Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2004, Qupperneq 37
DV Sport
LAUGARDAGUR 13. MARS2004 37
Þrefalt hjá
Arsenal
Arsenal hirti bæði verð-
launin sem í boði voru í
febrúarmánuði í ensku
úrvalsdeildinni þegar leik-
maður og knattspyrnustjóri
mánaðarins voru valdir af
Barcleycard, styrktaraðila
úrvalsdeildarinnar. Arsene
Wenger, stjóri liðsins, var
valinn stjóri mánaðarins en
þetta var í sjöunda sinn
sem hann hlýtur þessa
nafnbót. Arsenal-leikmenn-
irnir Edu og Dennis Berg-
kamp voru valdir leikmenn
mánaðarins en þetta var
aðeins í annað sinn í sögu
úrvalsdeildarinnar sem
tveir leikmenn deila þeim
heiðri. í fyrra skiptið voru
það Stan CoUymore og
Robbie Fowler hjá
Liverpool tímabilið 1995 til
1996. Franski frarhherjinn
Thierry Henry var einnig
heiðraður fyrir að vera
fyrsti leikmaðurinn til að
skora 20 mörk í deildinni.
Williams
verðurað
bíða
Austurríkismaðurinn
Gerhard Berger, einn yfir-
manna kappakstursmála
hjá BMW, segir að Willi-
ams-liðið þurfi að bfða f
það minnsta fram á mitt
tímabil til að geta unnið
Ferrari í Formúlu 1 kapp-
akstrinum. „Bíllinn hjá
Williams er einfaldlega ekki
nógu kraftmikill eins og
staðan er í dag. Það er mikil
vinna framundan við að
þróa bílinn og mér sýnist
að það sé ekki raunhæft að
keppa við Ferrari fyrr en
keppnistímabilið er
hálfnað," sagði Berger.
Þrír landsleikir
við England
íslenska kvennalands-
liðið í körfubolta mun leika
þrjá landsleiki gegn
Englandi í lok maí en
leikirnir eru hluti af undir-
búningi liðsins fyrir við-
burðamkt sumar þar sem
liðið tekur þátt í 10 þjóða
alþjóðlegu móti í júlí og svo
Norðurlandamóti í ágúst.
íslenska kvennalands-
liðið hefur aðeins einu
sinni áður mætt enskum
stall-systrum sínum áður
en sá leikur tapaðist 44-59
á móti í Lúxemburg
íslenska kvennalandsliöið í knattspyrnu mætir því skoska í vináttulandsleik í
Egilshöllinni í dag og hefst leikurinn kl. 14. Þetta er fyrsti vináttulandsleikur
kvennalandsliðsins á íslandi í átján ár.
Góður undirbóningur
ivrir næstn verkefni
íslenska landsliðið í kvenna-
knattspyrnu mætir stöllum sínum
frá Skodandi í vináttulandsleik í
Egilshöllinni í dag og hefst leikur-
inn kl. 14.
Þessi leikur er fyrsti vináttuleikur
kvennalandsliðsins á heimavelli í
átján ár, síðan 1986 en þá lék liðið
gegn Sviss og fór með sigur af hólmi,
1-0, á Akranesi. ísland og Skotland
mættust síðast fyrir tíu árum í Glas-
gow og vann ísland leikinn, 4-1. Þá
skoraði Ásthildur Helgadóttir eitt
marka íslenska liðsins en hún er sú
eina úr hópnum núna sem lék í
þeim leik. Reyndar var Helena
Ólafsdóttir, þjálfari liðsins, einnig í
liðinu þá en hún mun væntanlega
láta sér nægja að sitja á bekknum í
dag. DV Sport ræddi við Helenu um
leikinn í gær.
Mikilvægt að hafa hallir
„Það er frábært að fá vináttu-
landsleik á íslandi, sérstaklega í mars
og það sýnir betur en margt annað
hversu mikilvægt það er fyrir íslenská
knattspyrnu að hafa hallir. Það verð-
ur sjálfsagt skrítin tilfinning íyrir
„Það er gott að fá
þennan leik til að sjá
hvar við stöndum á
þessum tímapunkti."
stelpumar að spila landsleik ■ inn-
andyra en ég hef þó ekki trú á því að
það eigi eftir að hafa mikil áhrif. Það
er langt síðan liðið spilaði síðast vin-
áttulandsleik og það er alveg ljóst að
þessi leikur er góður undirbúningur
fyrir komandi verkefni. Við eigum tvo
mikilvæga leiki í undan-keppni EM í
byrjun sumars og með þessum leik
og síðan leiknum gegn Hollending-
um í maí þá ætti liðið að koma vel
undirbúið til leiks," sagði Helena í
gær.
