Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2004, Page 2
2
LAUGARDAGUR 13. MARS2004
Fyrst og fremst DV
Útgáfufélag:
Frétt ehf.
Útgefandi:
Gunnar Smári Egilsson
Ritstjóran
lllugi Jökulsson
MikaelTorfason
Fréttastjóran
ReynirTraustason
Kristinn Hrafnsson
Kristján Guy Burgess
DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn:
550 5020 - Fréttaskot: 550 5090
Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing-
anauglysingar@dv.is..- Dreifing:
dreifing@dv.is
Setning og umbrot Frétt ehf.
Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagna-
bönkum án endurgjalds.
Villtur alinn
Vopnfiskur ehf. hefur
tvö sfðustu sumur
stundað tilraunir með
að veiða þorsk í gildrur
innst í Vopnafirði og
ala hann þar áfram í
heppilega sláturstærð.
Að Vopnfisk standa
nokkrir víðsýnir ein-
staklingar og Vopna-
fjarðarhreppur. Guð-
mundur W. Stefánsson
hefur umsjón með eld-
inu.
Kennaratilboð
Nokkrar góðar kenn-
arastöður hafa verið
auglýstar lausar til
umsóknar í Fjarða-
byggð. Kennara vantar
í Nes-
skóla í
hann-
yrðum,
íþrótt-
um og
til
kennsiu
í yngstu
deildum og almennt á
unglingastigi. Grunn-
skola Eskifjarðar vant-
ar einnig kennara í
heimilisfræðum og ís-
lensku á unglingastigi.
Á Reyðarfirði er svo
laus til umsóknar 50
prósent staða í heim-
ilisfræðakennslu og
smfðum. Upplýsingar
veita skólastjórar á
hverjum stað.
Frænka í Hólmavík
Leikfélag Hólmavíkur
æfir nú af kappi leik-
ritið Frænka
Charley's eft-
ir Brandon
Thomas.
Þetta er gam-
alkunnur
farsi sem
skrifaður var
fyrir rúmum
100 árum.
Leikstjóri er Arnar
Snæberg Jónsson á
Hólmavfk. Leikendur
eru 10 talsins.
=J
:0
•ö
c
(TJ
sz
<
UJ
c
o
l/l
o
n.
CQ
“O
XI
3
CT>
Fleiri strákar
í fyrra fæddust
4.142 börnhér
á landi.
Drengir voru
fleiri en stúlk-
ur eða 2.101
strákar á mótl
2.041 stelpum.
Þetta eru fleiri
fæðingar en
árið áður en þá
þær 4.049.
voru -o
Vestrið er berskjaldað
Vopnaðir lambhúshettumenn frá íslandi
eða Spáni hefðu ekki getað hindrað
hryðjuverkið í járnbrautarlestunum í
Madrid né komizt að því, hverjir frömdu
ódæðið. Lambhúshettumenn henta betur til
að ná afsöguðum haglabyssum af dauða-
drukknum Islendingum, sem hafa keypt of
mikið áfengi í Ríkinu.
Dálkahöfundurinn Nicholas D. Kristof
ræddi í New York Times í vikunni um tvo
möguleika á hryðjuverkum í New York. Annar
er skjalatösku-atómsprengja í Grand Central,
sem mundi drepa hálfa milljón manns. Hinn
er kóbaltsprengja í Wall Street, sem mundi
gera borgarhlutann óbyggilegan í marga ára-
tugi.
Auðvelt var að útvega dýnamítið, sem not-
að var í Madrid. Svipuðu magni hefur meira
að segja verið stolið úr augljósum geymslum á
Islandi. Sprengihæft kóbalt fæst í eins þuml-
ungs breiðum og eins fets löngum stöngum,
sem eru notaðar í hundraðatali við geislun
matvæla í bandarfskum fyrirtækjum.
Lykilþættir í atómsprengjum hafa verið á
frjálsum markaði. Komizt hefur upp um
Abdul Kader Kahn, sem sá um framleiðslu
atómsprengja í Pakistan. Hann græddi stórfé
á að selja afurðir sínar til Líbíu og Norður-
Kóreu. Þar sem hann er heittrúarmaður, ótt-
ast menn, að hann hafi selt til A1 Kaída.
