Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2004, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2004, Side 30
Il 30 MÁNUDAGUR 1. MARS 2004 Síðast en ekki síst DV Rétta myndin Svartur veggur með hvítum tón. Sama myndin? Ha? Eins og DV greinir frá ítarlega í máli og myndum (en ekki hvað?) á blaðsíðu 14 voru verðlaun fyrir bestu ljósmyndir ársins afhent um helgina. Okkar maður, Pjetur Sig- urðsson, sigraði glæsilega í flokki fréttamynda ársins og mynd hans var sömuleiðis valin ljósmynd ársins. Margir lyftu brúnum þegar tilkynnt var um íþróttamynd ársins, sem er af írisi Eddu Heimisdóttur sundkonu og er eftir Brynjar Gauta á Moggan- um. Kom myndin mönnum kunn- uglega fyrir sjónir og við nánari eft- irgrennslan kom á daginn að hér er nánast um sömu mynd að ræða og sigraði sem besta íþróttamynd árs- ins 2000. Munurinn er hins vegar sá að þá mynd tók Ari Magnússon og var hún af Erni Arnarsyni sund- kappa. I dómnefnd sátu þeir Bjarni Eiríksson ljósmyndari á Morgun- blaðinu í eina tíð og lögmaður í dag, Odd Stefán ljósmyndari og Valgarður Gunnarsson listamaður og greinilegt að þetta sama mótív hefur heillað þá líkt og dómnefnd- ina árið 2000. Það sem hins vegar truflar áhugamenn um ljósmynd- un er sú staðreynd að íþróttirnar eru sú grein sem býður einna mest upp á tilþrif í ljósmyndun. Efri myndin vann í ár Neðrimyndin vann 2000. Flottar saman og báðar jafn frábærar. Kannski að eitthvað svipað vinni að ári. • ÁtjánárayngismæráRaufar- höfn, Árdís Höskuldsdóttir, gerði Síðast en ekki síst sér lítið fyrir og lagði tvo þunga- vigtarmenn í keppni um besta vísubotn- inn. Keppnin var haldin í tilefni þorra- blóts heimamanna. Vísubotnar bárust _____alls staðar að af land- inu Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra lenti í fjórða sæti og séra Hjálmar Jónsson dómkirkju- prestur hreppti þriðja sætið. Hagyrðingur sem nefndi sjálfan sig aðeins “0“ lenti í öðru sæti á eftir Ár- dísi, sem heimamenn kalla reyndar Skundu... • Sviptingar innan bókaheimsins hafa ekki farið fram hjá áhuga- sömum en mikla at- hygli vakti þegar Halldór Guðmunds- son gekk til liðs við sinn forna fjanda Jó- hann Pál Valdimars- son með það fyrir augum að gefa út bók sína um Halldór Laxness hjá JPV- útgáfunni en ekki hjá Eddu eins og til stóð. Menn veltu því þá fyrir sér hvort fjöl- skylda Laxness myndi fylgja í kjölfar- ið með útgáfurétt á verkum nóbelsskáldsins, bæði vegna vinfengis Halldórs við fjöl- skylduna og þá ekki síður að Edda gaf út umdeilda bók Hann- esar Hólmsteins Gissurarsonar um Halldór Laxness sem fjöl- skylda Laxness með Guðnýju Halldórs- dóttur í forsvari, hef- ur ákveðið að kæra fyrir ritstuld. Nú er staðfest að Guðný og ijölskyldan fer hver- gi... • Frétt um að Edda hafi nú treyst mjög bönd sín við fjölskylduna með því að endur- nýja samninginn um útgáfuréttinn á bók- um Halldórs Laxness vekur að vonum at- hygli. Edda hyggðist setja á fót sérstaka Laxness skrifstofu sem hefur það eina verkefni að sjá um að útgáfa bóka Laxness, einkum ytra, megi verða með sem bestu móti. Menn velta því fyrir sér hversu langt Páll Bragi Kristjónsson, forstjóri Eddu, hafi þurft að teygja sig til að sam- komulag næðist? Dugar skrifstofa til að milda geð Guðnýjar? Það er spurning, því óneitanlega ber Edda ábyrgð á útgáfu bókar Hann- esar sem svo mjög fór fýrir brjóstið á fjölskyldunni? Eru auknar greiðslur inni í myndinni? Og svo það sem virðist augljóst: Tæplega vænkast