Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1955, Blaðsíða 29
TÍMARIT VFl 1955
9
þeim tekjum, sem af fyrirtækinu fást, til að kaupa
hlutabréf. Ekki virðist ólíklegt, að við ættum þannig
að geta eignazt meiri hluta i fyrirtækinu á 25—30
árum.
Niðurlagsorð.
Ég hef ieitazt við að færa rök að þeirri sannfær-
ingu minni, að við Islendingar eigum að hefja upp-
tiyggingu stóriðnaðar með aðstoð erlends fjármagns.
Oft hef ég stiklað á stóru, enda væru ýmis atriði í
þessu sambandi nóg efni í sjálfstæð erindi.
Að lokum vildi ég segja þetta: Vörumst óþarfa
bjartsýni. Enn er óathugað, hvort erlend fyrirtæki telja
skilyrði hér það góð til stóriðju, að þau vilji samvinnu
við okkur um slíkar framkvæmdir. Eins og ég hef
áður sagt, er liklegt að raforka verði hér ekki sérlega
ódýr og vinnuafl er fremur dýrt og kaup allóstöðugt.
Þó má vera, að lega landsins og einhver önnur skilyrði
vegi upp á móti þessu. En við skulum ekki halda, að
aðeins þurfi að rétta út hendina og þá muni fjöldi er-
lendra fyrirtækja koma hlaupandi, og þiggja þau
kjör, sem okkur sýnist. Að finna áhugasamt og gott
fyrirtæki, sem hefir getu og vilja til að ráðast í slikar
framkvæmdir, hygg ég, að geti orðið eitt erfiðasta
skrefið. Þó tel ég líklegt, að það megi takast, ef vel
er á málum haldið.
Vatnsafl íslands, útflutningur
á raforku og stóriðja.
Eftir Jakob Gíslason.
Flutt við umræður um erindi Steingríms Hermannssonar.
Haustið 1953 var þess óskað af ráðherra, að ég tæki
Hl athugunar nokkur atriði varðandi skilyrði til út-
flutnings á raforku frá Islandi og sölu raforku til stór-
^ðjuvera, ef erlendum félögum yrði veitt sérleyfi til
að koma þeim upp hér á landi. Skýrsla mín um þá at-
bugun og greinargerð til ráðherra varð alllöng, en ég
1Tlun i eftirfarandi orðum skýra frá nokkrum helztu
atriðum hennar.
Vatnsafl landsins.
Heðan fossanefndin sat að störfum, gerði Jón Þor-
Hksson á hennar vegum yfirlit yfir vatnsafl á Islandi.
Taldist honum til, að vatnsaflið mundi nema 4 inillj.
bestafla, sem telja má að svari 25.000 millj. kwst. á ári.
Arið 1949 tók Sigurður Thoroddsen, verkfræðingur, sér
íyrir hendur að athuga, í tómstundum sínum, á. hvern
bátt heppiiegast mundi að virkja stórár landsins. Árið
1952 var Sigurður svo fenginn til að flytja erindi um
vatnsafl á Islandi á 6. norræna rafmagnsfræðingamót-
lnu i Reykjavík. I því erindi setur Sigurður fram nýja
a*tlun um vatnsafl á Islandi og telur það muni vera
hálægt o millj. hestafla eða sem svarar 38.000 millj.
kwst. á ári.
1 áætlun Sigurðar Thoroddsens um vatnsaflið er að
^engið út frá því, að fullkomnustu nútíma
verði beitt við beizlun vatnsins og framfarir
t®kni
V - uvuiiun vauioiuo '-'fe iiamiai n
a orðið æði miklar á þessu sviði síðan 1920, er Jón
°Háksson gerði sína áætlun. Hinsvegar er þess að
gfa- að tölur Sigurðar miðast yfirleitt við það, að
a t íramrennsli yfirborðsvatns sé nýtt að fullu, og má
því segja, að tölur hans sýni mestu hugsanlega árlega
vinnslu raforiiii úr vatnsafli liér á landi.
Þegar um er að ræða ráðstöfun á vatnsafli á Islandi
með sérleyfi til stóriðju eða útflutnings raforku fyrir
augum og vér viljum gera oss grein fyrir þvi, hversu
miklum hluta vatnsaflsins vér þurfum að halda eftir
handa íslenzku þjóðinni sjálfri til eigin nota og til að
byggja eigin atvinnurekstur á, getum vér, á þessu stigi
málsins, ekki miðað við þessar háu tölur. Vér verðum
að gera oss grein fyrir því, að umfangsmiklar rann-
sóknir þurfa að fara fram áður en hægt er að fullyrða
með nokkurri vissu, að það reynist tæknilega og fjár-
hagslega kleift að virkja þetta vatnsrennsli allt og
vinna þá orku, sem í tölum Sigurðar er fólgin.
Áætlun Sigurðar um 38.000 millj. kwst. á ári skipt-
ist á ár landsins þannig í stórum dráttum:
kwst/ári kwst/ári
I. Þjórsá og þverár hennar . . 13.000 millj.
Jökulsá á Fjöllum ........ 6.000 —
Jökulsá á Brú ............ 2.000 —
Hvítá í Árnessýslu ....... 2.000 —
II. Jökulsá í Fljótsdal, Skjálfandafljót,
Jökulsá eystri i Skagafirði, Blanda,
Norðlingafljót, Skaftá .............
III. Sog og Laxá í S.-Þing'..............
IV. Aðrar bergvatnsár og minni virkjanir
23.000 millj.
5.500 —
1.200 —
8.300 —
Samtals 38.000 millj.