Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2004, Side 4
4 MÁNUDAGUR 1. MARS 2004
Fréttir 2ÖV
Falsararfrá
Nígeríu
Lögreglan á Keflavfkur-
flugvelli handtók karlmann
og konu á þrítugsaldri frá
Nígeríu við komuna til
landsins frá Kaupmanna-
höfn við upphaf helgar.
Framvísuðu þau flótta-
mannavegabréfum sem
lögregla telur að séu stolin.
Parið kom frá Mflanó til ís-
lands í gegnum Kaup-
mannahöfti. Eru þau í um-
sjá lögreglunnar á landa-
mærunum í Leifsstöð með-
an mál þeirra eru til skoð-
unar. Tilgangur ferðar
þeirra hingað til lands er
óljós. Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglunni í
Leifsstöð koma svona mál
upp af og til í Leifsstöð. Þau
eru yfirleitt afgreidd þannig
að viðkomandi er dæmdur
í mánaðarlanga fangelsis-
vist og síðan vísað úr landi.
Slysvið Ban-
anasöluna
Kappakstur tveggja bif-
reiða á Sæbrautinni á laug-
ardagsmorguninn endaði
með að önnur bifreiðin fór
fram af kanti og valt þrjár
veltur niður á bflastæði við
hlið brautarinnar. Flytja
þurfti þrennt úr bflveltunni
á slysadeild. Lögreglan
handtók annan ökumann-
inn en hinn flúði af vett-
vangi. Lögreglan hefur þó
bifreið hans í sinni vörslu
og veit hver hann er. Þessi
ökumaður kemur við sögu í
þremur umferðaróhöppum
á innan við sólarhring um
helgina. Samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglunni
mun óhappið hafa orðið
með þeim hætti að framan-
greindir tveir bflar óku á
ofsahraða eftir Sæbraut-
inni. Þegar þeir komu til
móts við Bananasöluna
reyndi annar ökumannana
að troðast milli keppinaut-
ar síns og þriðja bflsins sem
þar var. Við það rákust bfl-
arnir saman með fyrr-
greindum afleiðingum. Sá
ökumannanna sem lögregl-
an handtók viðurkenndi að
um kappakstur hefði verið
að ræða og var honum
sleppt úr haldi eftir yfir-
heyrslur.
Níu tekin með
e-pillur og
hass
Lögreglan í Reykjavík
handtók alls níu manns á
tvítugsaldri í tveimur fíkni-
efnamálum sem komu upp
í gærmorgun. Um
var að ræða lít-
ilsháttar magn
af e-pillum,
hassi og marí-
júana í báðum
tilfellum. Sam-
kvæmt upplýsing-
um frá lögreglu kom annað
málið upp er lögreglan
hafði afskipti af flmm
manna hóp í miðborg
fteykjavíkur um kl. hálfátta
um morguninn en í hinu
tilfellinu var um að ræða
fjögurra manna hóp við
Höfðabakkann. í báðum
tilfellum var fólkið stöðvað
í bifreiðum. öllum níu var
sleppt eftir yflrheyrslur hjá
lögreglu í gærdag og teljast
málin upplýst.
Einar Sveinsson, forstjóri Sjóvár er með alla þræði í íslandsbanka. Kristján Ragn-
arsson bankaráðsformaður hóf leikfléttu sem varð honum að falli. Verkalýðsforyst-
an ævareið vegna valdatafls með lífeyri launþega. Kristján stendur eftir valdalaus
og Bjarni Ármannsson þarf að vinna hylli nýrra húsbænda.
Kristján Ragnarsson
gról eigin gröf
Verkalýðshreyfingin
brást ókvæða við því að
atvinnurekendur skyldu
nota lífeyri launamanna
í valdatafL
Hallarbyltingin í íslandsbanka kostar
Kristján Ragnarsson, bankaráðsmann til
12 ára, stólinn. Kristján er í dag orðinn
áhrifalaus með öllu eftir að leikflétta sem
hann hóf sjálfur endaði með óvæntum
hætti. Svo virðist sem Kristján hafi gjör-
samlega ofmetið stöðu sína og þeir sem
hann taldi vera samherja hafl ekki stutt
hann á ögurstundu.
