Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2004, Qupperneq 22
22 MÁNUDAGUR 1. MARS2004
Fókus DV
fcl22xt
Franz
Ferdinand _ . — -
Franz ' ’~~A\naf[Q
Ferdinand íetO'°U
★ ★★★★
Domino/12 tónar
Hljómsveitin The Von Bondies komst í heimsfréttirnar í desember þegar Jack
White, söngvari The White Stripes, lét höggin dynja á söngvara hennar Jason Stoll-
steimer á bar í Detroit. Jack hefur verið ákærður og bíður réttarhaldanna, en The
Von Bondies er nýbúin að senda frá sér sína aðra plötu, Pawn Shoppe Heart.
Trausti Júlíusson kynnti sér nýjustu rokk-útflutningsafurð Detroit-borgar.
Skoska rokksveitin Franz
Ferdinand sendir hér frá sér
fyrstu plötu sína en breska
Plötudómar
tónlistarpressan hefur eytt
undanförnum misserum í
að tala þessa drengi upp
sem næstu stórstjörnurnar í
rokkinu. Það var því með
nokkrum efasemdum sem
maður byrjaði að hlusta og
við fyrstu hlustun leit út fyrir
að þeir væru ekkert annað
en týpískar Strokes-eftir-
hermur. Sú kenning hvarf
þó eins og dögg fyrir sólu
þegar platan rúllaði aðeins
oftar og í ljós kom að hér er
um stórgóða rokkplötu að
ræða. Reyndar alveg stór-
kostlega góða. Franz Ferdin-
and em vissulega nokkuð
líkir böndum eins og Strokes
og Interpol en þeir bæta við
áhrifum frá „danspönkinu"
svokallaða sem The Rapture
og fleiri hafa getið sér gott
orð fyrir. Það er eitthvað
miklu meira við þessa plötu
en þær senr maður hefttr
heyrt undanfarið og þetta er
tvímælalaust það besta sem
heyrst hefur á árinu.
HöskxdduiDaöiMagnússon
Lhasa sA JÉ
The living Road m n
★ ★★★ ■ #.
Warner/Skífan
Lhasa de Sela er
kanadísk-mexíkósk söng-
kona sem sendi frá sér sína
fyrstu plötu La Llorona árið
1998. Sú plata var unnin
með franska tónlistarmann-
inum Yves Desrosiers og
vakti töluverða athygli. Tón-
listin var undir áhrifum frá
ffönskum og spænskum
sönglögum, djassi og þjóð-
lagatónlist. Á nýju plötunni,
The Living Road, heldur hún
áfram á svipaðri braut, en
hefur þróað tónlistina og
gefið henni nútímalegri
hljóm. Tónlistarlega er þetta
heillandi ferðalag og fjöl-
þjóðlegt yfirbragðið er und-
irstrikað með þeirri stað-
reynd að tJiasa syngur bæði
á spænsku, frönsku og
ensku. Seiðandi og sérstök
plata frá frábærri söngkonu.
Trausú Júllusson
í f ó k u s
1 . (1) Franz Ferdinand -
Take Me Out
2. (3) Scissor Sisters -
Comfortably Numb
4. (2) TV On The Radio -
Poppy
5. W Probot-
Shake Your Blood
5, (5) Britney Spears -
Toxic
1, (6) JossStone-
Fell In Love With A Boy
3. (lO)JuniorSenior-
Shake Your Coconuts
(DFA Remix)
9. (-) Kanye West -
Slow Jamz
10 ,(7) Basement Jaxx -
Good Luck
Detroit á sér merka tónlistarsögu. Bílskúrs-
rokkið á þar rætur með hljómsveitum eins og
The Stooges og MC5, Motown soul-veldið hafði
þar aðsetur lengst af og P-funk leiðtoginn George
Clinton kemur þaðan. Borgin er gjarnan kölluð
fæðingarborg teknótónlistarinnar og vinsælasti
rappari heimsins í dag, Eminem, er heimamaður.
Síðustu ár hafa hafa svo Detroit-sveitir eins og The
White Stripes og Electric Six verið að gera það gott
og nú hefur hljómsveitin The Von Bondies bæst í
hópinn. Önnur platan þeirra Pawn Shoppe Heart
kom út fyrir nokkrum dögum.
