Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2004, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2004, Qupperneq 14
14 MÁNUDAGUR 1. MARS 2004 Fréttir 0V Verðlaun fyrir ljósmyndir ársins 2003 voru veitt um helgina og Pjetur Sigurðsson hrósaði sigri fyrir fyrstu forsíðumynd DV. Fyrir verðlaunaafhendinguna þótti margt benda til þess að myndin yrði valin fréttamynd ársins enda fangaði myndin einstakt augnablik í íslensku viðskiptalífi; þegar Jón Ólafsson flaug til landsins og seldi allar eignir sínar á Fróni. Fréttaljósmynd og mynd ársins. „Norðurljósin seld", Pjetur Sigurðsson/DV Jón Ólafsson, fyrrum eigandi Norðurljósa, kemur til landsins ieinkaþotu til að ganga frá sölu á fyrirtæki sínu. „Góð fréttamynd þar sem margt er að gerast samtimis. Fangar vel hraða nútimaviðskiptahátta þar sem mikið er lagt undir og tíminn oft knappur." Pjetur Sigurðsson Ljósmyndari afljós- myndadeild DVog Fréttabiaðsins tók fyrstu forsíðumynd DV 14. nóvember 2003. Hún vann til verðiauna um heigina. Varbæði valin fréttamynd ársins og mynd ársins en meiri getur heiðurinn ekki orðið. „Ég var að gæla við það að ég fengi frétta- mynd ársins en ég átti ekki von á hinu, alls ekki. Ég skynjaði að fólk hafi litið svo á að myndin af Jóni væri fréttamynd ársins en frábært að fá óskarinn líka,“ segir Pjetur Sig- urðsson, ljósmyndari DV-. Á laugardag voru veitt verðlaun fyrir Ijósmyndir ársins 2003 í tengslum við Ljós- myndasýningu Blaða- ljósmyndarafélags Is- lands. Um átta flokka var að ræða og svo var valin mynd ársins milli þeirra átta sem þóttu bestar innan hvers flokks. Mynd Pjeturs var valin fréttamynd árs- ins eftir að hafa sigrað í flokki fréttamynda með mynd sinni „Norðurljósin seld“. f um- sögn dómnefndar segir að myndin fangi vel hraða nútímaviðskiptaliátta þar sem mikið er undir og tíminn skammur. Fyrst og fremst fréttaljósmyndari Pjetur hefur starfað alllengi við ljósmynd- un, segist orðinn gamall í hettunni en hann byrjaði á Tímanum blautur bak við eyrun árið 1986. „Ég hafði þá nýlokið stúdentsprófi ogvar að afgreiða brennivín í Ríkinu. Mig langaði til að prófa þetta," segir Pjetur. Þá var ritstjóri Tímans Jón Kristjánsson, núverandi heilbrigð- isráðherra. Pjetri var sagt upp en var svo ráð- inn aftur og þá sem blaðamaður þegar blaðið komst í eigu Frjálsrar fjölmiðlunar. „Svo var það árið 1996 sem Gunnar Andrésson, sem þá var yfir ljósmyndadeild DV, hringdi í mig og bauð mér starf í afleysingum. Og á DV hef ég verið síðan.“ Árið 1987 eða ‘88, á fyrstu árum verðlaun- anna og sýningarinnar, hlaut Pjetur verðlaun í skopmyndaflokki. „Myndin var af klámlista- verki eftir Sverri Ólafsson og öldruð hneyksluð kona að virða það fyrir sér. Kom mér mest á óvart að hún hringdi í mig og fékk myndina af sér sjálfri og verkinu,11 segir Pjetur. Hann á erfitt með að skilgreina hvað geri góðan blaða- ljósmyndara góðan blaðaljósmyndara. „Ég lít á mig fyrst og fremst sem fréttaljósmyndara, ekki einhvern svakalegan fagmann í ljósmynd- un sem slíkri, og góður fréttaljósmyndari þarf að hafa svokallað fréttanef og þekkja persónur og leikendur í þjóðfélaginu." Ein mynd segir meira en þúsund orð Fyrsta fofS'ða DV 14. Neyðarleg- nóv^er2003. ustu aðstæður sem Pjetur man eftir frá starfi sínu í gegnum tíðina segir hann dæmigerðar. „Það er auðvit- að þegar maður gleymir að setja filmu í vélina og þurfa svo að ljúga sig út úr því eftir á og fá að taka myndina „aftur“ með orðum á borð við: „Myndin skemmdist í framköllun". Það hefur komið tvisvar fyrir mig á ævinni. Með digitaltækninni er það minniskortið. Ef maður gleymir því er maður dauður." Ef klisjurnar að láta myndirnar tala sínu máli eða að ein mynd segi meira en þúsund orð eiga nokkurn tíma við er það hér á síðunni. jakob@dv.is" Skop. „Víkingur bíður eftir strætó". Þorvaldur örn Kristmundsson/DV „Skopleg uppsetning þar sem blandast saman farartæki tvennra ólikra tíma á gamansaman hátt." Portrett. „Helgi Hóseasson". Krist- inn Ingvarsson/Morgunblaðið „Sterkt portrett af óvenjulegum manni sem ekki hefur bundið bagga sina sömu hnútum og aðrir. Á beinskeyttan hátt iýsir myndin vel þjóðþekktum einstakiingi." Tímaritamynd. „Friðheigi heimil- isins". Gísli Egill Hrafnsson/Fróði „Óvenjuleg uppstilling en um leið tviræð framsetni.ig c myndefni sem fyrir vikið gefur myndinni meiri dýpt. Valið er áhorfandans." Daglegt líf. „Fallegur hundur". Arni Sæberg/Morgunblaðið .Hlýleg mynd af hversdaglegu atviki sem sýn- ir vei dálæti barna o dyrum.' (þróttamynd. „fris Edda Heimisdóttir". Brynjar Gauti/Morgunblaðið „Dýnamisk mynd sem tekin er á augnabliki sem erfitt er að ná. Uppbygging einföld en áhrifa- rik." Þjóðlegasta myndin. „Blautur þjóð- hátfðardagur". Árni Torfason/Morg- unblaðið „Hvad er þjódlegra en rigning og regnhlifará J7.júni?"

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.