Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1955, Page 42

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1955, Page 42
18 TlMARIT VFl 1955 leg, en minni hætta þó á ferSum, ef um mannfáan stór- iðnaS væri að ræða. Steingrímur Hermannsson: Ég er ekki sammála Stein- grími Jónssyni að það skaði ekki áburðarverksmiðj- una, að verða að nota afgangsorku, sem hún vinnur tvisvar á dag. Það liggur í augum uppi, að tapið er mikið þegar dýr tæki i elektrolysunni þurfa að standa ónotuð allt að 4 tíma á dag. Auk þess þurfa aðrir hlutar verksmiðjunnar mjög að hægja á sér, þegar vetnisframleiðslan stöðvast. Það er mjög vafasamt, að við getum fengið lán til allra þeira framkvæmda, sem arðvænlegar teljast. Til dæmis hefur ekki ennþá tekizt að fá lán til Sements- verksmiðjunnar. Við eigum að virkja stórt og hafa næga orku til eigin iðnaðar, auk hins erlenda stóriðnaðar. Ég álít aluminiumiðnaðinn einmitt ágætan vegna þess, að við hann starfar tiltölulega fátt fólk miðað við raf- orkunotkun. Þannig er „productivity" hvers manns mjög hátt, en það þurfum við einmitt hér í fámenninu. Ég get alls ekki séð að 1000 manns í vinnu við slik- an iðnað sé að nokkru leyti of stórt eða hættulegt fyr- ir okkur. Það er engin hæta á því, að smáiðnaður komi til með að sitja á hakanum. Hann vex upp í skjóli stór- iðjunnar. Að lokum vil ég þakka þann áhuga, sem hér hefur komið fram, og þeim sem hér hafa tekið til máls. Jakob Gíslason: Benti á, að þótt hann hefði í erindi sínu rætt um orkuútflutning, kæmu auðvitað gagnkvæm orkuviðskipti um strenginn til greina í framtíðinni. — Umræður þessar sýna, að um þessi mál þarf að ræða meira, og einmitt áríðandi að verkfræðingar ræði þessi mál. Þakkar Steingrimi Hermannssyni og öðrum ræðu- mönnum. Alitsgerð um jarðtengingu 132 kV Sogslínu. Eftir Gunnar Böðvarsson. Inngangur. Álitsgerð þessi er samin að beiðni Rafmagnsveitu Reykjavíkur með það fyrir augum, að athuga mögu- leika fyrir jarðtengingu stálgrindarstólpa hinnar fyrir- huguðu 132 kV háspennulínu frá orkuverinu við Kistu- foss til Reykjavíkur. Eftirfarandi útreikningar eru byggðir á jarðviðnáms- mælingum, sem undirritaður hefur framkvæmt víða á landinu undanfarin 5 ár, en telja má, að þær gefi góða hugmynd um eðlisviðnám jarðvegsins og berg- grunnsins. Formúlurnar (2 til 7), sem notaðar eru, má finna í fjöldá rita, en hér skal sérstaklega nefnt ritið: „Earth Conduction Effects in Transmission Systems", eftir Erling D. Sunde, gefin út af D. van Nostrand í New York. Línustæðið. '7 Jarðlögin á línustæðinu skiptast i tvo flokka, þ. e. jarðveg og berggrunn. Með jarðvegi er átt við hin efstu lausu jarðlög einkum mold, mýrarjarðveg, leir og sand, en hið fasta berg er nefnt berggrunnur. Til hans telj- ast, auk blágrýtis og brúngrýtis, einnig nútímahraunin. Berggrunnur línusvæðisins er allur kvarter, þ. e. mynd- aður á ísöld eða eftir hana. Hann skiptist eftir gerð á eftirfarandi hátt: I. svæði: Grafningur og Ölfus út að Vorsabæ: II. — Vorsabær til Hellis- skarðs: III. — Hellisskarð til Kol- viðarhóls: IV. — Kolviðarhóll til Vatnaalda: V. — Vatnaöldur til Reykjavíkur: Brúngrýti og blágrýti. Ung hraun. Brúngrýti. Ungt hraun. Mosfellsheiðargrágrýti. Þykkt jarðvegsins er að sjálfsögðu mjög breytileg á línustæðinu. Á svæði I) mun hann vera allþykkur, eink- um í ölfusinu. Hin ungu hraun eru hinsvegar að mestu ber, en grágrýtið á svæði V) mun yfirleitt vera þakið nokkrum jarðvegi. Eðlisviðnám jarðvegs og berggrunns. Samkvæmt framangreindum mælingum er eðlisvið- nám ófrosinna jarðlaga:

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.