Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2004, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 13. MARS 2004
Fréttir 0V
Óáægja með
Evróvisjon
Stjórn FÍH gerir alvar-
legar athugasemdir við
ákvörðun forsvarsmanna
RÚV að fella niður
forkeppni fyrir
Söngvakeppni
evrópskra sjón-
varpsstöðva. í yf-
irlýsingu segir:„Foi
keppnin hefur orðið til þess
að margar tónlistarperlur
hafa litið dagsins ljós og
orðið ódauðlegar í meðför-
um vinsælustu hljómlistar-
manna landsins. Með nú-
verandi fyrirkomulagi eru
þeir útilokaðir frá
keppninni... og þjóðin
verður af góðri og spenn-
andi skemmtun."
Ákærð fyrir
barnsdráp
Bandarísk kona hefur
verið ákærð fyrir mann-
dráp vegna þess
að sonur hennar
fæddist andvana.
Melissa Ann
Rowland gekk
með tvíbura og
munu læknar ít-
rekað hafa ráðlegt
henni að láta taka
börnin með keisaraskurði.
Þessu hafnaði Rowland á
þeim forsendum að hún
kærði sig ekki um ör sem
fylgir slíkum skurði. Hún
fæddi tvíbura þann 13.
janúar sl. og var annar
þeirra andvana. Saksókn-
ari í Salt Lake-borg telur að
Rowland hafi með ákvörð-
un sinni verið völd að
dauða barnsins. Málið
hefur valdið miklu
fjaðrafoki í Bandaríkjunum
og ekki inunu fordæmi fyr-
ir því að fólk sé ákært fyrir
að fylgja ekki ráðlegging-
um lækna. Rowland neitar
sök í málinu og segir nú að
hún hafi ekkert á móti
keisaraskurði. Hún getur
átt yfir höfði sér lífstíðar-
fangelsi verði hún fundin
sek fyrir dómstólum.
Sigurður Viggósson
„Já,já, hingað er að koma nýr
bæjarstjóri frá Siglufirði sem
ákveðið hefur verið að sam-
þykkja," segir Sigurður Viggósson,
framkvæmdastjóri Odda fisk-
vinnslu á Patreksfirði og bæjar.-
stjórnarmaður Vesturbyggðar.
Sigurður er i minnihluta en list vel
á Guðmund Guðlaugsson sem
hefur meðal annars sér til ágætis
að vera reynslumikill á sviði bæjar-
stjórnarmála. „Það er látið vel af
honum. Ég hitti hann i gærog við
fyrstu kynni líst mér vel á hann."
Það stefnir i rólega helgi á Patreks-
firði enþar safna mennnú kröft-
um til að taka vel á því að viku
Landsíminn
liðinni.„Þá halda fyrirtæki og
stofnanir sameiginlega árshátíð
og er búist við 300 manns. Við
erum alltafmeð heimatilbúin
skemmtiatriði og verður þá
væntanlega skotið á heimamenn
en vonandi í hófi. Jú, og svo er
náttúrlega Patreksdagurinn þann
17. þessa mánaðar. Þá mun mæta
Trió Björns Thoroddsen. Ekki má
gleyma því," segir Sigurður. Mikil
rigning hefur verið fyrir vestan eins
og viðast hvar á landinu og
enginn snjór. Þeir gráta þaðsnjó-
sleða- og skiðamenn en fleiri eru
þó til að fagna snjóleysinu
Fjórir sendiherrar eru 65 ára eöa eldri, þar af þrír fyrrum ráðherrar Alþýðuflokks-
ins. Einn af þeim er Jón Baldvin Hannibalsson sem setti þá reglu sem utanríkisráð-
herra að sendiherrar ættu að jafnaði ekki að vera eldri en 65 ára í starfi. Hann varð
sjálfur 65 ára fyrir þremur vikum. Uppstokkun á sendiherrastöðum.framundan.
Baldvins hittir
snn
Menn í utanríkisþjónustunni og stjórn-
málum velta fyrír sér hvort Halldór
hyggist skipa í stöður þeirra manna
sem nú eru að komast á aldur, áður en
hann lætur afembættinu.
Þegar Jón Baldvin Hannibalsson var utanríkis-
ráðherra setti hann þá reglu að sendiherrar ættu
ekki að vera lengur í embætti í útlöndum þegar
þeir næðu 65 ára aldri. Hann segir þetta hafa ver-
ið gert til að laga utanríkisþjónustuna á sínum
tíma. „Ég setti innanhússreglur á sínum tíma sem
voru tvær," segir Jón Baldvin. „Önnur var um að
sendiherrar ættu að jafnaði ekki að vera lengur en
átta ár samfellt í stöðu í útlöndum og hin um að
sendiherrar ættu að jafnaði ekki að vera eldri en
65 ára í embætti,“ segir hann. Jón Baldvin segir að
á þeim tíma sem reglurnar voru settar, hafi marg-
ir sendiherrar verið samfellt lengi í útlöndum,
sumir hátt í þrjá áratugi.
