Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2004, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004
Fréttir DV
Skilboðin
voru skýr
Barnaverndaryfirvöld
aðhöfðust ekkert í málinu
þrátt fyrir að þeim hefði
verið tilkynnt að stúlkan
bæri að Birgir misnotaði
hana. Skilboðin sem hún
fékk var að hún skildi bara
ekki umgangast manninn!
Hann sagði
henniað
segja ekki frá
leyndarmáli
í málinu stóð orð gegn
orði hjá stúlkunni og Birgi.
Hann
kvaðst
hafa átt
samskipti
við hana
eins og
önnur
börn í
þorpinu.
Stúlkan
sagði að
maðurinn
hefði sagt
að hún
skyldi segja að um leyndar-
mál væri að ræða.
se »»«-6
IFOLKIÐ
Itreysti
ÞESSUM
ÍMANNiO
Gesturá
heimili
ömmunnar
Hann færði sér í nyt að
hann var tíður gestur á
heimiii ömmu hennár þar
sem hún dvaldist. Með þvf
brást hann trausti sem
honum var sýnt. Hann not-
færði sér ungan aldur
hennar og sagði stúlkunni
að hún skyldi ekki segja frá,
þau ættu sér leyndarmál
sem hún ætti að þegja yfir.
Ljóti kallinn
á Patró
I eina tíð var hann kall-
aður ljóti kallinn af börn-
unum á Patreksfirði og þau
voru smeyk við hann og
fleiri en ein fjölskylda ilutti
í burtu frá Patreksfirði á
meðan hann gekk laus og
beið eftir hæstaréttar-
dómnum.
Þorði ekki að
segja neitt
Stúkan var á aldrinum
7-11 ára þegarhann
misnotaði hana um borð í
trillu úti á sjó, á heimili
hans og í
bílnum.
Hún var
hrædd og
þorði
ekki að
segja
neinum
frá fyrr
en síðar.
J
Sextugur maður á Patreksfirði var dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi í Hæstarétti
í gær fyrir að níðast á ungri stelpu um tveggja ára skeið. Héraðsdómur VestQarða
hafði dæmt hann í þriggja ára fangelsi, en dómurinn var styttur.
Dómur yflr barnaníöingi
styttur um helming
Sextugur karlmaður á Patreksfirði,
Birgir Ingólfsson, var dæmdur til eins
og hálfs árs fangelsisvistar og 500 þús-
und króna miskabóta fyrir að níðast á
ungri stúlku um tveggja ára skeið.
Hæstiréttur taldi sannað að maðurinn
hefði káfað á b'armi stúlkunnar og ítrek-
að stungið fingri í kynfæri hennar. Engu
að síður ákvað rétturinn að stytta fyrri
dóm Héraðsdóms Vestfjarða í málinu
um helming vegna þess að ekki þótti
sannað að maðurinn hefði brotið á
stúlkunni allt frá 1997, líkt og héraðs-
dómur taldi.
Ráðlagt að halda sig frá mann-
inum
Stúlkan sagði fyrst hjúkrunarfor-
stjóra frá sögu sinni í október 2001 og
síðar í mars 2002, en þá leitaði hún til
kennara síns. Kennarinn staðfesti sögu
hennar í skýrslutöku hjá lögreglu.
Ákveðið var að kæra ekki málið, en
stúlkunni þess í stað ráðlagt að fara ekki
til Birgis. Barnaverndaryfirvöld á Vest-
fjörðum voru harðlega gagnrýnd fyrir
að aðhafast ekkert í máli stúlkunnar. En
Birgir hélt áfram háttsemi sinni gagn-
vart stúlkunni eftir að hún tilkynnti yfir-
völdum fyrst brotin.
Grunur vegna sjö barna
Foreldrar sjö barna, sem öll voru ung
að árum, óskuðu eftir rannsókn lög-
reglu á því hvort Birgir hefði beitt þau
kynferðislegu ofbeldi árið 2002. Hafði
Birgir farið með börnin í siglingar á báti
sínum og ekið þeim í skóla. Það var
vegna mikillar umgengni mannsins við
börnin að ákveðið var að senda þau í
Barnahús til skýrslutöku sem hugsan-
Ákveðið var að kæra
- ekki málið, en stúlkunni
þess í stað ráðlagt að
fara ekki til Birgis.
lega þolendur. Hann var einungis
ákærður fyrir eitt málanna.
í viðtali við DV í desember síðast-
liðnum sagðist Birgir telja að í kynferð-
isbrotamálum væru kærendur í 95 til 98
prósentum tilvika að sækjast eftir fé.
