Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1955, Qupperneq 20

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1955, Qupperneq 20
4 TlMARIT VFl 1955 fræðinga, sem skarað höfðu fram úr öðrum við tækni- leg störf. Athöfninni var slitið með því að leika síðara hluta af „kantötu" P. Heins. Um kvöldið var leiksýning fyrir gesti í Konunglega-leikhúsinu. Síðari hátiðisdaginn, sunnudaginn 23. maí, sátu gestir miðdegisverðarboð hjá Dansk Ingeniörforening, en um kvöldið bauð háskólinn til kvöldverðar og skemmtunar í hinum nýju salarkynnum skólans. Að lokum var dansað í forsölum skólans og í skólagarðinum fram á nótt, og með því lauk afmælisfagnaði Danmarks tekniske Höj- skole, sem var skólanum til sóma og gestum hans til ánægju. Næsta dag sátu erlendir gestir boð hjá Engelund rektor, þökkuðu ágæta gestrisni, kvöddust og héldu heimleiðis. Finnbogi R. Þorvaldsson. Sfóriðnaður á islandi með aðstoð erlends fjármagns. Eftir Steingrím Hermannsson. Erindi flutt á fundi í Rafmagnsverkfræðingadeild VFl 24. nóv. 1954. Verkfræðingar. 1 fundarboði því, sem ykkur var sent, er sagt, að ég muni ræða um stóriðnað á íslandi. Erindi mitt mun verða nokkuð þrengra en þar er gefið til kynna. Ég hef hugs- að mér að ræða um þátttöku erlends fjármagns i elektro- kemiskum og elektro-metalurgiskum stóriðnaði hér á landi. Eflaust eru margir hér inni, sem hafa myndað sér ákveðnar skoðanir um þátttöku erlends fjármagns í islenzkum stóriðnaði, og gætu ekki síður rætt þetta mál en ég. í>ó hef ég upp á síðkastið haft allgóð tækifæri til að kynnast þessum málum. Með aukinni kynningu hef ég sannfærzt betur um það, að slíkur stóriðnaður getur átt hér mikla framtíð. Þar sem ekki er ólíklegt, að þátttaka erlends fjármagns í stóriðnaði hér á landi geti innan skamms orðið að stórmáli, þykir mér tími til kominn, að umræður hefjist um mál þetta á opinberum vettvangi, ekki sízt meðal okkar verkfræðinga. Sá er til- gangurinn með þessu erindi mínu. Forsaga. Eins og kunnugt er, var á tímum Einars skálds Bene- diktssonar nokkur gaumur gefinn nýtingu vatnsorku okkar til stóriðnaðar. Árið 1917 birtust í bókarformi at- huganir, sem norska fyrirtækið Titan hafði látið verk- fræðinginn Sætersmoen framkvæma á virkjun Þjórsár, en það fyrirtæki átti þá vatnsréttindi í þeirri á. Athug- anir þessar teljast nú gamlar og úreltar, en þær eru þó að mörgu leyti mjög lærdómsríkar. Erlends áhuga hér á landi hygg ég að síðan hafi ekki að ráði orðið vart fyrr en árið 1942. Þá komu hingað til lands fulltrúar fyrirtækisins The British Aluminium Company. Sá árangur varð af þeirri för, að fyrirtækið lét athuga virkjunarskilyrði í Þjórsá, einkum við Búrfell sumrin 1946—47. Ekki varð þó úr framkvæmdum að sinni. Bar fyrirtækið við dýrtíð hér. Árið 1951 tilkynnti The British Aluminium Company íslenzku ríkisstjórninni, að' það hefði nú áhuga á því að endurskoða aðstæður til aluminiumiðnaðar hér á landi, enda voru þær nú breyttar með gengisfellingu krónunnar. Skömmu seinna fréttist einnig um áhuga nokkurra ann- arra aluminiumframleiðenda að athuga skilyrði hér á landi til slíkrar framleiðslu. Fyrirtækjum þessum var yfirleitt tilkynnt, að ís- lenzka ríkisstjórnin hefði ekkert við það að athuga, að þau sendu hingað heim fulltrúa til að gera sér grein fyrir aðstæðum hér, enda væri það á kostnað fyrirtækj- anna og án nokkurra skuldbindinga af ríkisstjórnarinnar hálfu, Þetta varð til þess, að hingað komu í sumar sendi- menn frá þremur aluminiumframleiðendum. Þeir voru frá Aluminium Industrie de Lausanne í Sviss, The Alu- minium Limited í Kanada og The British Aluminium Company, og dvöldu hér í eina til þrjár vikur. Ég var með þessum mönnum þann tíma, sem þeir voru hér, sem eins konar fylgdarmaður, og var það mér oft til mikils fróðleiks. Einnig hef ég leitazt nokkuð við að kynna mér svip- aðar framkvæmdir í öðrum löndum, einkum Noregi og Kanada, og mun ég koma að þvi síðar. Getum við byggt upp stóriðju án aðstoðar? Því er stundum haldið fram, að við Islendingar getum sjálfir byggt upp stóriðju án aðstoðar. Slíkt er ef til vill hugsanlegt, en ég álít það mjög vafasamt, ef við eigum ekki á sama tíma að hefta okkur í afar hættulega skulda- fjötra, ef lán eru þá fáanleg. Slik þróun mundi verða allt of hægfara, að mínum dómi.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.