Baráttan um yflrráð yfir Islandsbanka
hófst fyrir tilstilli Kristjáns sjálfs þegar Ari Edwald Fékkþví
hann beitti áhrifum sínum til þess að líf- framgengt að Framsýn
eyrissjóðurinn Framsýn seldi þriggja pró- seldihlutinn llslands-
senta hlut sinn til Landsbankans. I því til- banka.
viki herma heimildir að Kristján hafi beitt áhrifum
sínum til þess að samherji hans, Ari Edwald,
framkvæmdastjóri Samtaka atvinhulífsins og
stjórnarformaður Framsýnar, fengi því framgengt
að Framsýn seldi umræddan hlut. Lengi hafði
verið kalt á milli Kristjáns Ragnarssonar og Helga
Magnússonar, bankaráðsmanns íslandsbanka,
sem sat þar í krafti atkvæða Framsýnar. Helgi þyk-
ir hafa verið óvæginn í gagnrýni sinni á Kristján
bankaráðsformann innan stjórnar og ófeiminn
við að lýsa þeirri afstöðu sinni. Kristján er sagður
hafa viljað koma honum út úr bankaráðinu.
Bjarni Ármannsson
Þarfað vinna sér hylli
nýrra húsbænda.
Helgi Magnússon Atti
að fteygja honum út úr
bankaráðinu en það
mistókst.
En Kristján var fastur fyrir og þver og neitaði að
taka boði um bætur gegn því að hverfa úr bankan-
um. Svo virðist sem hann hafi kosið að berjast til
þrautar og talið sig hafa stuðning sem dygði til
sigurs. Með Kristjáni í liði voru Karl Wernersson,
Þórður Magnússon í Straumi og Bjarni Ármanns-
son, forstjóri íslandsbanka, sem þykir hafa verið
Kristjáni handgenginn
Uppskiptin
Þegar hin miklu uppskipti á milli bankanna
tveggja áttu sér stað í haust, Kolkrabbinn liðaðist
í sundur og Eimskip fór til Landsbankans var
Kristján Ragnarsson bankaráðsformaður ekki
með í samningum. Víglundur Þorsteinsson, vara-
formaður stjórnar Lífeyrissjóðs verslunarmanna
og bankaráðsmaður íslandsbanka, fór fyrir liði ís-
landsbanka, þegar uppskiptin fóru fram. Einar
Sveinsson, forstjóri Sjóvár-Almennra, var van-
hæfur í uppskiptunum og upptekinn við að bjarga
Sjóvá í hamförunum. Kristján Ragnarsson var því
hvergi nærri þegar „Nótt hinna löngu bréfahnífa"
rann sitt skeið á enda með mestu uppskiptum ís-
landssögunnar. Eftir uppskiptin var vilji til þess á
meðal bankanna tveggja til að slíðra vopnin. Ein-
ar Sveinsson var óumdeildur foringi innan ís-
landsbanka og meirihlutavilji til þess að hann
tæki við formennsku í bankaráðinu sem þýddi að
Kristjáni yrði að fórna. Reynt var að bjóða Krist-
jáni stjórnarformennsku annarsstaðar í sárabæt-
ur. Þar heyrist að hann hefði getað fengið Sjóvá.
Sótt að Helga
Það sem átti að tryggja Kristjáni áframhald-
andi stjórnarformennsku var fléttan sem átti að
kippa fótunum undan Helga Magnússyni. En
Kristján sá ekki fyrir þá atburðarás sem hann sjálf-
ur vakti upp með sölunni á Framsýnarbréfunum.
Verkalýðshreyfingin brást ókvæða við því að at-
vinnurekendur skyldu nota lífeyri launamanna í
valdatafl af þessu tagi. Leikar fóru þannig, þvert á
áform Kristjáns um að koma Helga á kaldan klaka,
að Landsbankinn tryggði Helga áframhaldandi
sæti í bankaráði með því að selja
honum yfir 8 prósenta hlut í ís-
landsbanka og Orra Vigfússyni,
félaga Helga, rúm 5 prósent.
Þetta gerðist í kjölfar viðvörun-
ar sem Landsbankinn fékk frá
Fjármálaeftirlitinu vegna þess
að bankinn seildist til áhrifa
íslandsbanka. Eftir söluna til
Helga og Orra sá Kristján sitt
óvænna og tilkynnti að hann
hygðist ekki gefa kost á sér til
áframhaldandi setu í banka-
ráði Islandsbanka. Ósigurinn
var algjör þyí nú stendur ekki
lengur boð um sárabætur með stjórnar-
formennsku annars staðar. Vinafár Krist-
ján Ragnarsson er fallinn af stalli og heim-
ildir frá þeim sem standa honum nærri
herma að hann sé sjálfur mest undrandi
yfir hraklegum örlögum. Þá er staða
Bjarna Ármannssonar veik eftir og hann
mun þurfa að vinna sér hylli nýrra hús-
bænda eða hverfa af bankastjórastóli.
