Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2004, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2004, Síða 3
DV Fyrst og fremst MÁNUDAGUR 1.MARS 2004 3 Nýkon í (skatta)paradís? Spurning dagsins Myndirðu ráða Arna Johnsen ívinnu? Ég sat á flugvellinum í Amman og hafði ekkert annað að gera en að lesa gamalt eintak af Wall Street Jo- urnal. Og viti menn: Þar las ég lof- gjörð eftir Hannes Hólmstein - blóð- ugur sem hann var upp að öxlum í Kiljans kárínum - um leiðtoga lífs hans, kraftaverkamann af Islandi, Mr. Oddsson, sem hafði breytt ís- landi í skattaparadís, undir leiðsögn Hayeks (les Hólmsteins) og í anda járnfrúarinnar Thatcher. Þetta bjargaði biðtímanum, svo að ég fékk hugljómun: Nýyrðið ný- kon (rýmar við Eykon) stendur fyrir „neoconservative" eða nýtt íhald. Nýkonar eru klíkan í kringum Bush, sem tröllríður nú heiminum í krafti amerísks vopnavalds. Þeir eru hinir endurfæddu („bom-again") kross- farar græðginnar, sem kannast ekki við neitt samfélag, bara gróðavonina með dollaramerkið í glyrnunum. Paradísarmissir En ef einhver amerískur nýkon hefði upptendrast af Hólmsteini og lagt leið sína til íslands til að upplifa kraftaverkið af eigin reynd, er hætt við að hann hefði orðið fyrir menn- ingarsjokki. Hvar var skattaparadís- in? Að loknum málsverði hefði hann uppgötvað, að í fyrirheitna landinu ríkir innflutningsbann og ofurtollar á matvæli, 24,5% vaskur, yfir 40% hátekjuskattur, skóla- og heilbrigð- iskerfið er ríkisrekið og líka útvarpið, síminn og orkukerfið. Sumsé: Nor- rænt velferðarríki. M.a.s. barna- heimilin eru rekin af hinu opinbera. Það er hætt við að hinn nýkomni ný- kon hefði varla náð andanum af hneykslun. Sér er nú hver skattaparadísin! Þjóðin (eða a.m.k. fjölmiðlarnir) hefur að undanförnu staðið á önd- inni yfir því að Hannes Hómsteinn kunni að hafa farið frjálslega með gæsalappir utan um texta Kiljans. Ég hef tilhneigingu til að taka því írafári mátulega alvarlega, enda spillti Kilj- an sjálfur sjaldan texta sínum með slíkum álappahætti. En að fara frjálslega með staðreyndir, það er Glúmur Baldvinsson las grein um Davíð í Jórdaníu Kjallari verra, sétstaklega þegar æruverðug- ur háskólaprófessor á í hlut. En það verður að segjast eins og er, að stað- reyndirnar um hagsögu íslands á s.l. hálfum öðrum áratug, verða hart úti íviðleitni Hólmsteins til að lofsyngja leiðtogann. Oflofið er og verður háð. Oflof er háð Hannes Hólmsteinn segir, að Davíð hafi ráðið niðurlögum verð- bólgunnar. Ekki rétt. Það gerðu aðr- ir menn á undan honum. Davíð var þá borgarstjóri í Reykjavík að föndra við húsbyggingar og kom þar hvergi nærri, nema til að reyna að spilla iþjóðarsáttarsamningunumí. Frjálst flæði fjármagns? Ekki heldur. Afnám einokunar á útflutningi? Þaðan af síður. EES - samningurinn - sem stendur fyrir opnun þjóðfélagsins, markaðsvæðingu þess og sam- keppnishæfni - og er sjálf undirstað- an að þeim efnahagsframförum, sem orðið hafa í tíð Davíðs? Ekki Pilsfaldadrengn- um svarað Gísli Stefánsson, hríngdi: Ungur íhaldsdrengur, Erlingur Þór Tryggvason, skrifaði grein á vefsetr- ið www.frelsi.is fyrir skömmu og undrast að ríkið skuli ekki hafa hlaupið undir bagga að þegar hin Lesendur einkarekna