Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2004, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2004, Síða 28
28 LAUGARDAGUR 13. MARS 2004 Fókus DV Aðbúnaður þeirra sem minna mega sín s.s. öryrkja, fatlaðra, aldraðra og þroskaheftra hefur verið talsvert til umræðu eftir að mál Sigurgeirs Kristinssonar á Þorlákshöfn kom upp í vikunni. Víða vantar úrræði fyrir þá sem eiga um sárt að binda og margir einangrast í eymd sinni. Mála- flokkarnir skiptist á milli ríkis og sveitarfélaga og einnig ráðuneyta. Þessir stjórnsýsluaðilar benda svo hver á annan þegar fólk leitar réttar síns. Það er mál manna að stjórnvöld hafi alla burði til að binda enda á efnislega fátækt í landinu en þrátt fyrir það breikkar bilið á milli hinna ríku og fátæku. íslendingar eyða líka helmingi minna í velferðarmál en nágrannalöndin. „Ýmsu þarf að breyta til betri veg- ar og brýnt að gera það því víða er brotið á fötluðum og fjölskyldum þeirra og þeim boðið upp á aðstæður sem eru fjarri því að vera í lagi," segir Gerður A. Árnadóttir læknir sem er auk þess formaður Foreldra- og styrktarfélags Öskjuhlíðarskóla. Hún segir forgangsröðun stjórnmála- manna skrýtna og þjóðfélagið ekki gera ráð fyrir tilveru þeirra sem hvað minnst hafa. Lítill skilningur ráðamanna „Aðbúnaður þroskaheftra bama er t.d. mjög bágur. Það vantar stuðn- ingsúrræði því oft er mikið álag á þessum fjölskyldum þar sem stór hluti barnanna er með hegðunar- vanda og geðræn einkenni. Fjölskyld- urnar hafa ekki allar ömmur, afa, ffænkur og ffændur sem geta hjálp- að,“ segir Gerður og bendir á hversu langur biðtími sé í skammtímavistun fyrir böm. „Þetta geta verið mörg ár og stuðningsfjölskyldur þarf fólk að finna sjálft. Svo hefur verið deilt um hverjir eigi að greiða fyrir skóladag- vistun fadaðra barna sem skapar mik- ið óöryggi og þetta heftir um leið að- Gerður A. Árnadóttir Segir forgangsröðun stjórnvalda einkennilega. gang foreldra að atvinnulífinu sem leiðir til verri fjárhags," segir Gerður, sem segir þetta leiða til þess að börn- in séú höfð mikið heima sem leiði til ákveðinnar einangrunar. Þessi börn eiga mörg hver einu vini sína í skólanum og það er þeim félagslega mikilvægt að skóladagvistun sé tryggð allan grunnskólan og raunar á framhaldsskólastigi einnig. Hún segir skilning ráðamanna vera lítinn þó að hún bindi vonir við að nýr félags- málaráðherra geri eitthvað í málun- Benda hver á annan „Forgangsröðun stjórnmála- manna er oft skrýtin. Það vom til nægir fjármunir fyrir NATÓ-fundinn, „Forgangsröðun stjórnmálamanna er oft skrýtin. Það voru til nægir fjármunir fyrir NATÓ-fundinn, sendiráð og sérsveit lögreglu en engirpen- ingar fyrir þá sem mest þurfa á þeim að haida." sendiráð og sérsveit lögreglu en engir peningar fyrir þá sem mest þurfa á þeim að halda," segir Gerður og bæt- ir við að biðtími eftir greiningu á ein- hverfu sé tvö ár. „Málefni fadaðra skiptast svo á milli ríkis og sveitarfélags þannig að það er stöðugt verið að senda fólk á milli staða sem benda hver á annan. Það þarf að flytja þessi málefni undir einn ábyrgan aðila," segir Gerður sem vill líka að embætti umboðsmanns fatlaðra verði komið á fót. Slíkur um- boðsmaður er til fyrir íslenska hestinn en ekki faUaða. Þar fyrir utan er föti- uðum ekki tryggð almennileg skóla- ganga og ekkert tekur við þegar nem- endur hafa útskrifast úr framhalds- skóla. Gerður segir jafhframt mikinn skort á vernduðum vinnustöðum og fjölbreyttari atvinnutilboðum fyrir faUaða. „FaUað fólk flytur líka að heiman eins og aðrir en biðlistar á sambýli eru mjög langir. Það er mikilvægt að þjóðfélagið viðurkenni sérstöðu faU- aðra og geri ráð fyrir tilveru þeirra í samfélaginu." Peð í þjóðfélaginu „Það eru forréttindi Laugar- nessafhaðar hversu breiður þjóðfé- lagshópur hér er enda er annað slag- orða safnaðarins: Allir aldurs- og heilsufarshópar saman," segir séra Bjarni Karlsson presmr í Laugarnes- kirkju. í störfum sínum innan kirkj- unnar hefur hann kynnst margvís- legri neyð og meðal sóknarbarna hans em íbúar Hátúns - þar sem margir af þeim sem minnst hafa búa. „Þjóðkirkjan hefur mikilvægu þjóðfélagslegu hlutverki að gegna við að vinna gegn einangrun fólks. í þess- ari velferð okkar virðist ekkert hafa dregið úr einangrun fólks vegna hvers kyns vítahringja. Mörgum f samfélag- inu finnst eins og þeir gangi milli þils °g veggjar og séu peð í þjóðfélaginu vegna þess að þeir falla ekki undir neina viðurkennda skilgreiningu," Séra Bjarni Karlsson Segir þjóðfélagið