Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2004, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004
Frittir DV
Krefjast skýr-
inga um
brottkast
Sveitarstjórn Hammer-
fest í Norður-Noregihefur
krafið Norway Seafoods,
fyrirtæki sjávarútvegs-
kóngsins Kjell Inge Rökke,
um skýringar á því hvort
það hafi staðið fyrir brott-
kasti, líkt og greint var frá í
sjónvarpsþættinum Brenn-
punkt í síðustu viku.
Norska Fiskeribladet hefur
eftir Alfjakobsen, oddvita
sveitarstjórnarinnar, að
óskað sé eftir upplýsingum
um umfang brottkasts frá
Norway Seafoods og er fyr-
irtækið beðið að svara sem
fyrst. Þorsteinn EA, skip
Samherja, var einrng sakað
um brottkast í þættinum.
Hrólfur Jónsson Slökkviliðsstjóri.
„Mér líöur vel. Ég er aö stússa í
ýmsu þessa dagana," segir
HrólfurJónsson, slökkviliðs-
stjóri og formaður almanna-
varnanefndar höfuðborgar-
svæðisins.„Núna I þessu
augnabliki er ég að undirbúa
aðalfund rekstrarfélags leigu-
aðila að Skógarhlíð 14.Auk
okkar eru fimm aðrar stofnan-
ir til staðar hér í húsinu eins
og Neyðarlínan, Almanna-
varnanefnd og Fjarskiptastöð
lögreglunnar. Maður er að
Hvernig hefur þú það?
sópa úr öllum hornum, ganga
frá reikningum og öðru sem
tengist aðalfundinum. Auk
þessa er ég I starfshóp sem er
að ganga frá skipulagsmálum
hvað varðar hina nýju sam-
einuðu Almannavarnanefnd
höfuðborgarsvæðisins en eins
og fram hefur komið í fréttum
er búið að sameina allar
nefndirnar á svæðinu undir
einn hatt, þannig að það er í
nógu að snúast."
Stjóm Lífeyrissjóðsins Framsýnar vissi allt um lánin á Ingólfshvoli en gerði engar
athugasemdir, segir Karl Benediktsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri sjóðsins, sem
ákærður er fyrir brot í starfi. Karl segir Halldór Björnsson, fyrrverandi stjómarfor-
mann og vin sinn, leggjast lágt að telja sig þess umkominn að veita syndakvittanir.
„Vinur minn Halldór Björnsson leggst
lágt þegar hann sest í dómarasætið og
dæmir mig sekan, fyllist yfirlæti og hroka
og telur sig þess umkominn að geta geflð
út syndakvittanir,'' segir Karl Benedikts-
son, fyrrverandi framkvæmdastjóri Lífeyr-
issjóðsins Framsýnar.
Karl sætir, eins og komið hefur fram í
DV, ákæru fyrir brot í starfi framkvæmda-
stjóra Framsýnar. Er það meðal annars
fyrir 51 milljónar króna lána til félagsins
Ingólfshofs ehf. með veði í jörðinni Ing-
ólfshvoli í Öifusi - hvoru tveggja í eigu
sonar Karls, Arnar Karlssonar.
Til þcss cr málið varðar.
°Sframkvæmdastjóra sjóðsins tap 4
veðsetmngar, Samt Mttur var é haíður hjá Lifeyrissjóðnum F?amin.
Rcylcjavik IS. októbcr2003
Togast á um yfirlýsingu for-
manns
Karl er sagður hafa brotið starfsreglur
sjóðsins með því að ákveða lánveitingu til
svo nákomins ættingja. Karl hefur í DV vitnað til
yfirlýsingar sem Halídór Björnsson, fyrrverandi
formaður stjórnar Framsýnar
og fyrrum forseti ASÍ, gaf út í
október síðastliðnum. Karl
telur yfirlýsinguna staðfesta
að honum hafi verið frjálst að
lána hverjum sem vera vildi,
jafnvel sjálfum sér og syni
sínum, svo framarlega sem
það gengi ekki gegn hags-
munum lífeyrissjóðsins.
Halldór á hinn bóginn
sagði Karl með þessari túlkun
sinni vera að misnota yfirlýs-
inguna frá í október. „Ég stend við yfirlýsinguna
en ég kaupi það ekki ef Karl heldur því fram að ég
hafi verið að gefa honum einhverja syndakvittun.
Ég hef alltaf sagt við hann: Þarna fórstu út fyrir
þau mörk sem voru eðlileg fyrir þig sem starfs-
mann sjóðsins," sagði Halldór við DV.
Ekki sekur fyrr en sekt er sönnuð
„Halldór virðir að vettugi þau grundvallar-
mannréttindi að enginn er sekur fyrr en sekt er
sönnuð," segir Karl, sem telur umrædda yfirlýs-
ingu Halldórs frá í október einmitt hafa verið til
þess gerða að umboð Karls sem framkvæmda-
stjóra væri uppi á borðinu:
„Það var það umboð sem ég hafði til meðferð-
Þórarinn V.
