Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2004, Qupperneq 36
, 36 LAUGARDAGUR 13. MARS 2004
Sport DV
Vandræði með
tungumálið
Franski landsliðsmaður-
inn Claude Makelele hefur
átt í erfiðleikum með að að-
lagast lífinu hjá enska lið-
inu Chelsea en hann var
keyptur frá Real Madrid
síðasta sumar. Vandamál
Makelele er að hann talar
litla sem enga ensku og
þrátt fyrir að hann sitji á
skólabekk gengur hægt hjá
honurn að ná tökum á
tungumálinu. „Ég tala
frönsku og spænsku en
"'hnskan er mjög erfið. Ég
skil ekki samræðurnar sem
fara fram í búningsklefan-
um en WUliam [Gallas] og
Jimmy [Floyd Hasselbaink]
reyna að þýða fyrir mig. Ég
vona bara að ég nái fljót-
lega tökum á enskunni því
að Chelsea er frábært félag
og það er gaman að taka
þátt í því sem er að gerast
hér,“ sagði Makelele.
Léttari leið
fyrir AC Milan
í gær var dregið í átta liða
úrslitum meistaradeildar
-Evrópu í knattspyrnu.
Evrópumeistarar AC Milan
geta glaðst yfir drættinum
því að þeim tókst að forðast
Real Madrid og Arsenal allt
þar til í úrslitaleiknum. AC
Milan mætir spænska liðinu
Deportivo í átta liða
úrslitunum og síðan sigur-
vegaranum úr leikjum Porto
og Lyon í undanúrslitum.
Það verður sannkailaður
Lundúnaslagur þegar
Arsenal og Chelsea mætast
en sigurvegararnir í þeim
' leikjum mæta sigurvegar-
anum úr leikjum Real
Madrid og Mónakó. Fyrri
leikir liðanna fara fram 23.
og 24. mars en þeir seinni 6.
og 7. apríl.
■
Næstu vikur verða heldur betur viðburðaríkar hjá Arsenal. Félagið berst á þremur
vígstöðvum eins og staðan er í dag en næsti mánuður mun skera úr um hvort
draumur þeirra um þrennuna, deild, bikar og meistaradeild lifir.
Fjónip úpslitaleikip á enskpi
gpund á liártán dögum
Það skýrist í næsta mánuði hvort Arsenal getur unnið hina eftirsóttu þrennu, deild, bikar og
meistaradeild. Framundan eru fjórir leikir gegn liðunum í öðru og þriðja sæti ensku
úrvalsdeildarinnar í öllum þessum keppnum og verður spennandi að sjá hvort Arsenal heldur áfram
dampi.
Arsenal mun spila gegn Chelsea í meistara-
deildinni og verður íyrri leikurinn spilaður á
Stamford Bridge 23. eða 24 mars. Síðan tekur við
heimaleikur gegn Manchester United í ensku
úrvalsdeildinni 27. mars og viku seinna er komið
að leik sömu liða í undanúrslitum ensku
bikarkeppninnar á Villa Park í Birmingham. í
vikunni á eftir tekuir síðan Arsenal á móti Chelsea
á Highbury í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum
meistaradeildarinnar.
„Andinn í okkar herbúðum er
stórkostlegur, sá besti sem ég
hefséð í minni tíð hjá Arsenal."
Ef allt fer að óskum verður liðið með að
minnsta kosti níu stiga forystu í deildinni, í
úrslitum bikarkeppninnar, þar sem liðið myndi
mæta Sunderland, Millwall eða Tranmere, og í
undanúrslitum meistaradeildarinnar þar sem
andstæðingarnir verða að öllum líkindum
spænska stórliðið Real Madrid.
Aldrei komist í undanúrslit
David Dein, stjórnarformaður Arsenal, sagði
eftir dráttinn í gær að það yrði ekki auðvelt fyrir
Arsenal að slá Chelsea út.