Hétu fyrst The Baby Killers
The Von Bondies er skipuð tveimur strákum
og tveimur stelpum. Jason Stollsteimer syngur og
spilar á gítar, Marcie Bolen spilar á gítar, Don
Blum á trommur og Carrie Smith á bassa. Hljóm-
sveitin var stofnuð af Jason og Marcie eftir
Cramps-tónleika. Hún hét í upphafi því huggu-
lega nafni The Baby Killers. Don bættist í hópinn
skömmu síðar og eftir að upprunalegi bassaleik-
arinn hætti til þess að fara í háskólanám tók
Carrie við á bassanum.
Þó að Jason semji öll lögin og textana þá hafði
hann engan áhuga á tónlist þegar hann var ungur
og eignaðist sína fyrstu plötu ekki fyrr en hann var
orðinn 17 ára. íþróttirnar áttu hug hans fram að
því. Carrie er hins vegar dóttir gítarleikara. Hún
fékk sína köllun á Bikini Kill tónleikum þegar hún
var 14 ára.
Afbrýðisemiskast?
Árás Jack White á Jason Stollsteimer 13. des-
ember s.l. kom mörgum á óvart þar sem Jack var
lengi manna duglegastur að kynna sveitina fyrir
umheiminum. JJann fékk The Von Bondies til
þess að hita upp fyrir The White Stripes, hann
bauð þeim að vera með á safnplötunni
Sympadietic Sounds Of Detroit og hann
pródúseraði fyrstu plötu sveitarinnar, Lack Of
Communication, sem kom út hjá Sympathy For
The Record fndustry útgáfunni árið 2001. Jack var
líka um tíma kærasti Marcie Bolen. Sumir telja að
árás Jacks hafi verið afbrýðisemiskast, en það er
með öllu óstaðfest. Carrie Smith sem var vitni að
atburðinum segir bara þetta: „Ég vona að Jack
Wliite fái hjálp. Hann er ekki mjög hamingjusam-
ur maður." Jack neitar sökum...
Stooges, Cramps og Gun Club
Pawn Shoppe Heart er pródúseruð af gamla
Talking Heads og Modern Lovers meðlimnum
Jerry Harrison. Hún hefur fengið ágætar mót-
tökur hjá gagnrýnendum, enda fín bílskúrsrokk-
plata sem minnir bæði á Stooges, The Cramps og
gömlu eðalsveitian Gun Club, en bætir líka við
nýjum hilutum. Jason hefur talað um Screamin
Jay Hawkins, Litde Richard, Eric Burdon úr
Animals og Otis Redding sem áhrifavalda.
Kannski til að staðfesta aðdáunina á þeim síðast-
nefnda er Otis Redding slagarinn Try A Littie
Tenderness falið aukalag á plötunni.
Jamelia komin úr barnsburðaleyfinu!
Þó að breska söngkonan Jamelia
sé ekki nema 23 ára gömul er hún
búin að vera í tónlist í átta ár. Hún
var uppgötv-
uð þeg
ar
hún var 15 ára og mætti á skrifstofu
Parlophone plötufyrirtækisins þar
sem hún söng eigin lög án undir-
leiks.
Fyrsta stóra platan hennar kom
samt ekki út fyrr
en hún var
orðin
19
ára. Hún heitir Drama og fékk ft'na
dóma. Independent On Sunday
sagði t.d. að „nú mætti Missy Elliott
fara að vara sig“.
Jamelia fékk ein Mobo-verðlaun
árið 2000 og margir bundu miklar
vonir við hana sem enska r&b-
stjörnu sem gæti keppt við þær
bandarísku. En þá varð stelpan ólétt
og tók sér frí frá tónlistinni í heil þrjú
ár. Jameliu fæddist dóttir í mars
2001, en í fyrra fór hún aftur að láta
Jamelia Nautzhverrar
minútu i stúdíóintí'
með Chris Martin.
tónlistinni. Þá kom smáskífan
Superstar út. Hún sló í gegn í Bret-
landi og Jamelia var tilnefnd til
tveggja Brit-verðlauna (besti kven-
kyns listamaðurinn og besta smá-
skífan), en Dido hirti þau reyndar
bæði.
í dag kemur í verslanir ný útgáfa
af Jameliu plötunni Thank You sem
kom út í fyrra. Á henni eru m.a. smá-
skífulögin Superstar, Bout (sem Rah
Digga rappar í) og Thank You, en
líka tvö lög sem voru ekki upphaf-
lega á plötunni, þ.á.m. næsta
smáskífa, See It In A Boy’s
Eyes, sem sjálfur Chris
Martin Coldplay-söngv-
ari samdi með henni, en
hún lýsir því samstarfi
sem frábærri upplifun.