Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2004, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004
Fréttir DV
Decode í
gríðarsveiflu
Gengi hlutabréfa í
Decode tóku gríðarlegan
kipp á Nasdaq-hlutabréfa-
markaðnum í gær. Hálfri
annarri klukkustund fyrir
lokun markaðarins ytra
hafði gengið hækkað um
26% frá þvf daginn áður og
stóð í 13,37 dollurum á
hlut. Það er hærra heldur
en gengið var í síðustu
viku áður en afkomutölur
síðasta árs voru kynntar.
Eftir það fór gengið vel
niður fyrir 11 á nokkrum
dögum. Hækkunin í gær er
rakin til endunýjaðs samn-
ings íslenksrar erfðagrein-
ingar við lyfjafyrirtækið
Merck.
Fræðsla
um færslu
Hringbrautar
í dag, föstudag, verður
haldinn fræðslufundur í
Háskólanum um færslu
Hringbrautarinnar. Fund-
urinn hefst kl. 12.15 og er í
sal 101 í Odda. Það eru þau
Dóra Pálsdóttir og Örn Sig-
urðsson, frá átakahópi gegn
færslu brautarinnar, sem
halda fundinn. Örn mun
ijalla um kostnað og skipu-
lag Vatnsmýrarsvæðisins
miðað við að Hringbrautin
verði sett í stokk. Dóra
Pálsdóttir fjallar um samfé-
lagskostnaðinn sem skap-
ast við að kljúfa þetta fram-
tíðarbyggingarland frá mið-
borginni. Þau munu síðan
taka við fyrirspurnum úr
sal og stjórna umræðum.
Myrturfyrir
aðvalda slysi
Lögreglan í Sviss hefur
handtekið mann sem grun-
aður er um að hafa stungið
36 ára danskan flugumferð-
arstjóra til bana. Maðurinn
handtekni missti konu sína
og tvö börn í flugslysi sem
flugumferðarstjórinn varð
valdur að í júlí 2002.
Maðurinn var handtekinn
vegna þess hve furðulega
hann hegðaði sér, en hann
neitar enn sök. 71 lést í
flugslysinu sem varð yfir
Suður-Þýskalandi, aðallega
rússnesk börn af auðugum
ættum. Flugumferðarstjór-
inn var stunginn til bana á
svölunum á heimili sínu
nálægt flugvellinum í
Zurich og lést fyrir augum
eiginkonu sinnar.
Ákveðiö er að Einar Sveinsson verði bankaráðsformaður í íslandsbanka. Útlit er
fyrir að meirihluti bankaráðs verði skipaður mönnum sem gætu stutt áform Lands-
bankans og þeim sem hafa starfað gegn núverandi bankastjórn. Gengi bankans þarf
að hækka mikið til að íjárfesting Helga Magnússonar og Orra Vigfússonar borgi sig.
Neita pátttöku í
Landsbankans
Væru þeir í samstarfi myndu þeir
heyra undir reglur Fjármálaeftirlits-
ins, sem yrði að athuga hvort þeir
væru trúverðugir fjárfestar.
Bjarni Ár-
mannsson Blasir
við að óvinveitt öfl
ráði bankanum
eftir aðalfund.
Einar Sveinsson
Verður formaður
bankaráðs á aðal-
fundinum 8. mars.
Miðað við lokagengi dagsins í gær munar hátt
í milljarði á verðmæti hlutabréfanna, sem Helgi
Magnússon og Orri Vigfússon keyptu hvor í sínu
lagi í íslandsbanka, og kaupverðsins. Þeir greiddu
báðir 10% yfirverð fyrir hlutina. Ætla má að þeir
taki báðir lán fyrir kaupunum og borgi af því vexti
samtals 2 milljónir á dag.
Miklar sveiflur hafa verið á eignarhaldi ís-
landsbanka upp á síðkastið í tengslum við kaup
Landsbankans á stórum hlut í bankanum. Helgi,
sem er forstjóri Hörpu-Sjafnar og stjórnarmaður í
íslandsbanka, keypti í fyrradag, í nafni óstofnaðs
hlutafélags, tæp 9% í íslandsbanka af Landsbank-
anum. Á sama tíma keypti Urriði, félag Orra, 5%
hlut af Burðarási. Samtals eru þetta um þrettán
milljarða króna viðskipti.
Neita samstarfi
Helgi og Orri neita því báðir að vera í samstarfi
en það hefur vakið ýmsar vangaveltur að annar
kaupi af Landsbankanum en hinn af félagi í eigu
bankans. Þeir þekkjast, enda sátu þeir saman í
bankaráðinu íyrir fáeinum árum og hafa gott hvor
af öðrum að segja. Væru þeir í samstarfi myndu
þeir heyra undir reglur Fjármálaeftirlitsins, sem
yrði að athuga hvort þeir væru trúverðugir fjár-
festar. Slík úttekt fer fram ef eignarhlutur einstaks
aðila fer yfir 10%.
Samkvæmt heimildurm DV hafði Fjármála-
eftirlitið íhugað að gera athugasemdir við að
Landsbankinn og Burðarás gætu farið með at-
kvæðisrétt á aðalfundinum 8. mars þar sem þeir
væru tengdir aðilar. Heimildarmenn telja að
kaup Orra og Helga hafi verið liður í leikfléttu
Landsbankans sem vilji komast yfir völdin í ís-
landsbanka.
