Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2004, Page 20
20 LAUGARDAGUR 13. MARS 2004
Fókus D V
Heioarlegur falsari kaupir
l______________________________________________r___________________________________________;_______u.___ * ■ ■_ ■ ' «"% 'T' i ■*'
Jónas Freydal Hann er ánægöur með aö hafa áfrýjaö málinu en hann heldurþvl fram að ekkert sé að marka þessa sjálfskipuðu listaspekúlanta og er reyndarþeirrar skoðunar að þeir hafi
skipulega falsað og rangtúlkað listasöguna. „Tii marks um það erþessi fjöldi mynda sem ekki þekktust en eru nú knmnnr fmm ídnnsliðsið hiá Rruun "
Jónas Freydal, sak-
borningur í stóra mál-
verkafölsunarmálinu,
situr úti i Kanada og
undirbýr mál sitt áður
en það kemur fyrir
Hæstarétt. Hann hef-
ur fengið augastað á
málverkauppboði í
Kaupmannahöfn þar
sem má gera reyfara-
kaup. Um leið og
hann segir afþeim
notarJónas tækifærið
og sendir listfræðing-
um íslands tóninn.
Eg er alveg ákveðinn í að kaupa
einhver verk. Gera má göð
kaup. I mínum augum er þetta
alls ekki óeðlilegur fjöldi af mynd-
um. Ég hef alltaf haldið því fram að
það sé alveg hellingur af myndum á
markaðnum í Danmörku," segir
Jónas Freydal, sem dæmdur var af
Hæstarétti á síðasta ári fyrir að hafa
vitandi vits selt tvær myndir sem
taldar eru falsaðar. Málinu var áfrýj-
að af öllum aðilum, bæði sakborn-
ingunum Jónasi og Pétri Þór Gunn-
arssyni sem og saksóknara.
Danski uppboðshaldarinn Knud
Bruun býður nú fram hvorki meira
né minna en 27 myndir eftir nokkra
af meisturum hins íslenska mál-
verks. Meðal listmálaranna eru þrjú
verk eftirÁsgrím Jónsson, fimm eftir
Kjarval og fjögur verk eftir Þórarin B.
Þorláksson en verk eftir þessa snill-
inga voru til skoðunar í því sem
nefnt hefur verið stóra málverka-
fölsunarmálið.
Ótrúlegt framboð meistara-
verka
Þegar fölsunarmálið var tekið
fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur þótti
sú staðreynd hversu mörg íslensk
verk voru í umferð í Danmörku
benda til þess að þau væru fölsuð.
Um var að ræða 102 verk en
einungis þótti sannað að innan við
tíu væru fölsuð. Meðal annars kom
þetta sjónarmið fram í vitnisburði
Ólafs Inga Jónssonar forvarðar en
hann var (og er) einn helsti ákær-
andi í málinu.
„Voru það ekki bara orð Ólafs
Inga?“ spyr Jónas á móti en hann
dvelur nú í Kanada og býr sig undir
réttarhöldin sem fram undan eru í
Hæstarétti. „Hann hlýtur að fara að
taka þau orð aftur þar sem svo virð-
ist sem íslenskum myndum á mark-
aðnum í Danmörku hafi ekki fækkað
þó svo að báðir sakbomingamir sé
hættir að kaupa og selja í Dan-
mörku."
Að sögn Jónasar gerði Ólafur á
sínum tíma samanburð á verkum
seldum í Gallerí Borg og í Klaustur-
hólum. „Hann gleymdi bara að
minnast á að Klausturhólar voru
búnir að loka á þeim tíma sem hann
gerði sainanburðinn. Ég mun ekki
gera samanburð á sölu verka hjá Bm-
un og Gallerí Borg, enda er Gallerí
Borg búið að loka svo slíkur saman-
burður væri eins og svo margt annað
sem komið hefur frá Ólafi, ákaflega
hjákátlegur." Jónas er þeirrar skoð-
unar að nægt ffamboð sé á verkum
eftir íslenska meistara í Danmörku.
Skjálfskipaðir listspekúlantar
DV gat ekki stillt sig um að spyrja
Jónas, hinn meinta falsara, hvort
umræddar myndir á væntanlegu
uppboði Bruun væm falsaðar. Jónas
grípur til háðsins: „Ég tel að þetta sé
allt meira eða minna falsað þetta
dót. Nema þá að listfræðingarnir
sem vitnuðu fyrir Héraðsdómi hafi
ekki verið að segja satt. Það em sér-
staklega 4 myndir eftir Þórarin B.
sem ættu að vera falsaðar, því slíkar
myndir áttu að vera svo rosalega
sjaldgæfar og myndverk eftir hann
frá Danmörku enn sjaldgæfari.
Einnig má benda á að í þeim fáu til-
fellum sem fylgir eigendasaga em
þær frá látnu fólki. Fræðingunum
hlýtur að finnast þetta hljóma kunn-
uglega. Það sama á við um myndir