hefisugæslustöð, Læknalind, lagði upp laupana. Það hefði verið góður leikur enda felist hagræðing í heilbrigðiskerfinu í því að fela einkaaðiium málin. Mér finnst þetta alveg rosalega fyndinn málflutningur og einkennandi fyrir unga hægri menn. Það er að sjálfsagt sé að leita til ríkisins þegar í harð- bakkann slær og einkarekstur geng- ur ekki upp. Þetta heitir pilsfalda- kapítalismi - og hann hefur aldrei gefist vel. Bréffrá bann- færðum manni Ingimundur Kjarval, skrífar: Það er á hreinu, ekki hægt að vera of grannur né ríkur - og fjölmiðlar aldrei nógu frjálsir. Við munum samt að þegar Matadorinn var unn- inn voru allir hinir sárir og fallít, eitt- hvað sem fjárfestar á Islandi ættu að hafa í huga. Ekkert gaman lengur þegar allir hinir eru dauðir úr hungri. Fjölmiðlum verður auðvitað að stjórna, eða eins og Matthías Jó- hannssen sagði: starf ritstjóra er að verja þjóðina gegn kverúlöntum. Morgunblaðið ætti að hafa það í huga þessa dagana, en þar slást „portkonur", meðan „renniskítur" flýtur um síðurnar ag skríbentar þreyta „hundasund í hlandforum“. Ég ásakaði ritstjóra Morgun- blaðsins alveg prívat að þeir væru Ingimundur Kjarval Fjölmiðlum verður auðvitað að stjórna og Morgunblaðið ætti að hafa það í huga þessa dagana, segir bréf- ritari meðal annars. komnir í skítagallanna mokandi þessu á síðurnar og var þar með settur í bann. Þeim líklega fundist ég veitast að málfrelsinu en ég „athygl- isfíkillinn“ hafði haft óblandna ánægju að sjá nafn mitt á prenti í því merka blaði. Á mánudaginn, 16. febrúar sl., vildi ég koma auglýsingu í Morgun- blaðið. Byrjaði snemma morguns að gera ráðstafanir, en fljótlega var aug- ljóst að Páll vissi ekki hvað Pétur var að gera á því blaði. Mér var vísað fram og til baka meðan ég týndist í skiptiborðinu hvað eftir annað. Loks tókst mér að króa af Karl Blöndal að- stoðarritstjóra nokkrum dögum seinna til að fá afgerandi svar um hvort ég mætti borga fyrir þessa auglýsingu í mínu nafni. Karl sagði mér þá að fullyrðingar mínar um heilsufar afa míns væri eitthvað sem þeir gætu ekki birt. (Þó svo að þeir hefðu birt sama texta ókeypis frá mér áður). Ég varð síðan að gefast upp og fékk þessa auglýsingu birta í DV. Ég spyr, hvernig er komið málfrelsi á ís- landi? einu sinni það. EES - samningunum var því sem næst lokið, áður en Dav- íð settist í stjórnarráðið, þótt stað- festing þjóðþinga og gildistaka kæmi síðar. En meðan á samning- unum stóð var Sjálfstæðisflokkurinn á móti EES - samningunum, þóttist vilja tvíhliða samning um tollalækk- anir á fiski í staðinn. Hvað er þá eftir af afrekaskránni? Jú, einkavæðingin. Þar komu þeir Davíð og Hreinn Loftsson - núver- andi fjandvinur Davíðs í Bónus - ýmsu í verk. Samt tók það Davíð þrettán ár að einkavæða ríkisbank- ana. Og hann var ekki fyrr búinn að því en hann tók sparibaukinn sinn út úr einkavæddum Kaupþings- banka, hneykslaður ofan í tær yfir græðgi einkavinavæðingarinnar. Og talar nú um fátt annað en nauðsyn þess að koma kapitalistum - ef ekki undir lás og slá - þá a.m.k. undir lög og reglur. Hin stóru umbótamál vand- fundin Sannleikurinn er sá, að hin stóru umbótamál í frjálsræðisátt, sem Davíð Oddsson hefur beitt sér fyrir - hvað þá barist fyrir - eru vandfund- in. Hann hefur vissulega lækkað skatta á fjármagnseigendur, en hækkað þá á almenning. Þrátt fyrir drjúgar tekjur ríkisins af einkavæð- ingu hafa skattar hækkað, hlutur rfk- is og sveitarfélaga af þjóðarfram- leiðslu hefur líka hækkað, og opin- berum starfsmönnum fjölgað. Þetta er ekki sagt Davíð Oddssýni til lasts. Þetta breytir engu um þá staðreynd, að Davíð Oddsson ber höfuð og herðar yfir aðra menn í flokki sínum, sem þrautreyndur valdstreitumað- ur. En umbótamaður - eins og Hannes Hólmsteinn vill vera láta - það er hann einfaldlega ekki. Hvar er skattaparadísin? - spurði hinn sárreiði nýkon við brottförina frá íslandi. Og heimtaði að fá far- miðann endurgreiddan. Skyldu Flugleiðir framvísa reikningnum til Hannesar Hólmsteins - eða bjóða þeir bara Bónus? DV tekur við lesendabréfum og ábendingum á tölvupóstfanginu lesendur@dv.is. DV áskilur sér rétt til að stytta allt það efni sem berst til blaðsins og birta það í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Fær ekki vinnu í bók- haldinu „Já, ég er ekki frá því að ég myndi gera það en það færi samt eftir því hvaða vinna það væri. Ég myndi líklega ráða hann í allt nema bók- haldið. En brennt barn forðast eld- inn og þetta er óvenju fjölhæfur maður. Ég hugsa að hann sé dug- legur, fái ýmsu áorkað og er vel að sér í mjög mörgu. Svo er hann líka skemmtilegur maður sem spillir ekki." Margrét K. Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins l|< „Já svo sannar- lega myndi ég gera það því ég hefengar efasemdir um hann. Þeir sem ekki vilja hann verða bara að hugsa sig aðeins um, hver verður að ákveða fyrir sjálfan sig og bera ábyrgð áþví." Magnús Þórðarson, matsmaður „Já já, þvi ekki það. Þetta er dugnaðarfork- ur og búinn að afplána sitt. Ég myndi alveg treysta honum, ég veit ekki ná- kvæmlega hvað ég ætti að láta hann gera á bókasafninu en sem persónu væri það allt ígóðu lagi." Sigrún Klara Hannesdóttir, landsbókavörður. „Já, engin spurning efég hefði starfsem hentaði hon- um. Við misstígum okkur öll í líf- inu og þetta er að baki hjá honum. Við getum ekki gengið ígeng- um lífið án þess að fyrirgefa, það er úti- lokað." Ólafur Haukur Johnson, viðskiptafræðingur „Já, það myndi ég gera. Árni Johnsen er mjög fjölhæfur maður og get- ur gengið í flest þau verk sem honum eru falin. Það hefur sýnt sig í mörgum þeim verkum sem hann hefur tekið að sér að hann er dugnaðarfork- ur.“ Guðjón Hjörleifsson, alþingismaður Árna Johnsen hefur verið boðið að sinna ráðgjöf um atvinnu í Vesturbyggð. Verslunin RúmGott Smiðjuvegi 2 -Kópavogi Sími 544 2121 IMf MBfnS Opið virka daga frá kl. 10 til 18 • Opið á laugardögum frá kl. I I til 16. nfðiv þ htx uiegt TILBOBSVERÐ Fáanlegt með besta 5 svæða bylgjunudi Innbyggt í 80 X 200 Verð frá kr.67.900,- 90x200 Verðfrá kr.79.700,- 100x200 Verðfrá kr.83.600,- 120x200 Verðfrá kr.116.000. Pífur Rúmteppi Heilsukoddar Náttborð Speglar Skatthol Kommóður Kistlar og fleira.. íslenskar gæðadýnur á heildsöluverði FERMINGATILBOÐ Fermingatilboð a einstaklingsrumum. Verð Ira kr. 29.900,- (90x200) Fáanlegt í ýmsum stærðum Verð án fylgihluta Fn heimsendmg a rumum á stór-Reykjavíkursvaeöinu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.