Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2004, Side 10
70 FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR2004
Fréttir DV
Birgitta með
Hróknum
Liðsmenn Hróksins bjóða
til mikillar íjölskyldu-
skemmtunar á Broadway á
morgun á milli 12 og 17. Þar
munu margir af snjöllustu
skákmeisturum Hróksins
tefla við viðstadda auk þess
sem margir af vinsælustu
skemmtikröftum landsins
munu troða upp. Hátíðin er
öllum opin og er aðgangur
ókeypis. Þau Regína
Pokorna, Luke McShane, Ró-
bert Harðarson, Rógvi
Rasmussen, Faruk Tairi og
Joel Lautier munu tefla
fjöltefli við þá sem áhuga
hafa og fá allir þátttakendur
viðurkenningarskjöl. Þeir
sem síðan ná að máta meist-
arana eða knýja fram jafntefli
fá sérstök verðlaun. Sam-
hliða þessu munu margir af
þekktari skemmtikröftum
landsins koma fram s.s.
Birgitta og Jónsi, Ómar
Ragnarsson og Haukur Heið-
ar, Skáktríó JFM ásamt
Röggu Gísla og þá munu KK
og Andrea Gylfa koma fram í
íyrsta skipti saman. Sjón-
varpsfólkið brosmilda, þau
Gísli Marteinn og Svanhildur
Hólm, munu sjá um að
kynna viðburðina og þeim til
aðstoðar verður Lfna
Langsokkur áður en hún
leggur leið sína upp á svið
Þjóðleikhússins. Hátíðin er
haldin til að fagna mikilvæg-
um tímamótum í íslensku
skáklífi. Stefna og framtíðar-
sýn Hróksins verður kynnt
en þar kemur m.a. fram að
Hrókurinn mun halda áfram
að kynna skákina meðal allra
íslenskra barna, svo ísland
verði á næstu árum mesta
skákland heims.
Halldór Guðmundsson,
ráðgjafi og rithöfundur.
Fialldór Guðmundson áttar
sig hratt og örugglega á því
hver eru aðalatriði og hver
aukaatriðin. Þetta er lykilat-
riði þegar persóna Flalldórs er
annars vegar. Fiann býryfir
analógískri greind sem gerði
hann að skólaséníi á sínum
tíma. Að auki hefur hann mik-
ið næmi fyrir, öfugt við marga
raunvísindamenn, blæbrigð-
um. Býryfir góðu og fágætu
skynbragði á listir, bókmenntir
og ýmsar tegundir tónlistar.
Þar að auki er hann iúmskur
húmoristi og hefur næmt
auga fyrir öllu þessu smá-
skrýtna.
Kostir & Gallar
Gallarnir nærast oft á kostun-
um. Halldór getur verið bæði
þrjóskur og ráðríkur. Hann veit
afvitsmunum sínum. Hann
hefur tilhneigingu til að hafa
afar takmarkaða þolinmæði
gagnvart bulli og heimsku. Og
þótt hann sé afbragðs bókaút-
gefandi þá væri hægt að giska
á að hann hefði ekki þetta
baunateljaramentalítet sem
myndi gera hann að súperfor-
stjóra stórfyrirtækis.
Guðni Ágústsson varaformaður Framsóknarflokksins hefur ekki áhyggjur af stöðu
sinni í ráðherraliði flokksins eftir 15. september. Hann segir þá Halldór Ásgríms-
son stundum hafa mismunandi viðhorf til álitamála en þeir beri virðingu fyrir
frelsi og skoðunum hvors annars. Honum finnst ósanngjarnt að Siv Friðleifsdóttir
þurfi að sitja uppi með að óttast öðrum fremur um framtíð sína í ríkisstjórninni.
Guðni Ágústsson segir enga ákvörðun
liggja fyrir um það hvaða ráðherra Fram-
sóknarfloJcksins eigi að vikja úr ríkis-
stjórninni þegar Halldór Ásgrímsson tek-
ur við forsætisráðuneytinu og framsókn-
arráðherrum fækkar um einn. „Það liggur
engin ákvörðun fyrir um það og mér
finnst að Siv Friðleifsdóttir þurfi ekki að
sitja uppi með þá stöðu að hún eigi að
fara út, þetta er mat og ákvörðun undir
septembersól í haust, mjög erfið ákvörð- Guðjón Ólafur Jónsson
un sem reynir á Hafldór, ef ég þekki hann Hefurí tvigang lýstyfirað
rétt, og þingflokkinn,“ segir Guðni. „Sú réttastværi að Siv hætti.
ákvörðun verður tekin og leyst í friði inni í
þingflokknum en ekki í fjölmiðlum.''
Halldór Ásgrímsson
Þarfað ákveða hvaða
ráðherra Framsóknar-
flokksins hættir í rtkis-
stjórninni lS.september.
Húskarlar komnir á kreik
Siv segir á heimasíðu sinni að hún hafi í
tvígang orðið fyrir því að Guðjón Ólafur Jónsson
formaður kjördæmisráðs Framsóknarflokksins í
Reykjavíkurkjördæmi norður hafi vegið opinber-
lega að sér. „Það er því greinilegt að húskarlar eru
komnir á kreik," segir Siv. í DV í gær sagði Siv að
enginn ráðherra, annar en Halldór Ásgrímsson
geti verið örúggur með að sitja áfram í ríkisstjórn
eftir 15. september. Yfirlýsingar um að hún þurfi
að víkja séu andstæðar því sem Halldór sagði ráð-
herrunum eftir kosningar.
