Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2004, Blaðsíða 23
DV Fókus
FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 23
gaa K4 §£-} IjL ' 1 'jd
r JT Hi 1 1
Ferill Steve Martin
Ferill Steve Martin, sem leikur Baker, hefur farið
upp og niður upp á síðkastið. Hann hefur eytt mikl-
um tíma meðal teiknimyndapersóna, til dæmis sem
kynnir í Fantasíu, sem rödd í Prince og Egypt, og
reyndi sjáifur að leika teiknimyndapersónu í Looney
Tunes með fremur slökum árangri. Þegar hann er
ekki með teiknimyndapersónum hefur hann upp á
síðkastið notið mestra vinsælda sem fjölskyldufaðir,
svo sem í Parenthood, Father of the Bride og nú síð-
ast Cheaper by the Dozen. Hann náði mestum hæð-
um sem gamanleikari í upphafl 9. áratugsarins í
myndum eins og The Jerk og The Lonely Guy, en hef-
ur upp á síðkastið verið hvað bestur í alvarlegri hlut-
verkum, eins og the Spanish Prisoner, og sem tann-
læknir í vondum málum í Novocaine. Næst mun
hann leika í Shopgirl, byggðri á eigin skáldsögu, á
móti Claire Danes, og sem Clouseau í nýrri mynd um
Bleika pardusinn.
Baker-hjónin, Ieikin af Steve Martin og Bonnie
Hunt, eiga 12 börn. Slíkt virtist skynsamlegt á
þeim tímum sem búast mátti við um 90% afföll-
um vegna ungbarnadauða og farsótta. Var þá um
að gera að eignast sem flest börn til að auka lík-
urnar á að einhver væri eftir til að hugsa um mann
í ellinni. í dag hefur stórfjölskyldan næstum því
horfíð á Vesturlöndum, hvort sem það er vegna
framfara í læknavísindum eða bara vegna aukins
aðgangs að getnaðarvörnum. í Bandaríkjunum í
dag er 1,87 barn í hverri fjölskyldu. Hlutfallið er
aðeins hærra á íslandi, enda kynlíf hér gjarnan
stundað við þannig aðstæður að getnaðarvarna-
notkun gleymist.
Ekki nóg með að þau hjón séu upptekin í
barnauppeldinu, heldur er ltka nóg að gera hjá
þeim í atvinnulífinu. Fjölskyldufaðirinn fær tilboð
um að þjálfa ruðningslið í stórum háskóla í öðr-
um bæ, og drífurfjölskylduna með sér. Móðirin er
hins vegar að gefa út bók, ogþarf að fara til New
York til að ræða við útgefanda. Er því pabbinn
skilinn eftir með hersinguna í höndunum.
Húmor myndarinnar byggir því á tveimur fjar-
stæðum. I fýrsta lagi þykir nútímamanninum
skrýtin tilhugsun að eiga svona mörg börn, og í
annan stað er óhugsandi að pabbinn geti hugsað
um börnin þegar mamma er í burtu. í fyrstu
hljómar myndin eins og Mr. Mom, Kramer vs.
Kramer, Three Men and a Baby og aðrar sem voru
gerðar fyrir um 20 árum síðan og gerðu grín að
þeim hrakförum sem fylgja þegar menn reyna að
taka að sér heimilisstörfin. En hún sækir efnivið-
inn einnig lengra aftur og er skírð í höfuðið á
mynd frá 1950, sem gerist þó um 30 árum áður og
er byggð á sannri sögu Gilbreth-fjölskyldunnar,
en faðirinn var 12 barna faðir og vísindamaður,
sem notaði börnin í vísindatilraunir. Fjallar hún
um átök afturhaldssams föður og dætra sem vildu
klæða sig upp. Ætli Herra Baker sé svo frjálslynd-
ari en Herra Gilbreth?
Bærilegur barnaskapur
„Þessi mynd hefur allt,“ sagði mað-
urinn í næsta sæú, „frethúmor, kúka-
brandara og fólk að detta." Fyrir þá
sem hafa gaman af slíku ætti þessi
mynd að hitta nokkurn veginn í mark.
