Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2004, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2004, Blaðsíða 19
|>V Sport MÁNUDAGUR 1. MARS2004 19 Bikar á loft Gareth Southgate, fyrirliði Middlesbrough, sést hér lyfta enska deildabikarnum á loft I Cardiffi gær eftir sigur liðsins á Bolton í úrslitaleiknum. Reuters Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton Riley fór með leikinn Sam Allardyce, knattspyrnu- stjðri Bolton, kenndi Mike Riley, dómara leiksins, um tapið og sagði hann einfaldlega hafa verið lélegan. „Ég hafði mínar efasemdir um hann íyrir leikinn og hann stóðst allar væntingar ef svo má segja. Þegar ég lít til baka og fer yfir þær mikilvægu ákvarðanir sem hann tók voru þær allar rangar. Hann var lélegur og kostaði okkur mögu- leikann á því að vinna bikarinn. Vítaspyrnan sem Middlesbrough fékk hefði átt að vera aukaspyrna og síðan áttum við að fá vítaspyrnu undir lok leiksins þegar Ugo [Ehiogu] varði boltann með hendinni - ótrúlegt að hann skyldi ekki dæma víti þá,“ sagði Allardyce. Eins og flóðbylgja Allardyce viðurkenndi að byrjun- in hefði verið hans mönnum erfið. „Við vissum ekki hvað hafði gerst í byrjun. Þetta var eins og flóðbylgja í andlitið á okkur. Við náðum okkur hins vegar fljótt á strik og fengum næg tækifæri til að komast yfir eftir að við skoruðum. Ég skal viður- kenna að þeir gáfu okkur markið en Youri [Djorkaeff] fékk tvö færi til að skora. Ég hefði viljað sjá hvað leikmenn Middlesbrough hefði gert ef við hefðum jafnað. Engar gleðiminningar Mér fannst við hins vegar ekki spila vel í síðari háifleik og heilt yfir var Middlesbrough sennilega betri aðillinn í leiknum. í svona leikjum fá menn ekkert annað tækifæri svo það er farið. Það verða engar gleði- minningar .frá þessum degi - hann var lélegur," sagði Allardyce eftir leikinn. oskar@dv.is Úrslitaleikur enska deildabikarins fór fram á Þúsaldarleik- vanginum í Cardiff í gær Fyrsti titill Boro í 128 ár Middlesbrough tryggði sér í gær fyrsta titil félagsins í 128 ára sögu þess þegar liðið bar sigurorð af Bolton, 2-1, í úrslitaleik ensku deilda- bikarkeppninnar á Þúsaldarleikvanginum í Cardiff í Wales. Eini titillinn sem félagið gat státað af fyrir þennan leik var sigur í ensk-skoska bikarnum árið 1976 og sigur í gömlu ensku 2. deildinni árið 1978. Að auki tryggði félagið sér þátttökurétt í Evrópukeppni félagsliða á næsta tímabili. Middlesbrough fékk drauma- byrjun því að Kamerúninn Joseph- Desire Job kom liðinu yfir strax á 2. mínútu. Fimm mínútum síðar skoraði síðan Hollendingurinn Boudewijn Zenden úr vítaspyrnu eftir að Emerson Thome, varnar- maður Bolton, hafði fellt Job inni í vítateig. Zenden var hins vegar stálheppinn því að vítaspyrna hans var afskaplega döpur, fór á mitt markið, en því miður fyrir Jussi Jaaskelainen, markvörð Bolton, fór hún af fætinum á honum og í netið. Zenden er í láni frá Chelsea, en hann gæti orðið eini leikmaður þess liðs sem vinnur titil á þessu ári ef fram fer sem horfir. Leikmenn Bolton lögðu þó ekki árar í bát eftir vatnsgusuna í byrjun og Kevin Davies náði að minnka muninn fyrir þá á 21. mínútu. Markið má reyndar skrifa á Mark Schwarzer, markvörð Middles- brough, því hann missti boltann afar klaufalega úr höndunum inn í markið. Bolton komst þó ekki nær og Steve McClaren, knattspyrnu- stjóri Middlesbrough, getur glaðst yfir því að vera fyrsti enski knatt- spyrnustjórinn í átta ár sem vinnur einn af stóru titlunum þremur. Gareth Southgate, fyrirliði Middlesbrough, var í sjöunda himni eftir leikinn og tileinkaði stjórnar- formanni liðsins, Steve Gibson, sem hefur byggt upp nýtt lið hjá félaginu, titilinn. „Það þarf ekki annað en að horfa á stuðningsmennina okkar til að sjá hversu mikla þýðingu þetta hefur fyrir þá. Þeir hafa beðið lengi, lengi, eftir þessum titli og þetta er sér- staklega ánægjulegt fyrir Steve Gibson, mesta stuðningsmann okkar, sem hefur gert þetta allt mögulegt," sagði Southgate. Gibson sjálfur var hæstánægður. „Við fengum það sem vildum. Þetta er draumur fyrir alla stuðnings- mennina og leikmennina. Við höfum öll lagt hart að okkur og það er stórkostlegt að uppskera á þennan hátt,“ sagði Steve Gibson eftir leikinn. oskar@dv.is VINNUSKÓLI REYKJAVÍKUR Umhverfis- og heilbrigðisstofa sumamnna Viljum gjarnan ráða í þessi störf: • Leiðbeinendastörf. • Störf á skrifstofu. • Störf í þjónustumiðstöð. Fjölbreytt og gefandi störf. Kjörin fyrir þá sem kraftur er í og kjósa skemmtilegan félagsskap og útiveru. Væntanlegir umsækjendur sækja námskeið í upphafi ráðningartímans , t.d. í stjórnun, vinnu með unglingum, ýmsum öryggismálum og verklegum störfum. Athugið að margvísleg reynsla og þekking fæst með þessum störfum, sem nýtist fóki vel, þegar horft er til framtíðar. Umsóknir og upplýsingar: www.vinnuskoli.is Nánari upplýsingar um sumarstörf í síma 563 2750

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.