Aðspurð um skoska liðið sagði
Helena að hún byggist við hörkuleik.
„Þær hafa verið að spila mikið af
leikjum að undanförnu og það er
alveg greinilegt að það er mikill
metnaður lagður í kvennalandsliðið
hjá skoska knattspyrnusambandinu.
Þær hafa náð góðum úrslitum, meðal
annars jafntefli gegn Frökkum og það
eitt sýnir að þær em með öflugt lið.“
Misjafnt ástand
Helena sagði að ástandið á
leikmannahópnum væri misjafnt en
það væru þó flestar klárar í slaginn.
„Stelpurnar eru komnar mislangt
hvað varðar form. Það er gott að fá
þennan leik til að sjá hvar við
stöndum á þessum tímapunkti og
vinna síðan með það fram að
alvöruleikjunum," sagði Helena.
Valsstúlkan Laufey Ólafsdóttir á
við veikindi að stríða og valdi
Helena Sólveigu Þórarinsdóttur úr
KR í hennar stað. oskar@dv.is
Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari ÍBV:
Keyrum áfram á
okkar hraða leik
Aðalsteinn Eyjólfsson,
þjálfari segir að markmið
Eyjastúlkna sé klárt í tveimur
Evrópuleikjum í átta liða úr-
slitum í Eyjum um helgina - að
slá út geysisterkt króatískt lið.
ÍBV mætir RK Salonastit
Vranjic í dag klukkan 16:30 og á
morgun klukkan 12:10 en ÍBV
keypti heimaleikinn til Eyja.
„Við ætlum okkur áfram en
að sjálfsögðu emm við að fara
að glíma við mjög sterkt lið enda eru
engin slök lið eftir þegar þú ert komin
svona langt í evrópukeppninni. Til þess
að við náum þessum þurfum við að ná
tveimur toppleikjum og þá getum við
náð þessu markmiði okkar," sagði
Aðalsteinn sem hefur skoðað leiki frá
nýloknu HM kvenna þar sem 4 leik-
menn liðsins vom í aðalhlutverkum
með landsliði sínu.
„Þær hafa fjóra reynslumikla
landsliðsmenn innan sinna raða og
eru síðan með góða blöndu af eldri og
yngri leikmönnum. Við höfum hins
vegar heyrt af því að tvær af þeim eigi
við meiðsli að stríða og spili jafnvel
ekki þessa leiki og það mun ömgglega
veikja þeirra lið.“ En það em ekki bara
meiðslin sem geta sett strik í
reikninginn. Króatíska liðið kom seint
í gærkvöldi til landsins og ef
það verður ekki flugfært til
Eyja í dag bíður þeirra ferð
með Herjólfi sem ætti að auka
enn álagið við erfitt ferðalag.
„Við vitum að þær em að
koma úr erfiðu ferðalagi og
ætlum að láta reyna á þær. Við
höldum áfram að spila okkar
hraða leik og ætlum að keyra á
þær og sjá til hvernig þær
bregðast við því. Ég hef
undirbúið mitt lið vel og geri ráð fyrir
að þær muni spila að hætti króatískra
liða með 3:2:1 framliggjandi vöm. Við
höfúm lagt áherslu á að leysa slíka
vöm að undanförnu og ég hef engar
áhyggjur af sóknarleiknum okkar sem
mér finnst vera á mjög góðu róli. Við
þurfum hins vegar að laga
varnarleikinn okkar," sagði
Aðalsteinn.
Það em fleiri meiðsli sem hrjá
króatíska liðið því Alla Gokorian
meiddist á ökkla á æfingu í vikunni og
það er óvíst hversu mikið hún getur
tekið þátt í þessum leikjum.
„Ég tel að mínar stelpur séu á réttri
leið og við höfum fengið
evrópukeppnina sem bónus í vetur og
ætlum að standa okkur í þessum
leikjum," sagði Aðalsteinn.
Aðaisteinn
Eyjólfsson
Húsbréf
Innlausn
húsbréfa
Frá og með 15. mars 2004 hefst innlausn á útdregnum
húsbréfum í eftirtöldum flokkum:
4. flokki 1992 - 41. útdráttur
4. flokki 1994 - 34. útdráttur
2. flokki 1995 - 32. útdráttur
1. og 2. flokki 1998 - 23. útdráttur
Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu
laugardaginn 13. mars.
Innlausn húsbréfa fer fram hjá íbúðalánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
íbúðalánasjóður
Borgartúni 21 I 105 Reykjavík | Sími 569 6900 | Fax 569 6800