Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2004, Side 46
LAUGARDAGUR 13. MARS 2004
Síðast en ekki síst 0V
Fjölgun hjá Sigur Rós
Það fjölgaði um einn í Hólm-fjöl-
skyldunni á fimmtudag þegar Georg
Hólm, bassaleikari hljómsveitar-
innar Sigur Rósar og sonur hins
kunna fréttamanns Hauks Hólm,
l 1 ar,j eignaðist dóttur ásamt
LlLU kærustu sinni. Sú lida kom
í heiminn um hádegisbilið
síðastliðinn fimmtudag og
samkvæmt heimildum DV hefur
hún fengið nafnið Elena Hólm.
Fjölskyldan dvelur þessa dagana á
Spáni þar sem þau hafa nýverið fest
kaup á húsi og ætla að búa a.m.k.
um hríð. Fólk sem stendur Sigur Rós
nærri veltir því fyrir sér þessa
dagana hvort þessi fjölgun hjá Georg
komi til með að hafa einhver áhrif á
sveitina. Eins og kunnugt er var
Sigur Rós skírð eftir systur söng-
varans Jónsa og á nýjustu plötu
þeirra hafði eitt laganna vinnuheitið
Vaka, eftir dóttur trommarans Orra.
Elena gæti því mögulega komið til
með að sjást á einhverri plötu Sigur
Rósar í framtíðinni.
Georg í Sigur Rós Eignaðist dótturí
vikunni sem fengið hefur nafnið Elena Hólm.
Margirspá þvi að það nafn komi til með að
sjást istarfi sveitarinnar eins og fordæmi eru
fyrir.
• Nú er sú árstíð að árshátíðirnar
eru að bresta á. Auglýsingastofan
Fíton heldur einmitt sína um helg-
ina og er öllum starfsmönnum
boðið að lúxushótelinu Búðum á
Snæfellsnesi. Þar verður örugglega
Síðast en ekki síst
mikil gleði og hæg heimatökin því
Þormóður Jónsson, eigandi Fítons,
á jafnframt góðan hlut í hótelinu...
• Nýlega hvarf héðan af landi brott
hópur meðlima í hinum finnsku
Hells Angels sem samkvæmt öllu
virðast vera farnir að venja komur
sínar hingað. Þannig var Helgi tattú
á landinu nýver-
ið við að aðstoða
við uppsetningu
nýrrar tattústofu
í Hafnarftrði.
Helgi er búsettur
í Hollandi og er í
hollensku Hells
Angels samtök-
unum. í slagtogi
með finnsku
^okkurunum var rokkarinn, bassa-
leikari Mínuss, Þröstur, sem kallað-
ur er Johnny...
• Finnarnir voru í góðu yfirlæti á
íslandi og virðist sem tattú leiki
stórt hlutverk í starfseminni því
sagan segir að einn æðsti prestur
samtakanna hafi einmitt notað
tækifærið og lát-
ið tattúera sig á
JP-tattústofunni
við Laugaveginn.
Um nálina hélt
sjálfur Fjölnir
Bragason og
mun íslending-
um hafa verið
vikið brott til að
Finnarnir fengju
frið. Þó segir sagan að Helgi Bjöms-
son og Ingvar Þórðarson hafi
einhverra hluta vegna átt erindi
þangað og urðu víst fagnaðarfundir
með þeim og hinum finnsku
mótorhjólamönnum...
• Urnmæli Ólafs Aka Ragnarssonar
bæjarstjóra í Ölfusi þess efnis að
það væri í eðli mannanna að koma
la fram við minnimáttar, í tengsl-
um við fréttaflutning af aðstæðum
Sigurgeirs Kristinssonar, hafa vakið
Kojna ÁsQnrs Hræðist K6B
á íslandi
„Þetta var eins og KGB, sagði
Natalía við mig, skjálfandi af
hræðslu eftir aðgerðir lögreglunn-
ar,“ segir Ástþór Magnússon.
