Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2004, Side 8
8 MÁNUDAGUR 1.MARS 2004
Fréttir DV
Nakinn í
Nauthólsvík
Lögreglunni í Reykjavík
barst tilkynning um hádeg-
isbilið á laugardag um að
undarlegur maður væri að
spígspora um Nauthóls-
víkina. Maðurinn hafði
hvíta húfu á höfði, klæddur
blárri úlpu og skóm en nak-
inn að öðru leyti. Vakti
þessi klæðaburður athygli
vegfarenda sem lét lögregl-
una vita. Samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglunni
var ekki hægt að sinna
þessu útkalli um leið þar
sem allir bílar á vakt voru
uppteknir í öðrum málum.
Fimmtán mínútum eftir að
tilkynningin barst komst
lögreglan svo í Nauthólsvík
en þá var þessi maður horf-
inn á bak og braut og hefur
ekki fundist síðan.
Rússí-
banareið
Decode ólokið
Miklar sveiflur á gengi
hlutabréfa í Decode halda
áfram á bandaríska Nasdaq
hlutabréfamarkaðnum. Á
föstudag lækkaði gengið
um 7,9% eftir að hafa
hækkað á fimmtudag um
nærri 25%. Lokagengið á
föstudag var 12,16. í Frétta-
blaðinu í gær er haft eftir
Kára Stefánssyni, forstjóra
íslenskrar erfðagreiningar,
að fyrirtækið kjósi hugsan-
lega að afþakka ríkisábyrgð
á 200 milljóna króna láni
sem ædunin hefur verið að
taka. Kári segir slíka fyrir-
greiðslu geta lagt fyrirtæk-
inu of miklar skuldbinding-
ar á herðar gagnvart ís-
leiisku samfélagi.
Björn Ingi Bjarnason
Formaður Hrútavinafélagsins
„Viö vorum að Ijúka einstak-
lega vel heppnaöri árshátíð
og næsta verkefni er Evrópu-
vegavinnan sem eru tónleikar
á Draugabarnum hér á
Stokkseyri," segir Björn Ingi
Bjarnason formaöur Hrúta-
Hvað liggur á?
vinafélagsins.„Við hjá Hrúta-
vinafélaginu komum nálægt
mörgum góðum málum
hérna við ströndina, raunar
næstum því öllum, og reynum
að hafa bætandi áhrif. Þessir
tónieikar eru eitt þeirra mála
en auk erlendra tónlistar-
manna sem þarna troða upp
má nefna að Hera kemur svo
og heimamennirnir í hljóm-
sveitinni Nilfisk sem varð
heimsfræg á einni nóttu hér á
landi þegar hún hitaði upp
fyrir Foo Fighters í Höllinni síð-
asta sumar."
Grétar Sigurðarson er sagður hafa farið í fjölda Noregsferða í desember á stefnu-
mót við litháískan mann. Sagt er að Grétar hafi játað að hafa átt hlut að Neskaup-
staðarmálinu en Inger Jónsdóttir sýslumaður segir engar játningar liggja fyrir.
Hugsanlega fleiri samsekir, segir Arnars Jensson aðstoðaryfirlögregluþjónn.
Grétar Sigurðarson er sagður hafa farið í fjölda
ferða til Noregs í desember á stefnumót við lit-
háískan mann. Talið er að Grétar hafi verið
höfuðpaur í fíkniefnainnflutningi frá Litháen til
íslands.
Fréttablaðið segir Grétar hafa játað aðild að
Neskaupstaðarmálinu og Morgunblaðið segir
sömuleiðis að játning liggi fyrir.
Inger Jónsdóttir, sýslumaður á Eskifirði, aftek-
ur hins vegar með öllu að nokkrar játningar liggi
fyrir. „Nei, það eru ekki staðfestar neinar játning-
ar á þessu stigi," segir Inger.
Fleir gætu verið samsekir
Ekki náðist í Ólaf Ragnarsson lögmann Grétars
í gær. Arnar Jensson aðstoðaryfirlögregluþjónn
sagðist ekkert geta tjáð sig um það sem fram hafi
komið í yfirheyrslum. „Það eru vitni og hugsan-
lega einhverjir samsekir sem fylgjast með fjöl-
miðlum. Það er mjög óæskilegt að þetta fólk lesi
hvernig yfirheyrslur ganga," segir Arnar.
Lögmenn Jónasar Inga Ragnarssonar og Tom-
asar Malakauskas, segja sína menn ekki hafa ját-
að.
„Minn skjólstæðingur hefur ekkert játað,“ seg-
ir Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Jónasar Inga
Ragnarssonar. Að sögn Sveins Andra var Jónas
síðast yfirheyrður á þriðjudag í síðustu viku.
