Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2004, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2004, Síða 15
W Fréttir MÁNUDAGUR 7. MARS 2004 15 Löggan vissi um óeðli Huntleys Breska lögreglan vissi að Ian Huntley var stórhættu- legur kynferðisbrotamaður þremur árum áður en hann myrti stúlkurnar Holly Wells og Jessicu Chapman, sem báðar voru tíu ára. Þrátt fyrir fortíð Huntleys var ekkert gert til að hindra að hann fengi starf sem húsvörður í barnaskóla. Þetta kom fram fyir helgi í rannsókn á því hvers vegna Huntley gat fengið starf innan um börn. í mats- skýrslu lögreglu um Hunt- ley frá árinu 1999 er hann skilgreindur sem óforbetr- anlegur kynferðisbrota- maður, en skýrslan var tek- in saman í kjölfar fjölda ásakana á hendur Huntley um nauðgun og önnur kyn- ferðisbrot. Skýrslan var eyðilögð af lögreglu í Humberside ári eftir að hún var tekin saman. Huntley var dæmdur í lífs- tíðarfangélsi fyrir morðin á stúlkunum. Tólf mánaða hækkun úrvalsvísitölunnar er tæp 90%. Hvorki Dow Jones né S&P 500 hafa náð meiri hækkun á tólf mánuðum. Skortur á hlutabréfum meðal ástæða fyrir miklum hækkunum á þeim. Hækkun á verði hlutabréfa hér- lendis síðastliðna tólf mánuði á sér fá fordæmi í sögu verðbréfamark- aða. Hækkun úrvalsvísitölunnar nam þannig tæpum 90% á þessu tímabili og hafa hvorki Dow Jones né S&P 500 náð jafn brattri tólf mán- aða hækkun £ sögu sinni aftur til árs- ins 1933. Samkvæmt „Hálffimm fréttum" frá Greiningardeild KB banka er ástæða þessara miklu hækkana m.a. skortur á hlutabréf- um og telur deildin nú vera kjörað- stæður á markaðinum fyrir einka- væðingu Landssímans og raunar skráningu annarra fyrirtækja á hlutabréfamarkaðinn. í „Hálffimm fréttum" segir m.a.: „Það vekur athygli nú eftir að verð hlutabréfa hefur hækkað jafnmikið og raun ber vitni að ekki skuli vera meira um hlutafjárútboð fyrirtækja þar sem kostnaður eiginfjár hefur lækkað allverulega. Ein algeng skýr- ing á mikilli hækkun hlutabréfa- verðs að undanförnu er skortur á hlutabréfum á markaðinum. Það er í raun órökrétt skýring þar sem ís- lendingum er nú frjálst að íjárfesta erlendis. Það kæmi Greiningardeild „Það kæmi Greining- ardeild ekki á óvart að fyrirtæki sæju sér leik á borði nú og gæfu út nýtt hlutafé til að borga upp skuldir, enda íslensk fyrirtæki orðin tölu- vert skuldsett." ekki á óvart að fyrirtæki sæju sér leik á borði nú og gæfu út nýtt hlutafé til að borga upp skuldir, enda íslensk fyrirtæki orðin töluvert skuldsett." Sem fyrr segir á þessi mikla hækkun sér fá fordæmi erlendis. Að vísu náði Nasdaq árið 1999 að hækka um rétt rúm 90% á tólf mán- aða tímabili, skömmu áður en sú loftbóla sprakk svo í loft upp. Önnur lönd sem svipaðar hækkanir hafa orðið í eru aðeins Finnland, Svíþjóð og Japan. Sem aðrar hugsanlegar ástæður fyrir þessari miklu hækkun nefnir Greiningardeild m.a. að verð á hlutabréf- um hafi verið of lágt í ársbyrjun 2003 eða að það sé orðið of hátt nú. Að minnsta kosti sé erfitt að fella saman 90% hækkun á einu ári við skilvirka markaði. Annar þáttur sem kunni að skýra mikla hækkun á eignaverði á íslandi sé að nú er mikið innstreymi erlends lánsfjár- magns, m.a. vegna skuldsettra yfirtakna. Þá veki athygli að verðbólga hefur enn sem komið er ekki komið fram í vísitölu neysluverðs þrátt fyrir mikla aukningu peninga- magns í umferð. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar. Hækkun á verði hlutabréfa hérlendis sl. tólfmánuði á sér fá fordæmi í sögu verðbréfamarkaða. Ferð fyrir 2 til London eða Kaupmannahafnar ircr" áskrifendum DV og sá heppni fær ferð fyrir 2 með lceland Express til London eða Kaupmannahafnar. Vinningshafar verða kynntir í Askriftarsími DV: 550 5000 helgarblaði daginn eftir útdrátt. Með DV fylgist þú betur með þjóðmálaumræðunni hverju sinni. Helgarblaðið fylgist með þeim einstaklingum sem skara fram úr. Helgarviðtalið, krossgátan, sérstæð sakamál og margt fleira. DV tekur á málum af harðfylgi og áræðni. DV veitir stjórnvöldum hverju sinni kröftugt aðhald. Á DV duga engin vettlingatök.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.