Myndin er mjög í anda Farrelly-
bræðranna, enda Ben Stiller sem lék í
There’s Something About Mary þeirra
bræðra mættur til leiks. Líkamsstarf-
semi ýmiss konar eru gerð hin bestu
skil, án þess þó að það nái nokkurn
tímann sömu hæðum og í bestu sen-
um fyrmefndrar myndar. Stiller er
samur við sig í hlutverki mannsins
sem á erfitt með að reyna við.beibið,
en í þetta sinn er hann að réikna út
áhættumat hjá tryggingafélagi. Beibið
er leikið af Jennifer Aniston, sem mun
seint sleppa úr Rachelar-hlutverkinu.
Hér finnur hún tölvu Stillers, þar sem
hann er búinn að setja upp forrit sem
ber saman áliættuna af að vera með
henni og fyrrverandi eiginkonu hans.
Rachel lenti einmitt í því sama í
Friends, þar sem Ross setti upp sams
konar lista með henni og annarri
konu. Upp kemst, og Rachel og Ross
hætta saman eina ferðina enn.
Hinn ávallt trausti Philip Seymour
Hoffmann leikur hinn sóðalega besta
vin Stiller og gerir vel að vanda, en
manni finnst samt að svona „fratboy”-
hiutverk eigi að vera fyrir neðan virð-
ingu hans á þessu stigi málsins. Látum
Jack Black þau eftir um sinn. Það sem
kemur kannski mest á óvart er Alec
Baldwin, sem sýnir hér á sér áður
óþekkta hlið sem gamanleikari og ger-
ir vel. Hann fór einmitt á kostum sem
harðskeyttur yfirmaður í Glengarry
Glen Ross, og á líklega framtíðina fyrir
sér í álíka hlutverkum ef hann er hætt-
ur að fá að leika aðalhlutverk.
Flest vandamál söguhetjunnar
hafa eitthvað með úúendinga að gera,
og farið er í gegnum flestar klisjurnar
sem heimsmynd marga Bandaríkja-
manna samanstendur af. Konunni er
að sjálfsögðu rænt af smeðjulegum
Along Came Polly
Sýnd í Sambíóunum Álfabakka,
Laugarásbíó og Borgarbíó.
Leikstjórn: John Hamburg. Aðal-
hlutverk: Ben Stiller, Jennifer Ani-
ston og Philip Seymor Hoffman.
Handrit: John Hamburg.
★ ★
Frakka, Kúbverji virðist ætla að gera
það sama en hann er í lagi eftir að
kemur í ljós að hann er hommi. Maður
fær niðurgang af etnískum (óamerísk-
um) mat, sænskir húðsvampar eru
notaðir sem drullusokkar og ástralski
mógúllinn Bryan Brown er snargeð-
veikur áhættuíþróttamaður. Þó er
hent gaman að fordómum þegar
móðir Stillers fer á indverskan veit-
ingastað, kallar þjónana „Native
American" og passar sig að tala við þá
hátt og skýrt. Bærileg en lítt eftir-
minnileg skemmtun.
Valur Gunnarsson
Kvikmynda-
tðkumaður
Festen í Regn-
boganum
Kvikmyndamiðstöð íslands
heldur málstofu í Regnboganum
alla helgina. Sérstakur gestur er
Anthony Dod Mantle, breskur
kvikmyndatökumaður, og verða
sumar af helstu myndum hans
sýndar af því tilefni. Hefst mál-
stofan með setningu klukkan
19.00 á föstudagskvöld þar sem
Dod Mantle kynnir dagskrána, og
vérða í beinu framhaldi sýndar
myndirnar Dogville og 28 Days
Later. Á laugardaginn er málstofa
frá 10-13, þá hádegisverður, og
svo aftur málstofa frá 14-18. Á
sunnudaginn verður myndin Juli-
an Donkey Boy sýnd klukkan
13.00 og Festen beint á eftir. Loka-
málstofan verður svo haldin milli
klukkan 17 og 19. Þáttökugjald er
5.000 krónur.
Dogville með Nicole Kidman
Ein þeirra mynda sem Mantle hefur
komið að.
I f é I u s
Cold Mountain
House of Sand and Fog
Something's Gotta Give
Lost in Translation
Big Fish
21 Grams
Last Samurai
LooneyTunes
Hringadróttinssaga
Heimur farfuglanna
Kaldaljós