„Sannleikurinn er sá að þegar er verið
að dæma þessa menn og engin vitni eða
eitthvað haldbært í höndunum þá eru
börnin tekin trúanleg. Þau fara í hnút
þegar á að fara að yfirheyra þetta og
fara að grenja. Þá er sagt við blessað
barnið að það sé illa farið á sál og lík-
ama.“
Gengur til sálfræðings
Stúlkan unga var niðurbrotin og grét
mikið þegar skýrslur voru teknar af
henni hjá lögreglu og fyrir dómi. Hún
lýsti kvíða og hræðslu, upplifði mikinn
ótta þegar kynferðisofbeldið átti sér
stað, en vissi ekki hvernig ætti að bregð-
ast við. lafnvel eftir að hún greindi yfir-
völdum frá brotunum hélt áreitnin
áfram og henni leið mjög illa á því tíma-
bili, þar sem enginn hefði hjálpað
henni. Hún átti erfitt í samskiptum við
annað fólk og fannst hún utanveltu.
Sjálfstraust hennar beið hnekki, hún
varð viðkvæm og grét af litlu tilefni.
Þetta telur sálfræðingur sem mat
ástand hennar að sé þekkt meðal barna
sem sætt hafa kynferðislegu ofbeldi.
Stúlkan sækir viðtöl til sálfræðings
einu sinni í mánuði, en dómurinn
treysti sér ekki til að meta að svo stöddu
hvort stúlkan ntyndi ná sér að fullu.
jontrau$ti@dv.is
Kynferðisbrot í tvö ár Birgir Ingólfsson á Pat-
reksfirði var dæmdur sekur i Hæstarétti fyrir kyn-
ferðisbrot gagnvart ungri stúlku. Hæstiréttur taldi
ekki sannað að brotin hefðu staðið yfir allt frá
1997 likt og héraðsdómur tók gilt, og ekki heidur
að hann hefði nuddað kynfærum sinum að kyn-
færum hennar. Því var dómurinn styttur, en brot af
þessu tagi geta varðað fangelsi allt að 12 árum.
Ókunnur maður gaf sig á tal við dreng í vesturbænum
Óttast að barnaníðingur sé á ferli
Linda María Drengurinn hennar var á gangi með annan hundinn þegar hann hitti manninn.
„Ég held að drengurinn minn
geri sér ekki grein fyrir hvað hefði
getað komið fyrir en ég er ofsa-
hrædd ef það reynist vera svo að
það gangi maður laus sem leggi það
fyrir sig að lokka unga drengi upp í
bflinn til sín,“ segir Linda María,
móðir fjórtán ára drengs.
Drengurinn var á gangi með
hund fjölskyldunnar við JL-húsið
fyrr í vikunni þegar bíll renndi upp
að honum og ökumaður tók dreng-
inn tali. „Hann fór að tala um hund-
inn en spurði hann síðan hvort
hann vildi koma upp í bflinn til sín
og sjá sinn hund sem hann sagði
vera með í bflnum. Drengurinn átt-
aði sig strax á að enginn hundur
væri í bflnum og sá þá að eitthvað
skrýtið var við manninn og flýtti sér
á brott,“ segir Linda.
Sonur Lindu lýsir manninum
sem gömlum manni með sólgler-
augu og grátt hár. Hann tók ekki eft-
ir hverrar gerðar bflinn var en hanir
var með lituðum rúðum og drengur-
inn heldur að hann hafi verið af fínni
tegund. Linda telur að ekki hafi leik-
ið vafi á að maðurinn hafi haft illt í
huga en hún hafi í gegnum árin
brýnt fyrir börnum sínum að varast
menn sem kunni að stöðva þau á
bflum og vilja bjóða þeirn inn. „Mér
er mjög brugðið og vil að foreldrar
hafi augun opin og tali við börn sín.
Það er ekki aftur tekið ef þessum
mönnum tekst að ná til barnanna.
Því er full ástæða til að hafa allan
varann á þó ég geti alls ekki staðhæft
að um barnaníðing sé að ræða“ seg-
ir Linda og bætir við að þrátt fyrir að
sonur hennar sé fjórtán ára sé hann
ekki hár í loftinu og tilvalið fórnar-
lamb fyrir menn af þessu tagi.
Geir Jón Þórisson yfirlögreglu-
þjónn hjá Lögreglunni í Reykjavík
kannast ekki við að kvartað hafi
verið undan meintum barnaníðing-
um á þesum slóðum. „Við getum
ekki vitað hvort um barnanfðing er
að ræða eða bara venjulegan mann.
Við þurfum að vita meira til þess.
Fólk á hins vegar að vera vakandi og
alltaf að brýna fyrir börnum sínum
að gæta sín á ókunnugum mönn-
um," segir Geir Jón sem vill þrátt
fyrir það vara fólk við að kalla „úlf-
ur, úlfur." Það skapi aðeins hræðsu
og betra sé heima setið en af stað
farið.