Friður
Baráttunni um yfirráð í íslandsbanka
er lokið í bili og menn hafa ákveðið að
halda frið. Bankarnir hafa ákveðið styrkja
innviðina ög búa sig undir breytingar á markaðs-
gengi íslensku krónunnar. Þannig verði horft til
samvinnu bankanna á einhverjum sviðum í stað
þess að stefna að samruna. Ekki eru talin standa
efni til frekari hjaðningavíga. Óumdeildur leiðtogi
íslandsbankamanna er Einar Sveinsson og langri
valdasögu Kristjáns . ..
erlokið. Jk Kr,stJ®n Ra9nars-
son Varð eigm leik-
fléttu að bráð og
tapaði I striðinu
um völd i Islands-
banka.
Siqurtilfinninq Sveins Andra
Svarthöfði las sér til ánægju við-
tal sem Fréttablaðið birti í gær við
Svein Andra Sveinsson lögmann.
Svarthöfða rámar í að í DV hafi þeg-
ar verið vakin athygli á því að Sveinn
Andri ætlar sér að taka við hlutverki
Jóns Steinars Gunnlaugssonar sem
refsivöndur vinstrimanna með
stuttum og snaggaralegum greina-
skrifum í Mogganum. Sveinn Andri
er þegar farinn að æfa sig í þessu
hlutverki svo þegar Jón Steinar verð-
ur skipaður í embætti hæstaréttar-
dómara þá er hann þess albúinn að
taka við. Meira að segja svo brattur
maður sem Jón Steinar mun varla
treysta sér til að standa í pólitískri
orrahríð þegar hann er kominn í
skikkju hæstaréttardómarans. Um
það mál er annars það að segja að
Svarthöfði hefur nú áttað sig á því að
þetta er auðvitað aðalplottið bak við
þá nýju ákvörðun Davíðs að setjast í
stól dómsmálaráðherra, en ekki ut-
Irp hhhhh
Svarthöfði
anríkisráðherra eða fjármálaráð-
herra. Þá þarf Jón Steinar ekki endi-
lega að flýta sér neitt í Hæstarétt,
það liggur ekki lífið á að troða hon-
um þangað áður en Davíð lætur af
forsætisráðherraembættinu. Því það
er jú dómsmálaráðherra sem skipar
í Hæstarétt og það getur Davíð því
gert hvenær sem honum þóknast
þegar hann verður orðinn dóms-
málaráðherra. Þá hefur Svarthöfði
líka áttað sig á því að þetta er rótin
að því að Björn Bjarnason var látinn
skipa dómarann frænda Davíðs í
Hæstarétt á síðasta ári og var tekinn
fram yfir marga prúða lögmenn. Þar
var nefnilega ekki aðeins um að
ræða frændsemisgreiða við forsæt-
isráðherra núverandi. Þegar næst
verður laust starf í Hæstarétti, þá
mun Davíð dómsmálaráðherra líka
geta skákað í því skjólinu að menn
hafi verið að barma sér yfir því und-
anfarið að það vantaði starfandi lög-
menn í Hæstarétt - og hver er þá
ákjósanlegri en sjálfur Jón Steinar?
En það var nú Sveinn Andri sem
Svarthöfði ætlaði að dást að. Hann
fer ekkert í felur með að hann gleðj-
ist mjög þegar hann fær bullandi
seka menn dæmda saklausa. „Sigur-
tilfinningin getur verið rnögnuð,"
segir Sveinn Andri í Fréttablaðinu.
Svo kann hann ekki við annað en
fara með frasann um að betra sé að
tíu sekir menn gangi lausir en að
einn saklaus sitji inni. Sá frasi er að
vísu út í hött í þessu sambandi, því
það er annað að heimta mann
dæmdan saklausan þó maður viti að
hann er sekur heldur en hitt að leyfa
honum að njóta vafa. En Sveinn
Andri skammast sín sem sagt ekkert
fyrir að líta á dómskerfið, sem Svart-
höfði hélt að ætti að snúast um rétt-
læti, sem „keppni“ þar sem málið
snýst um að „vinna leikinn" en ekki
leiða hið sanna í ljós.
Meira að segja Örn Clausen gekk
aldrei svo langt að viðurkenna opin-
berlega þetta sjónarmið verjenda.
Spá Svarthöfða er sú að Svein Andra
muni ekki skorta kúnna á næstunni.
Svarthöfði