Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2004, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2004, Page 4
4 LAUGARDAGUR 13. MARS 2004 Fréttir DV Hótanirí Þorlákshöfn „Okkur hafa borist til- kynningar um að Heimir hafi átt í hótunum við bæj- arbúa," segir Þröstur Brynj- ólfsson, yfirlögregluþjónn á Selfossi. DV hefur greint frá aðstæðum Sigurgeirs Krist- inssonar, þroskahefts manns, sem búið hefur á lofti Trésmiðju Heimis í Þorlákshöfn. Þar hefur hann þurft að þola harðræði vinnufélaga sinna sem með- al annars hafa leikið sér að því að blanda laxerolíu í mat hans. Brynjar Heimir Guðmundsson, eigandi tré- smiðjunnar og umsjónar- maður Sigurgéirs, hefur ít- rekað slitið sambandi við blaðamann spurður um málið. Nú berast sögur af því að hann eigi í hótunum við þá íbúa í Þorlákshöfn sem láta sér annt um Sigur- geir. Lögreglan staðfestir þetta en tekur fram að 'eng- in kæra hafí enn verið lögð fram. Samsonar í innkaupum Samson Global Holding, sem er í eigu sömu manna og Samson eignarhaldsfélag sem á ráðandi hlut í Lands- bankanum, keypti í gær 6,45% hlut í Eimskipafélag- inu af Tryggingamiðstöð- inni. TM hagnaðist um 1.350 milljónir á viðskiptun- um. Á sama tíma keypti Samson eignarhaldsfélag stærri hlut í Landsbankan- um íyrir tæpa 2 milljarða króna. Gekk út með skjávarpann Skjávarpa var stolið úr verslun Bræðranna Orrns- son í Lágmúla í gærdag. Að sögn lögreglu mun þjófur- inn einfald- lega hafa gengið inn í verslunina og klippt á rafmagnssnúru skjá- varpans, tekið hann undir hendina og gengið út úr búðinni aftur án þess að starfsfólk yrði vart við neitt misjafnt íýrr en á allra síð- ustu stundu. Skjávarpinn kostar um 150.000 kr. Hnuplaðivigt íÁmunni Nokkuð var um að þjófn- aðir væru tilkynntir til lög- reglunnar í Reykjavík eftir hádegið í gærdag. Meðal annars var nokkuð dýr- mætri vigt hnuplað úr vín- búðinni Ámunni í Skeif- unni. Þetta er forláta gripur sem kostar 25.000 kr. Af öðr- um þjófnuðum má neína að úr bílskúr í Breiðholti var stolið gömlum peningaskáp og 20 flökunarhnífum og á Öldugötunni var hnuplað veski úr yfirhöfn. Maður sem útvegaði morfín fyrir Vaidas Jucevicius segist ítrekað hafa boðist til að koma honum til læknis. Þegar hann innti eftir ástandi Litháans fékk hann þau svör að honum væri batnað þegar hann var í raun látinn. Einn líkmanna segist saklaus. Dáinn Vaidas sanöur frískur Fertugur maður sem útvegaði morfín handa hinum þjáða Vaidasi Jucevicius segir sér hafa verið sagt að Vaidasi hafi verið batnað föstu- dagsmorguninn 6. febrúar. í raun hafði Vaidas andast þá um nóttina. Þetta kom fram við yfir- heyrslur á fimmtudag. Dyravörður reddar morfíni Morfínmaðurinn mun hafa starfað með Grét- ari Sigurðarsyni í dyravörslufyrirtæki Grétars. Hann var handtekinn á fimmtudag og leiddur fyrir dómara þar sem hann játaði að hafa útveg- að eitt spjald af Contalgin-töflum fyrir Vaidas. Maðurinn bar við lokaðar yfirheyrslur að hafa ít- rekað boðist fram aðstoð við að koma Vaidasi undir læknishendur. Því boði hafði verið hafnað. Vaidas varð fárveikur á fimmtudeginum 5. febrúar. Þann dag hafði hann ætlað að halda aft- ur úr landi en sneri við á leiðinni út á flugvöll þar sem hann var ekki ferðafær vegna veikinda sinna. Hann hafðist við í íbúð Tomasar Mala- kauskas í Furugrund í Kópavogi. Þar lést hann aðfaranótt föstudags. Maðurinn sem útvegaði morfínið sagðist hafa sett sig í samband við fé- laga Vaidasar um morguninn og þá fengið áður- greint svar um að Vaidas væri orðinn heill heilsu. Gáfu Vaidasi hægðateppandi lyf Arnar Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, staðfestir að morfínmaðurinn hafi verið handtekinn og færður fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur þar sem hann játaði aðild sína að málinu: „Það er staðfest að hann útvegaði lyfið. Furugrund Vaidas Jucevicius lést íþessari íbúð sem Tomas Malakauskas hefur haft á leigu I Furugrund I Kópavogi. Stífla myndaðist I Vaidasi þannig að 57 hylki með amfetamln komust ekki leiðar sinnar úr maganum og áfram meltningar- veginn. Félagar hans gáfu honum morfin. Lyfið leysist hægt upp í melt- ingarvegi og að aukaverkanir geti verið hægðatregða, önd- unarlömun, svimi og höfgi. I-Iins vegar liggur ekki fyrir hvaða áhrif lyfið hafði. Það liggur heldur ekki fyrir hvar maðurinn útveg- aði lyfið en reiknað er með að það hafi verið skrif- að út á lýfseðil," segir Arnar. Contalgin er afar sterkt verkjalyf sem til dæm- is er gefið krabbameinssjúklingum. Lyfið er eftir- sótt