Menn óttast líka að atómsprengjur hafi far-
ið á markaðinn eftir upplausn Sovétríkjanna,
þegar eftirlit var í molum og lykilmenn gátu
drýgt sultarlaun með því að koma slíkri vöru á
framfæri við lysthafendur í útlöndum. Ekki
hefur tekizt að gera grein fyrir öllum atóm-
vopnum Sovétríkjanna.
Vandamál Vesturlanda í öllu þessi öryggis-
leysi er, að viðbrögð yfirvalda eru að tölu-
verðu leyti gagnslaus og þau eru verri en
gagnslaus að því leyti, að þau dreifa athygl-
inni frá raunverulegri hættu á borð við
dýnamítið í Madrid. Efling vopnaðra sveita
lambhúshettumanna er dæmi um slík mistök.
Alvarlegust eru mistökin í Bandaríkjunum,
þar sem utanríkisstefnan snýst eingöngu um
að tryggja endurkjör forsetans. Þar er stefnt
að handtöku Osama bin Laden í tæka tíð fyrir
kosningar. Til þess þarf aðstoð Pakistans og
þess vegna er verzlunarferill Abdul Kader
Kahn eldki kannaður.
Af innanpólitískum ástæðum í Bandaríkj-
unum hefur orku, fé og fólki verið fórnað í
styrjöld gegn frak, sem átti engin gereyðing-
arvopn og enga alþjóðlega hryðjuverkamenn
fyrir stríð. í staðinn hafa Pakistan og Sádi-
Arabía verið látin í friði, þar sem er upp-
spretta trúarofstækis gegn vestrinu.
Aukin vopnaleit í farangri er margfalt öfl-
ugra tæki gegn hryðjuverkum á borð við
ódæðið í Madrid heldur en vopnaðir lamb-
húshettumenn og styrjaldir með tilheyrandi
stríðsglæpum Bandaríkjanna, sem magna
hatrið og næra hryðjuverkin.
Jónas Kristjánsson
Passíur fornar
og nýjar
Við erum afar biblíufróð hér á DV
þótt við höfúm hingað til ekki flaggað
þeim vísdómi mjög oft vegna þess hve
önnum kafln við erum við önnur störf.
Okkur þykir þess vegna svolítið fyndið
að fyigjast með umræðum um kvik-
mynd Mel Gibsons, Passion of the
Christ Þær umræður em nefnilega í
stórum dráttum á algjörum villigöt-
um, að minnsta kosti ef svo á að heita
að þær snúist um að hversu miklu leyti
Mel Gibson styðjist við „sannleikann"
í bíómyndinni sinni, eða hvort hann
„halli réttu máli“ einhvers staðar - og
er þá einkum vísað til þess hvort og
hvemig Gyðingar em meðhöndlaðir í
myndinni. Hvort þar verði vart Gyð-
ingahaturs.
Þessar umræður em á villigötum
10 næstu myndir
Mel Gibson
The Sexual Secrets of Maria
Magdalena
The Last Kiss of Judas
First Breakfast - last Supper
The Denial of Peter
The Carpenter's Stepson
Born Among Sheeps
Walking On Water
The Big Hangover With Lazarus
9* The Weelchair Miracle
The Return of the Christ - He's
Back... and He's Angry...
(Hafnar eru sýninga rá nýjustu mynd Mel
Gibson, The passion of the Christ, hérá
landi.)
Fyrst og fremst
vegna þess að allir sögufróðir menn
vita fiillvel að frásagnir guðspjalla-
mannanna em mjög vafasöm heimild
um krossfestingu lesú, að minnsta
kosti um hin fínlegri blæbrigði um
hver gerði hvað og hver áttí sök á
hveiju. Ástæðan er sú að guðspjöllin
vom skrifúð mörgum áratugum eftír
krossfestinguna og byggð á munn-
mælum og sögusögnum. Þá höfðu
höfúndar guðspjallanna líka mjög
ákveðið „agenda" eins og það heitir á
góðri íslensku. Þar sem þeim var í mun
að hinn nýi kristni söfnuður fengi þrif-
ist í Rómaveldi varð að draga eins og
kostur var úr þeirri staðreynd að auð-
vitað var það rómverski landstjórinn
Pontíus Pflatus sem krossfestí Jesú og
enginn annar. Leiðtogar Gyðinga vildu
áreiðanlega losna við hann en þeir
bera þó ekki „sök" á krossfestingunni
og „lýðurinn" í Jerúsalem hrópaði al-
veg áreiðanlega ekki á blóð hans.
