki var allt húsið tfl sýnis þennan dag. Aðeins þrír fjórðu hlutar þess: landsbókasafriið, forngripa- safnið og náttúmgripasafnið. Jón Þorkelsson landsskjalavörður gaf sér ekki tíma tU að standa í slflcu stússi þennan dag. Aftur á móti bauð hann gestum í Skjalasafn Islands sex dög- um síðar, 1. apríl 1909, en svo hittist á að daginn áður hafði Hannes Haf- stein kvatt Stjórnarráðið og Klemens Jónsson landritari sest í valdastól tU bráðabirgða meðan Björn Jónsson sigldi hraðbyri heim af konungsfundi með ráðherratign sína. Tilviljun? Guðmundur Magnússon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.