„Henni finnst við ekki njóta sama
öryggis og aðrir þegnar landsins;
síminn okkar er hleraður og
stöðugar njósnir í gangi."
í gærmorgun ætlaði lögreglan að
skila Ástþóri tölvum og öðrum
gögnum sem hún hafði gert upptæk
í húsleit fyrir nokkru. Ljósmyndari
DV brá sér á staðinn til að mynda
atburðinn. „Þegar lögreglu-
mennirnir sáu að ég var með
myndavél brunuðu þeir f burtu,“
segir ljósmyndarinn og bætir við að
nokkrum mínútum seinna hafi
síminn hringt hjá Ástþóri og löggan
verið á línunni.
„Þeir sögðu það útilokað að skila
tölvunum ef fjölmiðlar væru á
staðnum," segirÁstþór. „Svo bættu
þeir við að ég ætti sjálfur að koma
að sækja tölvurnar og bönnuðu mér
Natalía Wíum
eiginkona Ástþór:
Er búin að fánóga
aðgerðum óein
kennisklæddra lög
reglumannc
að blanda fjölmiðlum í málið."
Ástþór segir þessa hegðun óskiljan-
lega. „Fyrst koma þeir eins og
ræningjar á nóttu og taka tölvurnar
úr húsinu mínu og svo vilja þeir
ekki skila mér þeim til baka.“
Atburðir liðinna vikna hafa
valdið eiginkonu hans, Natalíu
Wíum, miklum ótta.
„Eitt sinn varð Natalía svo skelfd
að hún flutti út úr húsinu okkar um
tíma,“ segir Ástþór. „Það atvik átti
sér stað eftir að óeinkennisklæddir
lögreglumenn höfðu rifið mig út af
veitingastað, þar sem ég snæddi
með Natalíu og systur hennar, og
fært mig í varðhald." Ástþór bætir
við að hann hafi einnig örugga
vitneskju fyrir því að sími þeirra
hjóna sé hleraður.
„Að leggja það á nokkra mann-
eskju að búa við svona ástand á
íslandi í dag er náttúrlega ólíð-
andi," segir Astþór sem mun halda
áfram að berjast fyrir því að lögregl-
an skili honum tölvunum. Natalía
vildi hins vegar ekki veita DV viðtal
eftir atburði gærdagsins og sagði að
hún þyrfti fyrst að ná áttum - þrátt
fyrir að vera ýmsu vön úr sínu
heimalandi.
Áskriftarleikur DV Ánægð í
tuttugu ár
„Við höfum ábyggilega verið
áskrifendur í yfir tuttugu ár,“ segir
Heiðrún Hafliðadóttir vinningshafi
vikunnar í áskriftahappadrætti DV
sem staðið hefur yfir undanfarnar
vikur.„Pabbi er reyndar skrifaður
fyrir blaðinu en ég les það líka mjög
mikið. Sérstaklega bíósíðurnar og
slúðrið." Heiðrún fékk að launum
gjafabréf upp í flug fyrir tvo með
Iceland Express. „Kannski tek ég
pabba með en mig langar mest að
fara til London enda er ég að fara til
Danmerkur í sumar," segir Heiðrún
Jtónægð að lokum.
Vinningshafi vikunnar í áskriftaleik DV Heiðrún Hafliðadóttir tekur við verðlaununum frá
Irisi Pétursdóttur, starfsmanni þjónustusviðs DV.
Veðrið
+5 * *
Nokkur vindur
+6
4
£3 Nokkur vindur
#4 Nokkur vindur
Nokkur vindur
: * •
Nokkurvindur D. . . J
k , +2 Strekkingur
+6*4
Nokkur vindur
£3
Nokkur vindur
s£3_
Nokkur vindur
Cb*'
+6*.* 4 Strekkingur
+5
Nokkur vindur
•L