Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2004, Side 21
DV Sport
MÁNUDAGUR 1. MARS 2004 21
Bikarinn á loft Jonatan Mcgnunor..
fyrírliði KA, lyftir hér bikarnum með Awórí
Atlmyni. Þeir Einat l ogi frí.ðjánssan og
Hafþór Einarsson tanna vet.
DV-myndir Robert
„Gæði þessa leiks
sýna í raun hvað
kvenfólkið er komið
langt í dag - að geta
spilað heilan leik á
þessu tempói er ein-
faldlega staðfesting á
miklum framförum."
Sylvia Strass voru óstöðvandi á
þessum tíma en saman áttu þær
þátt í öllum mörkum liðsins nema 8,
skoruðu saman 18 mörk og áttu 16
stoðsendingar. Alla Gokorian hélt
upp á 32 ára afmælið með því að
skora 9 mörk og eiga 11
stoðsendingar en hún varð þarna
bikarmeistari í íyrsta sinn og hefur
því unnið allt hér á landi.
Staðfesting á framförum
„Þetta var frábær leikur og þá
sérstaklega sóknarlega séð en
varnarleikurinn var slakur af beggja
hálfu en leikurinn var vissulega
hraður og skemmtilegur. Gæði
þessa leiks sýna f raun hvað kven-
fólkið er komið langt í dag - að geta
spilað heilan leik á þessu tempói er
einfaldlega staðfesting á miklum
framförum. Stelpurnar mættu ein-
beittar til leiks minnugar ófaranna í
fyrra og það kom einfaldlega ekki til
greina að lenda í því aftur. Eftir smá
byrjunarörðugleika náðum við
dampi í leik okkar undir lok fyrri
hálfleiks og í síðari hálfleik vorum
við að spila miklu meira sem liðs-
heild en í þeim fyrri og það skilaði
okkur alla leið,“ sagði Aðalsteinn
Eyjólfsson, þjálfari ÍBV, eftir leikinn.
Haukakonur komu mörgum á
óvart með frábærri frammistöðu.
Liðið hélt í við ótrúlega hraðan leik
Eyjaliðsins og játaði sig aldrei sigrað.
Fyrirliðinn RagnhOdur Guðmunds-
dóttir átti frábæran leik og þá kom
Bryndís Jónsdóttir inn í markið í
kjölfar meiðsla Kristinu Matuze-
viciute og varði frábærlega.
„Við berum höfuðið hátt eftir
þennan leik enda lögðum við okkur
allar hundrað prósent ffam og stóð-
um saman sem lið. Það var nokkuð
áfall að missa Kristinu út af meidda í
byrjun en Bryndís kom sterk inn og
undirstrikaði bara styrk liðsheildar-
innar ennfremur," sagði Ragnhildur
eftir leik en hún skoraði fimm mörk
í röð á rétt rúmlega þriggja mínútna
kafla snemma í seinni hálfleik.
„Ég er búinn að vera stoltur af
þessum stelpum í allan vetur og við
göngum héðan út með höfuðið hátt
þótt auðvitað sé alltaf ótrúlega
svekkjandi að tapa svona leik. Eg
held að gæðalega séð hafi þetta ver-
ið langbesti bikarúrslitaleikur sem
spilaður hefur verið í kvennaboltan-
um hér á landi frá upphafi," sagði
Ragnar Hermannsson, þjálfari
Haukaliðsins. ooj@dv.is, ViðtöhSMS
Flugferð Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari ÍBV, fékk flugferð I leikslok en hann hefur skilað
félaginu bikarmeistaratitlinum á sfnu fyrsta ári istarfi.
ÍBV-HAUKAR 35-32
Bikarúrslitaleikur kvenna 28. feb.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og
Ólafur Haraldsson.
Gangur leiksins: 0-1,2-1,2-2,
3-2, 3-5, 4-7, 8-10,11 -11, 11 -14,
13-16,(17-16), 19-16,21-17,
25-22, 29-25, 30-26, 30-28, 31-30,
34-31,35-32.
Mörk fBV: (Skot í sviga)
Sylvia Strass 9(11)
Alla Gokorian 9/3(13/4)
Anna Yakova 8(19/1)
Birgit Engl 4(5)
Guðbjörg Guðmannsdóttir 4(9)
Þórsteina Sigbjörnsdóttir 1 (2)
Elísa Sigurðardóttir (1)
Anja Nielsen (6)
Stoðsendingar-Fiskuð víti:
Alla Gokorian 11-1
Sylvia Strass 5-1
Anna Yakova 4-0
Birgit Engl. 3-3
Anja Nielsen 1-0
Varin skot/vfti: (Hlutfall f svfga)
Julia Gantimurova 20 (39%)
Mörk Hauka: (Skot í sviga)
Ramune Pekarskyte 11/4(20/4)
RagnhildurGuðmundsdóttir 9(17)
Anna Guðrún Halldórsdóttir 3 (4)
Erna Þráinsdóttir 3 (6)
Tinna Halldórsdóttir 3 (7)
Sandra Anulyte 2 (4)
Martha Hermannsdóttir 1 (2)
Stoðsendlngar-Fiskuð vfti:
Ramune Pekarskyte 7-1
RagnhildurGuðmundsdóttir 3-2
Erna Þráinsdóttir 2-0
Sandra Anulyte 2-0
Tinna Halldórsdóttir 2-1
Martha Hermannsdóttir 2-0
Anna Guðrún Halldórsdóttir 1-0
Varln skot/vfti: (Hlutfall f sviga)
Kristina Matuzeviciute 2 (29%)
Bryndís Jónsdóttir 18/2 (38%)
Samanburður (KA-Fram):
Hraðaupphlaupsmörk: 13-5
Mishepp. hraðaupphl.skot: 6-4
Víti fengin: 5-4
Vítanýting: 60%- -100%
Tapaðir boltar: 16-18
Varin skot í vörn: 6-2
Brottvísanir (í mfn.): 4-4
Fráköst: 14-11
Mörk með langskotum:* 9-11
Mörk af línu:* 5-3
Mörk úr hornl:* 1-5
* Mörk úr hraðaupphl. eru ekki
skráð sem skot úr leikstöðum.
Gaman Þær Guðbjörg Guðmannsdóttir og
Elisa Sigurðardóttir hlupu sigurhringinn með
bikarinn I leikslok og leiddist það ekki eins og'
sjá má á þessari mynd.