Stefnt sé að því að yfirheyra hann aftur í dag,
mánudag.
í sama streng tekur Björgvin Jónsson, lögmað-
ur Tomasar Malakauskas. Björgvin segir Tomas
hafa verið yfirheyrðan um miðja síðustu viku.
Einnig er stefnt að því að yfirheyra Tomas að nýju
í dag.
Röð Noregsferða að hitta Litháa
Heimildarmaður DV sem þekkir lauslega til
mannanna þriggja telur að það hafi verið Grétar
sem skipulagði innflutninginn á amfetamíninu
sem Vaidas bar til landsins. Grétar hafi til dæmis í
desember farið í sex eða sjö ferðir til Noregs að
hitta ótilgreindar litháískan mann. Litháinn hafi
komið frá heimalandi sínu á þessa fundi sem talið
hafi verið heppilegt að hafa í Noregi.
Arnar Jensson segist ekkert vilja segja um hugs-
anlegar utanferðir Grétars. Verið sé að kanna hvort
sömu menn hafi áður staðið að fíkniefnainnflutn-
ingi. „Það liggur ekki fyrir,“ segir hann.
Áðurnefndur heimildarmaður telur að Jónas
Ingi hafi séð um pappírsvinnuna og Tomas hafi
verið tengiliður Grétars við Litháen.
Áður hefur verið greint frá því í DV að
tveir menn á dökkum jeppa hafi sést vera
í samfloti við þá Jónas Inga og Tomas
þegar þeir komu við á I löfn í I lorna-
flrði á leið sinni í Neskaupstað. Þar
munu hafa verið á ferðinni tveir
frændur Grétars sem voru að flytja
jeppann fyrir móður sína að sunnan
í Neskaupstað. Þessir bræður biðu
•eins og Jónas Ingi og Tomas af sér
óveður í tvær nætur á Hótel Fram-
tíðinni Djúpavogi. Lögregla hefur
áður sagt að þeir tengist ekki mál-
inu.
Stunginn í gegn um plastið
Aðspurð segir Inger Jónsdóttir,
sýslumaður á Eskifirði, að engin grunur
beinist að öðrum en mönnunum þremur
vegna líkfundarins, hvorki fyrir yfir-
hylmingu né annað. Inger segir yfir-
heyrslum fyrir austan lokið.
„En í tengslum við yfirheyrslur á hin- ^
um grunuðu hefur komið sitt hvað sem orð-
ið hefur til þess að taka hefur þurft nýjar
skýrslur af fólki hér eftir beiðni að sunnan,"
segir Inger.
Fjórar 8-9 sentímetra djúpar stungur
voru á líki Vaidasar. Arnar segir svo virðast
sem líkinu hafi verið veittar stungurna eft-
ir að því var pakkað í plást. „Það virðist
vera," segir Arnar aðspurður um hvort
hann teldi að líkið hafi verið stungið til
að það flyti síður.
gar@dv.is
Gretar Sígurðarson r- - miidarmaður
DV pekkir tauslego tilmannarma
þriggja telur að þcð hufi verið Grétar sem
skipulagði innfluiningir n á amfetamín-
inu sen, Vaidas bar til landsins.
„Það eru vitni og hugsanlega
einhverjir samsekir sem fyigj-
astmeð fjölmiðium. Það er
mjög óæskiiegt að þetta fólk
lesi hvernig yfirheyrslur
ganga."
Fjölmennur borgarafundur um færsluna á Hringbrautinni
Óskað eftir fundi með borgarstjórn og þingmönnum
Fjölmennur borgarafundur var
haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær-
dag um færsluna á Hringbrautinni. í
lok fundarins var samþykkt ályktun
þar sem m.a. var harmað hvernig
staðið er að útboði verksins og sagt
að núverandi áform stríði beint gegh
samfélags- og efnahagslegum rök-
um.
Það var átakahópur um betri
byggð sem stóð að fundinum og
voru frummælendur fyrir hönd
hópsins þau Örn Sigurðsson arkitekt
og Dóra Pálsdóttir sérkennari. Fyrir
hönd borgarinnar töluðu þau Helga
Bragadóttir skipulagsfulltrúi og
Ólafur Bjarnason forstöðumaður
verkfræðistofu borgarinnar.
í ályktuninni var einnig skorað á
borgaryfirvöld að láta kanna til hlít-
ar að leggja Hringbrautina í stokk og
það mál skoðað frá öllum hliðum.
Þá vildu fundarmenn að innan
þriggja vikna yrði komið á fundi
með kjörnum fulltrúum borgarinnar
og þingmönnum og var skipaður
sérstakur hópur til að vinna að því
máli.
Örn Sigurðsson Málið útskýrt á borgara-
fundinum i Ráðhúsinu.