hagur Hannesar ef hann bindur vonir við að Edda gefi út annað bindi hans fyrirhuguðu þriggja binda ritröð um Halldór Laxness... ÞETTAER MÍN FYRSTA ÞRIGGJA-RAMMA MYNÐASAGA - GERÐ i SEPTEMBER 1994. ERUÐ ÞIÐ AÐ FATTA HANA? :) ÆTLI 'ÞEMINN* SÉ EKKI EITTHVAÐ í ÞÁ ÁTTINAAÐ OFT BITNAR REIÐI OKKAR Á ÖÐRUM EN HÚN BEINIST AÐ. Islenskar stelpur Sjúki söng og dans Áheyrnarpróf Þessi mynd var tekin þegar íslensk ung- menni, ekki síst stúlkur, flykktust i áheyrnarpróf Idol. „Við áttum von á viðbrögðum en augljóslega eru þessar undirtektir langt umfram það sem vonir stóðu til um,“ segir Einar Bárðarson at- hafnaskáld. Á miðvikudaginn síðasta auglýsti Einar eftir söngkonum á aldrinum 18 til 26 ára og boðaði áheyrnarpróf sem mun fara fram eftir viku. Við- brögðin létu ekki á sér standa þegar haft var samband við Einar með það fyrir sjónum að skrá sig til þátttöku. Álagið varð svo mikið, bæði á fimm- tudag og föstudag að bæði símkerfi og netþjónn fyrirtækisins Concert gáfu sig. Áhugi stúlkna á þessum aldri á söng og dansi virðist með mestu ólíkindum og greinilegt að þarna er talsvert meira framboð en eftirspurn. Má velta því fyrir sér hvaða aðstæður bjóða upp á svona ásókn. Einar telur ljóst að mikil vakning hafi verið í tengslum við Idol keppnina og svo séu miklu færri tækifæri fyrir stúlkur en stráka á þessu sviði. Strák- arnir rjúka bara út í bílskúr og þaðan upp á svið án þess að láta það vaxa sér í augum. „Á venjulegum degi fáum við svona 3 til 10 símtöl í símanúmer Concert en eftir að við aug- lýstum eftir söng- konum höfum við ekki getað lagt niður tólið. En eins og fyrr sagði brann símkerfið yfir enda engan veginn búið undir álag af þessu tagi,“ segir Einar en hann er hinn leyndardómsfyllsti þegar hann er spurður nánar út í það hvað hann er að bauka. „Ég er að leita að 3 til 4 söngkonum, sem jafnframt eru ófeimnar og geta dansað, sem eru til f að taká þátt í að setja allt á annan endann í sumar.“ Heimildir DV herma að hugsan- lega sé Einar Bárðar með söngleik í bígerð en líklegra þó að hann sé að leggja drög að fyrsta alvöru stúlkna- bandinu. Kunri eru tengsl.hans við ýmsar vinsælar hljómsveitir, svo sem Skítamóral, en hann hefur lagt mörgum tónlistarmönnum til lög sem hafa svo slegið í gegn. Sá sem mun hafa umsjón með hinni faglegu hlið er upþtökustjórinn Hafþór Guðmundsson upptökustjóri en Einar Bárðarson Leitar nú að þremurtil fjórum söngkonum sem viija taka þátt i að gera allt brjálað í sumar. Flest bendir til þess að hann sé að leggja drög að fyrsta islenska stúlknabandinu. hann trommaði lengi með SSSól. Allt þetta þykir renna stoðum undir það að íslenskt stúlknaband sé í uppsiglingu. jakob@dv.is Krossgátan Lárétt: 1 blekking,4 ver- öld, 7 fljótið, 8 karl- mannsnafn, 10 ólykt, 12 spil, 13 geð, 14 magurt, 15 bekkur, 16truflun, 18 beitu, 21 losi, 22 greind- ur, 23 þvingar. Lóðrétt: 1 gijúfur, 2 sár, 3 boði,4farangur,5aftur,6 samskipti, 9 blómi, 11 kappnóg, 16 farvegur, 17 dýjagróður, 19 kjaftur,20 sýra. Lausná krossgátu jns 0Z 'uj6 6t 'Á|s 'sej 91 'uujá 11 'egnej 6'>h?w g'uua s'>|sejjn.|eq p 'Ja>|spu!|q £'uaq z'bIB t ■jáu>| £Z 'iá>|s ZZ '|sÁa| 12 'su6e g t '>jsej 9t 'jas st 'VÁJ td 'pun| £t 'nju z L '>|Áuj oi 'iujy 8'uej|a 2'wiaq t>'qqe6 t :jjajei Veðrið +6 ** Strekkingur +6* 4 ' Strekkingur +3“ Strekkingur Í2K +7 **í ,, Strekkingur +fQ\ 4 é Nokkur vindur Qf xje * 4 I Nokkur vindur 4 o Allhvasst I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.