Sjálfur 65 ára
Þann 21. febrúar síðastliðinn varð Jón Baldvin
sjálfur 65 ára. Hann hefur verið sendiherra í
Helsinki í rúmt ár. í árslok 2005 eru komin átta ár
síðan hann fór fyrst til sendiherrastarfa. Síðar á
árinu ná tveir aðrir sendiherrar sem eru fyrrver-
andi ráðherrar Alþýðuflokksins 65 ára aldri. f nóv-
ember nær Eiður Guðnason, sendiherra í Kína,
áfanganum og í desember verður Kjartan Jó-
hannsson sendiherra í Brussel 65 ára. Allir þessir
Ungir menn á uppleið Kjartan Jóhannsson sendiherra í
Brussel og Eiður Guðnason sendiherra i Kina. Verða báðir 65
ára siðar á árinu.
menn hafa verið skamma hríð í sínum stöðum. í
Tókýó situr Ingimundur Sigfússon sem sendi-
herra en hann varð 66 ára í
janúar.
Geta unnið
áfram fyrir
ráðuneytið
Gunnar
Snorri Gunn-
arsson, ráðu-
neytisstjóri í
utanríkis-
ráðuneytinu,
segir að 65 ára
reglan sé inn-
anhússregla sem
sé notuð til viðmið-
unar. „Fólk getur átt
von á því að það styttist
í útivistinni þegar það
hefur náð 65 ára aldri,“
segir hann. Ráðuneytið
sækist gjarnan eftir fram-
haldi á vinnu sendiherra þótt
þeir hafi náð þessum aldri.
Til að mynda sinnir
Björn Dagbjartsson
verkefnum fyrir við-
skiptaskrifstofu
Jón Baldvin Hannibals-
son Setti viðmiðunarreglu
um að sendiherrar ættu ekki
að vera eldri en 65 ára i
embætti i útlöndum enernú
sjálfur orðinn 65 ára.
ráðuneytisins þótt hann sé orðinn 67 ára. Hann
var sendiherra í Mósambík, þar til fyrir fáeinum
mánuðum.
Skipar Halldór í stöðurnar?
Það er utanríkisráðherra sem skip-
ar sendiherra og á undanfömum
árum hefur Halldór Ásgrímsson
skipað marga stjórnmálamenn
í sendiherrastöður. Síðast var
Tómas Ingi Olrich gerður að
sendiherra í París en hann
tekur ekki við því starfi fyrr
en síðar á árinu. Menn í ut-
anríkisþjónustunni og stjóm-
málum velta fyrir sér hvort
Halldór hyggist skipa í stöður
þeirra manna sem nú eru að
komast á aldur, áður en hann
lætur af embættinu til að verða
forsætisráðherra í haust, eða
hvort hann láú eftir-
manni sínum það eftir.
kgb@dv.is
-
Þrenging á fæðingarvegi
Konur vilja ánægjulegt kynlíf
„Það kemur fyrir að konur óski
eftir svona aðgerð en ég held að það
tengist í flestum tilfellum óþægind-
um sem rekja má til erfiðra fæðinga,'1
segir Arnar Hauksson, kvensjúk-
dómalæknir hjá Mæðravernd, um
orðróm þess efnis að konur sækist í
auknum mæli eftir aðgerðum sem
þrengi fæðingarveg þeirra. Þannig á
ánægja þeirra í kynlífi að aukast. Arn-
ar kannast ekki við að aukist hafi að
konur óski eftir því að læknar géri
þessa aðgerð eingöngu ánægjunnar
vegna.
Hjá Mæðravernd geta konur fyllt
út lista þar sem ýmsar sérþarfir eru
skráðar. Meðal þess eru óskir um að
gert sé við ör sem myndast hafa
vegna þess hve illa þær hafi rifnað f
fyrri fæðingum. „Það er talsvert um
að konur séu ekki ánægðar með sig
eftir fæðingar og þær finni til allt
annarrar upplifunar í kynlífinu en
áður,“ segir Arnar en þá eru konur
teknar inn eftir að þær hafa jafnað sig
eftir fæðingu og útséð um að þær
verði aftur samar.
Amar neitar ekki að konur leiti til
lækna vegna þess að þær vilji aðgerð
sem geri þeim kleift að njóta kynlífs
betur. Það sé hins vegar ekki endilega
nýtt og hefur Arnar ekki orðið þess
var að beiðnum hafi fjölgað.
Rafn Ragnarsson lýtalæknir segir
að konur leiti ekki með þessar beiðnir
til lýtalækna og er á því að um sögu-
sagnir séu að ræða. „Er þetta ekki bara
í tengslum við umræður um lýtaað-
gerðir. Ég held að svo sé og jafnvel
komið beint frá Ameríku," segir Rafn
sem bendir á að mikið sé rætt um
þessi mál vegna fjölmiðlaumfjöllunar.
Konur vilja gott kynlíf Ekki hefuraukist
að konur biðji lækna gagngert um aðgerð til
að njóta ásta betur með því að þrengja
leggöngin.