Þórarinsson
a.íV^/jyy
Halldór Bjðmsson, Fúrugmnd 62, Kópavogi
Yfirlýsing Halldórs Björnssonar
ar mála - gagnvart mér nákomnum jafnt sem öðr-
um - sem ekki fóru í bága við hagsmuni sjóðsins.
Það er staðreynd sem hann viðurkennir með því
að segjast standa við yfirlýsinguna - þótt hann
dæmi mig svo sekan."
Karl bendir á að Halldór viðurkenni að veð-
bönd vegna Ingólfshvols hafi verið innai
marka og í lagi.
„Það var því ekki verið að brjóta gegn
hagsmunum sjóðsins. Það er með ólíkind-
um að geta barið svona á mér þó ég hafi
ekki gert annað en að gæta hagsmuna
sjóðsins eins og ég gerði alla tíð.“
Stjórnin vissi en þagði í tvö ár
Lánveitingarnar til Ingólfshofs ehf. sem
ákært er fyrir voru veittar á tímabilinu ntars til
september 1999 með kaupum á fimm skulda-
bréfúm sem samtals voru að upphæð 51 millj-
ón króna. I heild er ákært fyrir lán upp á 95
milljóna króna lán til Karls sjálfs og einkahluta
félaga sonar hans.
Málið gegn Karli á upphaf sitt í greinargerð
Karl Benediktsson „Halldór viröirað vettugi þau
grundvallarmannréttindi að enginn ersekurfyrren sekt
er sönnuð, “ segir Karl Benediktsson um orð Halldórs
Björnssonar, fyrrverandi formanns stjórnar Lifeyris-
sjóðsins Framsýnar.
Elvars Arnar Unnsteinsonar lögmanns sem hann
skilaði stjórn Framsýnar í desember 2001, meira
en tveimur árum eftir að lánin voru veitt.
Karl segir hverja lánveitingu fyrir sig hafa verið
lagða fyrir næsta stjórnarfund Framsýnar á eftir.
Árið 1999 voru það oddvitar stjórnar Lffeyris-
sjóðsins Framsýnar, þeir Halldór Björnsson og
Þórarinn V. Þórarinsson, þáverandi fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasambands íslands.
„Stjórnarmenn vissu auðvitað nákvæmlega
hvað Ingólfshof ehf. stóð fyrir og að það var sonur
minn sem stóð þar að baki. Þeir fengu skýrslur um
allar lánveitingar og gerðu aldrei athugasemdir.
Það er ekki fyrr en eftir að þessi herför lögmanns
sjóðsins fer í gang að stjómarmenn vilja ekki
kannast við neitt. Þá draga þeir í land og ætla að
skjóta mig í kaf,“ segir Karl.
gar@dv.is
Varðan - alhliða fjármálaþjónusta
beinharða
Nokkrir punktar um
peninqa!
Beinharðir peningar fýrir punkta
Fram til 29. febrúargeta Vörðufélagar innleyst Landsbanka-
punktana sína fyrir beinharða peninga og lækkað þannig
bankakostnað sinn milliliðalaust. Þannig gefa til dæmis 10
þúsund punktar 5 þúsund krónur.
Þú getur óskað eftir innlausn bankapunkta á www.landsbanki.is
www.landsbanki.is
sími 560 6000
Landsbankinn
Nýjar reglur um siðsemi í útvarpi brotnar
Howard Stern rekinn úr útvarpi
Howard Stern Búið að reka goðið úr útvarpi.
Bandaríski útvarpsmaðurinn
Howard Stern hefur verið tekinn af
dagskrá um ótilgreindan tíma vegna
brota á nýjum reglum um almenna
siðsemi í útvarpi. Stærsta útvarps-
keðja Bandaríkjanna, Clear Channel
Radio, útvarpaði þætti Sterns á
hluta af 1.200 útvarpsstöðvum sín-
unt f landinu. Fyrir skemmstu var
keðjan sektuð um rúmar 52 milljón-
ir króna vegna ósiðlegs efnis sem var
útvarpað af þáttarstjórnandanum
Todd Clem, öðru nafni Bubba the
Love Sponge. Clem var rekinn á
þriðjudaginn.
Ekki er tilgreint hversu lengi
Howard Stern verður frá, en það
verður þar til stjórnendur útvarps-
stöðvarinnar eru sannfærðir um að
hann rnuni fylgja boðlegum viðmið-
um um ábyrgðarfullt útvarp. „Clear
Channel lagði skýrar línur í dag [gær]
í því að vernda hlustendur fyrir ósið-
legu efni, og þáttur Howards Stern
fór þvert gegn þeim. Hann var klúr,
dónalegur og móðgandi, ekki bara í
garð kvenna og Bandaríkjamanna af
afrískum uppruna, heldur í garð
hvers þess sem hefur tilfinningu fyrir
almennri siðsemi," segir John Hog-
an, stjórnandi Clear Channel Radio,
vegna málsins.