Umræður um hvernig Gibson
gengur að halda sér við „sannleika"
guðspjallanna snúast því í rauninni
alls ekki um sögulegan sannleika,
heldur tilbúinn. Halldór Laxness tók
dagbækur Magnúsar Hjaltasonar og
samdi upp úr þeim sögu Ólafs Kára-
sonar Ljósvíkings. Ef einhver gerði svo
kvikmynd upp úr Heimsljósi væri álflca
fáránlegt að hefja miklar umræður um
ævi Magnúsar Hjaltasonar út frá þeirri
mynd, eins og að skeggræða nú „sann-
leikann" út frá mynd Mel Gibsons upp
úr guðspjöllunum. En þær umræður
eru nú þegar hafnar og orðnar hinar
íjömgustu. Á heimasíðu hins dular-
fulla bloggara Badabing lætur skrifari
sér hins vegar fátt um finnast: „Ég ætl-
aði að fara á forsýningu á Jesúmynd-
inni hans Mels Gibson í dag en náði
ekki að loka blaðinu tímanlega og
sendi því Dignus í minn stað. Ég er svo
sem ekkert að svekkja mig á þessu þar
sem ég hef mátulega mikinn áhuga á
þessari mynd. Ég meina hvað þarf að
segja og filma þessa sögu af Krosslafl
oft?
Það er ekki eins og þetta sé spenn-
andi og ef fólk sá ástæðu til að kvarta
yfir því að það vissi að Titanic myndi
enda með því að dallurinn sykki hvað
má þá segja um píslarsögu himna-
draugsins sem smollinkríaði móður
sína? Ég er sjálfsagt ekki að skemma
íyrir neinum þó ég upplýsi það hér og
nú að hann endar á krossinum."
Á vefnum Vantrú.net er reyndar að
finna mildnn umræðubálk sem snertir
dáfítíð umræðumar um hvort mynd
Gibsons „kenni Gyðingum um“ kross-
festinguna eður ei. Þær hóf einhver
sem kallar sig því hógværa nafni
„Frelsari" og fjargviðrast yfir því að
Passíusálmamir séu hafðir í miklum
metum hérlendis, því í þeim sé að
finna allsvæsið Gyðingahatur. „Frels-
arinn" segir. „Sökum þreytu eða
guðsótta áttar fólk sig ekki á því að
innihald þeirra er best varðveitta þjóð-
arskömm olckar íslendinga. Ég er viss
um að ef stofnun Simon Wiesenthal
fengi þýðingu af sálmunum í sínar
hendur þyrftu ýmsir að biðjast opin-
berlega afeökunar... Á hverjum degi í
Rfldsútvarpinu fyrir páska eru sálm-
amir lesnir í útvarpi. Þeir eru einnig
kenndir í skólum og til þeirra vitnað af
mætum mönnum á ögurstund. Passí-
an er dálætí Þjóðkirkjunnar þar sem
hún kemst næst guðspjöllunum að
heilagleika. Á einhvem ótrúlegan hátt
hefúr kristín trú og íslenskur þjóð-
rembingur blindað sýn. Staðreyndin
er sú að Passíusálmamir em uppfúllir
af óafsakanlegu Gyðingahatri séra
Hallgríms. Gyðingahatur Saurbæjar-
klerksins hljómar í eyrum nákvæm-
lega eins og hatur Marteins Lúters,
læriföður Þjóðkirkjunnar, sem hún
kennir nafii sitt við...
Ég skora á Rfldsútvarpið á að hætta
þessum ógeðfellda upplestri á kenn-
ingum um „vondu Júðanna" þeirra
Hallgríms, Lúters og Hitlers. Aldrei
ættu þessir sálmar að sjást í skólum
landsfris né á opinberum stöðum. Af-
leiðingar samskonar áróðurs í Evrópu
kostuðu milljónir Gyðinga lífið með
skelfilegri þjáningu og með ævarandi
skömm fyrir gerenduma. Þann hryil-
ing má aldrei endurtaka og við berum
siðferðilega ábyigð sem ekki er hægt
að skorast imdan."
Rétt er að taka fram að þessi skrif
„Frelsara" hafa ekld vakið einróma
hrifhingu þeirra sem skrifa á Vantrú.