hafa aila burði til að eyða •efnistegri fátækt. segir Bjarni, sem telur almenning vera of upptekinn af efnislegum gæð- um í stað þess að horfa á þau raun- verulegu. „Við hengjum verðmiða á allar persónur en þegar við komum inn í samfélag kirkjunnar uppgötvum við að við emin öll bræður og systur sem emm samferða í þessari veröld. Við emm of upptekin af því að vera flát fyrir lífsgæði í stað þess að vera far- vegur þeirra - það er vandinn," segir Bjarni, sem telur það vandræðalegt hversu margir eigi um sárt að binda þrátt fyrir ríkidæmi þjóðarinnar. Óraunveruleiki markaðarins „Við emm enn með einstæðinga sem lifa í litlum leiguherbergjum úti í bæ og og lepja dauðann úr skel með strípaðan 80 þúsund á mánuði. Það er átakanlegur veruleiki að við skul- um enn vera að skapa fátækt í kring um okkur þegar við höfum allt sem þarf til að kippa þessu í liðinn. Við emm of upptekin af tíðarandanum sem elur á græðgi, heimsku og óraun- sæi. Við emm óraunsæ á raunveruleg lífsgildi og svo þegar óhjákvæmileg áföll dynja yflr okkur standa svo margir einir. Það er þetta andlega tómarúm sem er stærsta vandamál- ið,“ segir Bjarni, sem telur þó ákveðn- ar pólitískar framfarið hafa orðið í málefnum þeirra sem minnst hafa á síðustu ámm. Hann segir þó enn vera langt í land og þó að einhvern tíma náist að eyða efnislegri fátækt verði andiega fátæktin enn til staðar. „Raunvemleg hamingja er fólgin í raunvemlegum lffsgildum, og besti leiðbeinandinn sem ég þekki í þeirn efhum heitir Jesús frá Nasaret. Lög- mál kærleikans er raunverulegt en lögmál markaðarins er óraunveru- leiki, því hver græðir? Við komum nakin inn í þennan heim og fömm nakin burt." Það hjálpar enginn nema maður sjálfur „Aðbúnaður fatlaðra er til skamm- / , ,. ar," segir Bragi Sveinsson, 59 ára gamall //‘SienÚingar erU *búi í Hátúni 12. Hann hefur verið nlmonnt hnnnís. bundinn við hjólastól frá árinu 1988 en £W,,fcííí”r pQOMg hefúr búið í Flátúninu í 10 ár. Hann seg- að ef einhvor ir málefni fatlaðra og öryrkja í algerum lamasessi og að flest sé gert vitlaust. veikist þá er hon „Það vantar öll hjálpartæki fyrir okk- , . ur og öllu sem gert er fyrir okkur er rað- Um OOra gleymt að vitlaust niður. Það þarf róttækar _ hvnrt com hnX breytingar á öllum þessum málaflokki. nvtjrt pOO Ég fór t.d. norður í land í sumar og erU VÍnÍt eðn komst ekki á klósett fyrr en í Varmahlíð. . ' Ég stoppaði alls staðar á leiðinni en það stjórnvöld." var bara ekki gert ráð fyrir fólki í minni aðstöðu," segir Bragi, sem er ágætíega staddur fjárhagslega að eigin sogn ólíkt mörgum í hans stöðu. „Ég hef það ágætt en það er ekki þannig með alla. Eg myndi vilja sjá miklar breytingar á örorkubótun- um þanmg að fólk geti lifað á þeim - staðan er nefnilega ekki þannig í °8 þessi öryrkjadómur er til skammar," segir Bragi, sem fær 56 lúsund á mánuði í örorkubætur og 50 þúsund í lífeyri. „Það þarf að taka málaflokkinn í gegn frá A til Ö. Ég held að það séu aUir sammála um það að aðbúnaður fatlaðra sé slæmur. Það er mikill skortur á húsnæði og það er til skammar. Þetta þjóðfélag er þannig að tað sem er gert fyrir fatlaða hefði betur verið sleppt. Ráðamenn hafa aldrei verið fatlaðir og þekkja þetta ekki," segir Bragi og tekur dæmi af tvt þegar Þórólfur Arnason borgarstjóri eyddi einum degi í hjólastól „Svo þegar hann kom að hindrun þá stóð hann bara upp og gekk. Ég stend ekki upp þegar hindranir verða á mínum vegi - þetta er bara mðurlæging af versta tagi. Ráðamennirnir eru allir svona, t.d. Jóhanna Sigurðardóttir. Hvað hefur hún gert? Þetta er allt í munninum á henni, í það minnsta hefur hún ekki sýnt neitt í verki," segir Bragi, sem hefur áhyggjur af því margir í hans stöðu einangrist. „Það eru þvi' miður mörg dæmi um það. íslendingar eru almennt tannigað ef einhver veikist þá er honum bara gleymt - hvort sem það eru vinir eða stjórnvöld. Það er t.d. alveg vonlaust að eiga við Trygg- ingastofnun og ef menn ætía að fá það sern þeir eiga rétt á þurfa þeir beinlínis að vera með sérfræðing í málinu. Ef ég væri t.d. í Danmörku ryrfti ég ekki að hitta nema einn mann og svo sjá þeir um afganginn. Hérna er þetta tómt streð og enginn hjálpar manni nema maður sjálf- ur, segir Bragi, sem ætlar þó ekki að gefast upp í baráttu sinni „Eg vil fyrst og fremst að við höfum það góðar tekjur að við getum lifað en það er langt frá því að það sé raunhæft í dag." Bragi Sveinsson Segir ráðamenn niðurlægja fatlaða með framkomu sinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.