Guðni segist ekki óttast stöðu sína eftir 15.
september. „I dag er málum þannig skipað að ég
Þótt ég sé í einhverjum málum
ekki sammála HalJdóri, þá er
engin persónuleg óvild fólgin í
því afminni hálfuog égveit að
það er gagnkvæmt. Við höfum
ekkiverið að takáfráíopin-
berri umræðu hetdur virt frelsi
og skoðanir hvors annars.
er varaformaður Framsóknarflokksins, með af-
gerandi fylgi í það af hálfu framsóknarmanna um
land allt," segir hann. Hann segir ekki umræðu-
efni dagsins hver taki við af Halldóri eða hvenær
hann hverfi af braut, þegar hann er spurður hvort
hann sækist eftir formannssætinu á eftir Halldóri.
„Mér líður vel í pólitík," segir Guðni Ágústsson.
Þegar hann er spurður hvort Árni Magnússon
verði arftaki Halldórs á formannsstóli segir
Guðni: „Árni er efnilegur maður, hann er að byrja
í pólitík og á að fá frið til að þroskast þar. Sú um-
ræða verður tekin af flokksþingi, þá og þegar Hall-
dór hættir. Halldór er enn á uppleið, verður for-
sætisráðherra í haust, það er stærsta verkefnið
okkar að takast það á hendur, önnur umræða bíð-
ur síns tíma hverjir leiði flokkinn."
Höfum mismunandi viðhorf til álitamála
Það hefur verið altalað að Guðni og Halldór
eigi ekki skap saman og að á milli þeirra sé ágrein-
ingur, ekki síst í Evrópumálum. „Það er talsvert
alið á þ.yj' aðvið séum á öndverðum meiði í ein-
stökum málum í flokknum. Nú kann það að vera
og er aö viö höfum stundum mismunandi viðhorf
til álitarHála. Það er vonandi styrkleiki flokks að
ntenn hafi frelsi til að setja fram skoðanir og rök-
ræða þær. Þótt ég sé í einhverjum málum ekki
sammála Halldóri, þá er engin persónuleg óvild
fólgin í því af minni hálfu og ég veit að það er
minnir meir
og meir á
þjóðríki. Af-
staða Fram-
sóknarflokks-
ins í dag er
skýr, að sækja
um aðild er elcki á
dagskrá, en okkur
ber að fylgjast vel
með þróuninni í
Evrópumálum."
kgb@dv.is
Siv Friðleifsdóttir Ætlar
að berjast fyrir sæti sinu i
rikisstjórn þótt hún missi
umhverfisráðuneytið.
gagnkvæmt. Við höfum ekki verið að
takast á í opinberri umræðu heldur virt
frelsi og skoðanir hvors annars. Halldór
þekkir það, hann var varaformaður áður
og á þeim tíma var talsvert gert úr þvf að
hann og Steingrímur væru ólíkir menn og
ekki alltaf sammála í öllu.
! Evrópumálum hefur Guðni aðrar
áherslur en Halldór. „Ég á mér þann
draum að ísland geti til framtíðar staðið
utan við það
samband,
sem
Meiri harka viröist einkenna fyrstu stig baráttunnar um forsetastólinn
Ástþór sakar Ólaf um moldvörpustarfsemi
Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi „Ótafur Ragnar varskipulagt að dreifa út lyga-
sögum um mig.“
„Svona moldvörpustarfsemi er
hjákátleg og gæti verið brot á hegn-
ingarlögum," segir Ástþór Magnús-
son, forsetaframbjóðandi. Hann seg-
ir hart vegið að sér á spjallþráðum
Netsins og sakar Ólaf Ragnar Gríms-
son um að standa á bak við hörðustu
árásirnar. Á huga.is er til dæmis
spjallþráður undir heitinu „ÁstþÖr
Magnússon - geðsjúkur eða gáfaður
maður“ þar sem Ástþór er meðal
annars sakaður um að vera „geðveik-
ur, þjófur, fyllibytta og aumingi."
„Þetta er svipað og gerðist fyrir
síðustu forsetakosningar þegar
Ólafur Ragnar var skipulagt að
dreifa út lygasögum um mig,“ segir
Ástþór. „Hann kom meðal annars
þeim orðrómi af stað að ég fjár-
magnaði kosningabaráttu mína
með vopnasölu - sem er hjákát-
legt.“ Að mati Ástþórs er hættulegt
þegar rnenn geta skrifað hvar sem
er undir nafnleynd Netsins. „Ég hef
alltaf verið málefnalegur en þetta er
komið í svo mikla lágkúru að það er
vart svarayert." Á spjallvefnum
huga.is skrifar til dæmis Sillymoo:
„Ástþór Magnússon er hálfviti, og ég
hef mínar ástæður til að segja það."
Sjubbi tekur f sama streng og segir:
„Þessi maður er EKKI heill á geði.“
Aðrir eru aðeins háfleygari og segir
Sinuz: „Ástþór er nú alveg klárlega
með ofvirkan skjaldkirtil." Einna
lengst gengur þó dox sem segir: „Ég
hef kinnst ástþóri. Hann er klárlega
geðveikur greiið.
Hann er þjófur.fyllibitta og aum-
ingi. (og það er staðreind)."
Jóhannes Reykdal, ritstjóri huga.is
segir að almenn lög og skynsemi séu
í hávegum höfð á vefnum. „Allt sem
menn skrifa er rekjanlegt en ég þarf
að skoða þetta dæmi betur áður en
ég get tjáð ’mig um það. Reglan er
hins vegar sú að sá sem skrifar er
ábyrgur." Skömmu áður en DV fór í
prentun höfðu þau ummæli sem
notuð eru í greininni verið tekin út af
vefnum.
simon@dv.is