Helgi nýtur fjármögnunar frá Landsbankanum
en Orri samdi við Burðarás. Helgi þekkir Björgólf
Guðmundsson mjög vel því þeir störfuðu saman
fyrr á árum í tengslum við Hafskip. Orri segist ekki
hafa talað við Björgólf í mörg ár og son hans þekki
hann ekkert. „Það er ekkert plott í þessu,“ segir
Helgi um það hvort hann sé í samvinnu við
Landsbankann í fyrir-
ætlunum um yflrráð ís-
landsbanka.
Einar verður for-
maður
Helgi hefur setið í
stjórninni fyrir Lífeyris-
sjóðinn Framsýn
síðastliðin sjö ár og ver-
ið í andstöðu við Bjarna
Ármannsson banka-
stjóra og Kristján Ragn-
arsson, formann
bankaráðs. Helgi stefnir
ákveðið að því að fá öfl-
uga fjárfesta til liðs við
sig. I byrjun júní kemur
í ljós hverjir aðrir koma
að fjárfestingunni. Eftir þessi viðskipti eiga fyrir-
tæki Landsbankans ekkert í bankanum en það
þarf þó ekki að þýða að bankinn hafi misst áhuga
á að eignast hlut.
Samkvæmt heimildum DV hefur verið ákveðið
að Einar Sveinsson, forstjóri Sjóvár-Almennra,
verði formaður bankaráðsins og að Kristján Ragn-
arsson hafi fallist á að víkja fyrir honum. Helgi
segist ekki hafa farið dult með stuðning sinn við
Einar í bankaráðið. Orri vildi bfða og sjá hverjir
væru í framboði.
kgb@dv.is
Kristján Ragn-
arsson Hefur fall-
ist á að hætta sem
bankaráðsformað-
ur eftir margra ára
formennsku.
Helgi Magnús-
son Segir ekkert
plott vera í tengsl-
um við kaup sín á
9% í fslandsbanka.
Arnold á Bessastaði
Svarthöfði les það í blöðunum að
nú sé hafin mikil hreyfmg fyrir því í
Bandaríkjunum að breyta lögum svo
Arnold Schwarzenegger geti orðið
forseti Bandaríkjanna.
Þetta þykir Svarthöfða með
mestu ólíkindum.
Nú hefur Svarthöfði ekkert á móti
vöðvatröllinu góðkunna frá Austur-
ríki. Síður en svo. Svarthöfði játar
fúslega að hann hefur horft á mynd-
ir Schwarzeneggers sér til ánægju í
meira en tuttugu ár, eða allt frá því
að hann sló svo eftirminnilega í gegn
í myndinni Terminator. Svarthöfði
viðurkennir meira að segja fúslega
að hann hefur séð Predator, Comm-
ando og gott ef ekki Raw Deal líka,
en þetta eru allt myndir sem gerðar
voru og sýndar áður en það komst í
tísku að viðurkenna að maður hefði
gaman af Schwarzenegger.
Jil
m Svarthöfði
En þótt Svarthöfði sé veikur fyrir
Schwarzenegger þýðir það ekki að
honum lítist á tilhugsunina um að
„big Arnie" verði forseti Bandaríkj-
anna. Svarthöfði er nefnilega þeirrar
skoðunar að maður sem óneitan-
lega hlýtur að vera litaður af hugar-
fari Terminators sé akkúrat ekki sá
maður sem Bandaríkin þarfnast sem
forseta þessa stundina. Eða réttara
sagt, ekki sá maður sem heims-
byggðin yflrleitt þarfnast í embætti
Bandríkjaforseta.
Skjóta fyrst og þurfa ekki einu
sinni að spyrja svo því óvinurinn er
vel og tryggilega dauður.
En hins vegar hvarflaði að Svart-
höfða hvort Arnold væri ekki heppi-
legri forseti fyrir okkur hér á landi.
Því við hefðum ekki nema gott af því
að gera okkur svolítið meira gildandi
á alþjóðavettvangi. Þar sem við eig-
um að heita vopnlaus þjóð væri ekki
ýkja hættulegt fyrir okkur að fá
Arnold sem forseta, við gætum ekki
fengið honum nein þau vopn í
hendur sem gert gætu alvarlegan
skaða. En þótt Arnold þyrfti bara að
burðast um með gamla kindabyssu,
þá væri samt meiri svipur yfir því en
þeim forsetum sem við höfum teflt
fram á alþjóðavettvangi til þessa.
Svarthöfði óttast helst að fólk
muni ekki taka þessa tillögu hans
hátíðlega. En verið viss um að henni
er varpað fram í djúpri alvöru. Nú
mun SnorriÁsmundsson vera á leið-
inni til Kaliforníu að afla sér ein-
hvers konar stuðnings Schwarzen-
eggers við forsetaframboð sitt.
Svarthöfði hvetur til þess að komið
verði í veg fyrir það og Schwarzen-
egger verði í staðinn sjáifur fenginn í
framboð.
Svarthöfði