„Við höfum aldrei komist lengra en í átta liða
úrslit í meistaradeildinni og þetta verður í fyrsta
sinn sem lið frá London kemst í undanúrslit
keppninnar. Við höfum spilað þrívegis við Chelsea
á þessu tímabili og unnið alfa leikina og vonandi
verður það sama uppi á teningnum í þessum
leikjum. Andinn í okkar herbúðum er
stórkostlegur, sá besti sem ég hef séð í minni tíð hjá
Arsenal, og leikmannahópurinn samanstendur af
heimsklassaleikmönnum. Það verður ekki auðvelt
að slá Chelsea út en miðað við liðið sem við höfum
í dag þá eigum við mjög góða möguieika,“ sagði
Dein.
Chelsea hefur ekki unnið Arsenal í síðustu
sextán leikjum í deild og bikar en úr þeirra
herbúðum hljómaði þessi dráttur sem tækifæri til
að hefna fyrir töpin þrjú á þessu tímabiíi.
Arsenaf getur síðan á einni viku eyðilagt
tímabilið endanlega fyrir Manchester United.
Sigur gegn ensku meisturunum í deildarleiknum á
Highbury 27. mars myndi þýða að Alex Ferguson
og lærisveinar hans væru endanlega úr leik í
baráttunni um enska meistaratitilinn og vinni
Arsenal bikarleikinn líka er öruggt að Manchester
United endar þetta tímabil án tida. oskar&dv.is
Arsenal hefur spilað 27 leiki í úrvalsdeildinni án þess að tapa
Klára þeir mótið ósigraðir?
Þrjótarnir þrír
lausir gegn
tryggingu
Paul Dickov, Keith
Gillespie og Frank Sinclair,
sem liggja allir undir grun
um að hafa nauðgað þrem-
ur stúlkum á Spáni í síðustu
viku, var í gær sleppt úr
haldi gegn tryggingu en
þeir hafa dúsað í spænsku
fangelsi undanfarna viku.
Þeir eiga enn yfir höfði sér
ákærur en var sleppt gegn
26 milljóna króna
tryggingu. Þeir verða ekki
með Leicester í dag þegar
**iiðið mætir Birmingham.
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri
Arsenal, hefur lýst því yfir að honum
sé nákvæmlega sama um met eða
það hvort hans menn komist
ósigraðir í gegnum ensku
úrvalsdeildina á þessu tímabifi. Hann
segir að þegar upp verði staðið séu
það tidarnir sem skipta máii en ekki
árangur liðsins í deildinni.
Arsenal á eftir eUefu leiki í
deildinni og það hlýtur að kida
Wenger að klára deildina án taps.
Þau lið sem hafa tapað fæstum
leikjum í úrvafsdeildinni eru
Manchester United tfmabilin
1998-1999 og 1999-2000, Arsenal
2001-2002 og Chelsea 1998-1999 en
þau töpuðu öll þremur leikjum.
Arsenal tapaði aðeins einum leik í
gömlu 1. deildinni tímabilið
1990-1991 en eina liðið sem hefur
farið taplaust í gegnum efstu deild á
Englandi er Preston en liðið vann
alla 22 leiki sína tímabUið
1888-1889.
Þegar litið er yfir þá leiki sem
Arsenal á eftir þá eru það sex
heimaleikir og fimm útileikir. í dag
spilar liðið gegn Blackburn á Ewood
Park en fyrir utan það á liðið aðeins
tvo útileiki eftir, gegn Tottenham og
Newcastle, sem líta út fyrir að vera
erfiðir. Aðrir leikir eru gegn
Portsmouth og Fulham. Heimaieik-
irnir gegn Manchester United og
Liverpool gætu orðið erfiðir en leikir
gegn Bolton, Leicester, Leeds og
Birmingham ættu að færa liðinu tólf
örugg stig. Miðað við hvernig Arsenal
hefur spilað að undaförnu þá bendir
fátt tU annars en að þeir verði ekki
sigraðir á þessu tímabili.
Titlarnir telja Arsene Wenger, stjóri Arsenal,
segir að það skipti meira máii að vinna titla
en að fara ósigraðir i gegnum deildina