Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1955, Side 46

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1955, Side 46
20 TlMARIT VFl 1955 viðnám berggrunnsins og lengd vírsins mismunandi. Reiknað er með d = 10 mm þvermáli vírsins, þ. e. um 80 fermm. vír. Við útreikninga, sem gerðir eru fyrir frosinn jarðveg er h að sjálfsögðu þykkt hans fyrir neðan klaka. Þykkt jarðvegsins h = 0,5 metri. r. = 500 1.000 2.000 3.000 Lengd vírs L = 25 m. R = 28 P. 41 61 77 50 — 16 25 39 52 100 — 9 15 24 32 Þykkt jarðvegsins h = 1.0 metri. r2 = 500 1.000 2.000 3.000 nm Lengd vírs L = 25 m. R = 25 34 45 53 50 — 15 21 32 40 100 — 8,5 13 20 27 Niðurstöður. Með hliðsjón af framangreindu, má gera sér nokkra grein fyrir möguleikunum til jarðtengingar á linustæð- inu. Ef gengið er út frá þvi, að jarðviðnám hvers stólpa megi í mesta lagi vera 20 ohm fæst eftirfarandi: I. svæði, Grafningur um Ölfus út að Vorsabæ. Á þessu svæði er eðlisviðnám berggrunnsins að meðaltali um 500 ohmm, og mun hann yfirleitt vera þakinn nægilega þykkum jarðvegi til þess, að tenging geti farið fram með láréttum vir. Með 30 metra löngum vír ætti að vera hægt að ná um 15 ohm jarðviðnámi, þegar jörð er ófrosin, en. viðnámið ætti ekki að hækka I meir en 50 ohm, þegar 1 meters klaki er i jörðu. Vegna klakans verður að leggja virinn á 1 meters dýpt. Örðugleikar vegna ónógs jarðvegs geta þó komið fyrir á Grafningshálsinum. Þar sem þykkt jarðvegsins er minni en 1 metri mætti nota borholu, en dýpt hennar yrði væntanlega að vera um 30 m við 200 mm vídd, og kostnaður vegna hennar því nokkuð hár, eða 8.000 til 15.000 kr. Einnig mætti nota mjóar holur, boraðar með loftbor; ef reiknað er með 3 metra dýpt i grunn- vatni og 25 mm vidd, yrði fjöldi þeirra að vera um 8, og fjarlægð milli hola ekki undir 3 metrum. n., III. og IV. svæði, frá Vorsabæ til Vatnaalda, Á þessum svæðum eru víðast ung haun, sem eru nær algerlega ber. Eðlisviðnám þeirra er mjög hátt, þ. e. væntanlega að jafnaði yfir 5.000 ohmm, og er jarðteng- ing hinna einstöku stólpa þvi ógerleg nema með bor- holum. Holurnar þyrftu að ná niður úr hraununum, en þar sem undirlagið er viða kvartert blágrýti er hætt við þvi, að holurnar þurfi að vera mjög djúpar til þess að nægilega lágt viðnám fáist. Mun því hagkvæmara að nota jarðtengivír milli stólpanna. V. svæði, frá Vatnaöldum til Reykjavíkur. Berggrunn- urinn á þessu svæði er myndaður úr Mosfellsheiðar- grágrýtinu, sem hefur 1.000 ohmm til 2.000 ohmm eðlis- viðnám. Það mun víða þakið nægilega þykkum jarðvegi til þess, að jarðtenging geti farið fram með láréttum vír. Eins og þegar hefur verið drepið á, verður að leggja virinn á 1 meters dýpt, og vegna hins háa eðlisviðnáms grágrýtisins verður lengd hans væntanlega að vera 75 til 100 m, ef viðnám á ekki að fara yfir 20 ohm í mestu frostatíð. Á stöðum þar sem grágrýtið er þakið ónógum jarð- vegi, koma fram talsverðir örðugleikar, sem vart verða leystir, nema með jarðvír milli stólpanna. Að vísu mætti nota borholur við hina einstöku stólpa, en grágrýtið er yfirleitt mjög þykkt, og þyrf'ti dýpt þeirra því víða að vera um og yfir 60 metrar, en það hefði mikinn kostnað 1 för með sér. Þar sem ekki er vitað um, hve mikill hluti línustæð- isins á þessu svæði er þakinn ónógum jarðvegi, þyrfti að rannsaka það sérstaklega áður en ákvörðun er tekin um jarðtengingaraðferðina. TÍMARIT VERKFRÆÐINGAFÉLAGS ÍSLANDS kemur út eigi sjaldnar en 6 sinnum á ári og flytur greinar um verkfræðileg efni- Árgangurinn er alls um 100 siður og kostar 75 krónur, on einstok hefti kosta 15 krónur. — Ritstjóri: Hinrik Guðmundsson. Rit- nefnd: Baldur Lindal, Guðmundur Björnsson, Helgi H. Árnason og Magnús Reynir Jónsson. — Útgefandi: Verkfræðingafélag Islands. — Afgreiðsla tímaritsins er í skrifstofu félagsins í Bankastræti 7. Reykjavík. Sími 82717. Pósthólf 645. STEINDÖRSPRENT H.F.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.