Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2004, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAQUR 27. FEBRÚAR 2004
Sport DV
«r
Globetrotters
áleiðinni
Það verður mikið fjör í
Smáranum í Kópavogi
þann 22. maí næstkomandi
þegar hinir einu sönnu
Harlem Globetrotters mæta
á svæðið. Þetta frægasta
sýningarlið heimsins í
körfubolta er ekki að koma
hingað í fyrsta sinn en þeir
voru hér síðast í Laugar-
dalshöll fyrir tveimur árum
síðan og komust þá færri að
en vildu. Að þessu sinni
verða þeir aðeins með tvær
sýningar og fara þær fram
klukkan tvö og átta í
« Smáranum í Kópavogi.
Miðasala á herlegheitin
hefst þann 8. mars
næstkomandi en ekki liggur
enn fýrir hvar hún verður.
Klitschko gegn
Sanders
Úkraínski bolinn, Vitali
Klitschko, mun mæta
Suður-Afríkumanninum
Corrie Sanders um WBC-
heimsmeistaratitilinn í boxi
þann 24. apríl næstkom-
andi. Það er enginn
heimsmeistari hjá WBC í
dag þar sem Lennox Lewis
hefur lagt hanskana á
« hilluna. Þeir Klitschko og
Sanders eru í fyrsta og öðru
sæti hjá WBC og því fá þeir
tækifæri til þess að næla í
beltið. Ekki hefur enn verið
ákveðið hvar bardaginn
verður. Sanders hefur þegar
barist við bróðir Vitalis,
Wladimir, og sigrað.
Snýr Foreman
aftur?
Hnefaleikafrömuðurinn
Don King hefur látið hafa
eftir sér að fyrrverandi
heimsmeistarinn George
Foreman sé tilbúinn að
snúa aftur í hringinn, 55 ára
að aldri. King segir að
Foreman hafl samþykkt að
berjast fyrir 20 milljónir
dollara. Foreman hefur ekki
viljað taka undir þessar
fréttir en hefur alls ekki
útilokað að hann snúi aftur
í hringinn. Það verða fljót-
lega liðin 30 ár síðan Fore-
man tapaði heimsmeistara-
tigninni í frægum bardaga
r gegn Muhammad Ali.
Augnabiiksbrjálæöi Eint. og ijá má á myndinní vnr auðvelt mál
fyrir Roy Keane að stákkva yfir Vilor Boia, markvorð Porta.
Hann stóðst þá ekki mátið og setti takkana i bakið á Baia á
leiðinni yfir honn. Hér er hann nýbúinn áðsökkva takkunum i
bakið á Boia og skömmu siðar fékk hann að Ula rauða spjaltiiö.
'odafnne
Roy Keane sýndi á sér gamlar, en ekki gleymdar hliðar þegar Man. Utd. tapaði
fyrir Porto í Meistaradeildinni. Augnabliksbrjálæði hans skömmu fyrir leikslok
gæti reynst ensku meisturunum dýrkeypt þegar upp er staðið.
Roy Keane á það sameiginlegt með Ólafi Þórðarsyni, þjálfara
ÍA, að hann hatar að tapa. Slakt gengi Man. Utd. undanfarnar
vikur, og ekki síður slök spilamennska liðsins, er augljóslega
farið að taka sinn toll á fyrirliðanum sem sprakk með látum í
Portúgal og afleiðingarnar gætu orðið alvarlegar.
Skömmu fyrir leikslok var hann
nálægt því að komast í gegnum vörn
Porto og skora en Vitor Baia,
markvörður Porto, varð á undan í
boltann.
Keane hefði hæglega getað
stokkið yfir Baia en í örvæntingu
sinni gat hann ekki staðist
freistinguna að setja takkana í Baia.
Brotið og ásetningurinn voru
augljós og rautt spjald niðurstaðan.
Hann verður því ekki með United í
seinni leiknum þar sem þeir þurfa
að vinna upp forskot Porto.
Fergie ósáttur við Baia
Sir Alex
Ferguson, stjóri
United, hefur ávalit
staðið þétt við hlið
fyrirliða síns í öllu
og á því varð engin
breyting á miðviku-
daginn.
„Það segir sig
sjálft að við verðum
ekki eins sterkir án
Keane í seinni
leiknum," sagði
Ferguson sem var
heitt í hamsi eftir
leikinn og hann
„Ég get velskilið að
hann sé svona reiður.
Hver væri ekki fúll ef
lið sem kostar jafn-
mikið og 10% afþínu
liði rúllaði yfír þig?"
hellti sér yfir þjálfara portúgaiska
liðsins eftir leikinn enda var hann
ekki ánægður með framkomu Vitors
Baia.
„Það var engin grimmd í þessu
broti. Það er ekki líkt Roy að vera
með slíka tilburði. Markvörðurinn
gerði sér mat úr málinu. Vissulega
setti hann skóinn ofan á hann en ég
efast um að hann hefði getað forðast
það. Ég skil það einnig vel að
aðstoðardómarinn skyldi flagga á
atvikið en það fór í taugarnar á mér
að markvörðurinn skyldi, gera sér
svona mat úr atvikinu. Það er ekki
heiðarlegt."
Mourinho stríddi Ferguson
Jose Mourinho, þjálfari Porto,
virtist hafa gaman af þessu öllu
saman enda sigur hjá hans
mönnum og Roy Keane úr
myndinni í seinni leiknum. Hann
stóðst ekki freistinguna að bauna
léttilega á Ferguson.
„Ég get vel skilið að hann sé svona
reiður. Hver væri ekki fúll ef lið sem
kostar jafhmikið og 10% af þínu liði
rúllaði yfir þig?,“ sagði Mourinho og
var augljóslega skemmt. Hann vill að
Ferguson biðjist afsökunar á
ummælum sínum.
„Ferguson sagði við mig í
göngunum að honum hefði fundist
Baia gera mikið úr atvikinu. Ég sagði
við hann að ég vildi sjá það aftur í
sjónvarpinu áður en ég færi að tjá
mig um það. Ef hann hefur rétt fyrir
sér þá mun ég biðjast afsökunar.
Aftur á móti ef hann hefur ekkert til
síns máls þá geri ég sömu kröfu til
hans. Vitor sagði við mig að hann
hefði náð boltanum. Keane hefði þá
stigið á hann og við það hefði hann
meitt sig. Annars skil ég vel reiði
Fergusons því hann hefur marga
heimsklassaleikmenn í sínu liði og
þeir eiga að leika mikið betur en þeir
gerðu gegn okkur í kvöld."
henry@dv.is
l