meðal eiturlyfjaneytenda sem virðast eiga býsna greiða leið að því gegnum ávísanakerfi læknastéttarinnar. Contalgin morfínhylkin áttu að lina þjáningar hins magastíflaða Vaidasar. Á doktor.is eru upplýsingar um eiginleika Contalg- ins. Meðal annars er sagt frá því að lyfið leysist hægt upp í meltingarvegi og að aukaverkanir geti verið hægðatregða, öndunarlömun, svimi og höfgi. Ekki liggur enn fyrir hvort og þá hversu stóran þátt morfínið átti í láti Vaidasar. Jónas kannast ekki við iík í skottinu Tomas Malakauskas játar aðild sína að lík- fundarmálinu á Neskaupstað samkvæmt heim- ildum DV innan lögreglunnar. Játning Tomasar, sem kemur í kjölfar játning- ar Grétars Sigurðarsonar, gerir að verkum að upplýst má telja um það hvernig andlát Vaidasar og förgun líks hans bar að höndum. Jónas Ingi Ragnarsson neitar enn allri aðild að málinu. Staða hans virðist þó afar veik gegn framburði Grétars ogTomasar. Jónas hefur með- al annars gengist við því að hafa farið með Tom- asi á leigujeppanum á Neskaupstað og til baka. Talið er öruggt að lík Vaidasar hafi verið flutt í þeim jeppa austur á land. Allir þrír í eiturlyfjainnflutningi Ríkislögreglustjóri telur sig hafa nokkuð ljósa vitneskju um atburðarásina frá því Vaidas kom til landsins og þangað til honum var steypt látn- urn fram af bryggjunni í Norðfirði. Rannsóknin beinist nú einkum að því að sanna aðild þre- menninganna ásamt Vaidasi að fíkniefnainn- flutningnum og hvort um fleiri tilfelli innflutn- ings var að ræða. Sú rannsókn fer fram bæði hér- lendis og í Litháen. Vaidas Félagi Grétars og Jónasar reddaði sterkum verkjalyfjum og bauðst til að koma honum undir læknishendur. Tomas Mala- Grétar Sigurðar- Jónas Ingi Ragn- kauskas Staðfesti son Viðurkenndi arsson Játning játninguna sina I að hafa átt aðild hefur ekki fengist Héraðsdómi að Neskaupstað- frá honum.. Reykjavikur. armálinu. „Það lágu strax fyrir grunsemdir um að þeir sem nú eru í haldi hafi verið þátttakendur í inn- flutningnum," segir Arnar. „Allt sem komið hef- ur fram til þessa hefur rennt stoðum undir þenn- art grun. Rannsóknin núna beinist að því að kanna hvort þetta er einstakt tilvik eða hvort um fleiri tilvik eru að ræða.“ Kenningin um afdrif Vaidasar staðfest Atburðarrásin virðist vera sú sem áður hefur komið fram. Vaidas hafi veikst eftir komuna til landsins, ætlað heim til Litháen en ekki verið ferðafær vegna verkja. Hann hafi látist aðfar- anótt föstudagsins 6. febrúar á heimili Tomasar í Kópavogi. Líki hans hafi verið rúllað inn í filtteppi úr Byko og flutt þannig í Neskaupstað. Þar hafi líkinu verið varpað í sjóinn við neta- bryggjuna þar sem það fannst síðan fyrir helbera tilviljun miðvikudaginn 11. febrúar. Aska Vaidasar var flutt heim til móður hans í Telsiai í Litháen fyrr í vikunni. gar@dv.is Sniðugt morð á Skjá einum Úff, eins mikill aðdáandi og Svarthöfði er á íslenskum kvik- myndum, þá gat hann ekki stillt sig um að stynja eilítið við fréttunum af því að kaupa ætti allar myndir Kvikmyndasamsteypunnar, og þá Friðriks Þórs Friðrikssonar, til næstu 30 ára. Þetta vill Ríkissjón- varpið gera og minnir óneitanlega á þegar þeir keyptu allar sænsku myndirnar um árið og sýndu linnu- laust á besta sýningartíma. Og ekki er verið að halla á Friðrik og þær myndir sem hann hefur komið ná- lægt með því að segja að það sé full- mikið af hinu góða að kaupa sýn- ingarétinn af myndum hans næstu 30 árin. Engar myndir eru það góð- ar að Svarthöfði þoli að sitja undir þeim í 30 ár. Jafnvel þótt það bjargi ástsælasta leikara þjóðarinnar frá gjaldþroti. Hinsvegar eru það gleðitíðindi m Svarthöfði að loksins skuli vera búið að losa Sýn við enska boltann. Þetta var þeim mikill hælbítur og eyðilagði annars frábæra dagskrá. Ljósbláu myndirnar eru þar í sérflokki og skemmtilegir margir þættirnir þeirra. I raun ættu þeir bara að hafa erótíkina allsráðandi. Það hafa alla- vega fleiri áhuga á kynlífi en fót- bolta, svo mikið er víst. Þetta er líka svo sniðugt útspil hjá íslenska útvarpsfélaginu. Að losa sig við samkeppnisaðilann með þessum hætti. Á Skjá einn horfa eiginlega bara konur (sem eru farnar að ráða yfir fjarstýringunum, meira að segja). Þær vilja Dr. Phil, Judging Amy og hana Sirrý. Nokkuð ljóst að þær munu skipta um stöð og hætta að horfa á Skjá einn um leið og enski boltinn kemur á skjá- inn. Hann er sem sagt dauður og þarf Sigurður Gé Guðjónsson ekki að hafa áhyggjur af þeim framar. Svarthöföi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.