Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2004, Síða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2004, Síða 47
DV Síðast en ekki síst LAUGARDAGUR 13. MARS 2004 4j Magnús Geir norður LA verður poppað upp „Þetta leggst afskaplega vel í mig og ég er fullur tilhlökkunar. Klæjar í fingurgómana að fara norður og takast á við þetta verk- efni," segir Magnús Geir Þórðar- son leikstjóri en gengið hefur verið frá ráðningu hans sem næsta leik- hússtjóra Leikfélags Akureyrar. Magnús býr að reynslu sem leik- hússtjóri í sex ár þegar hann stýrði Leikfélagi íslands - sem reyndar sigldi í kröppum sjó fjárhagslega. Ráðning Magnúsar er til þriggja ára og ber hana tiltölulega brátt að. Staðan var ekki auglýst en nú- verandi leikhússtjóri, Þorsteinn Bachmann, sagði starfi sínu lausu, tiltölulega óvænt strax eftir að hafa unnið mál fyrir dómstólum sem laut að réttmæti ráðningar hans. Sigmundur Ernir Rúnarsson er formaður leikhúsráðs en þeir Magnús hittust og ræddu saman. I kjölfarið var tekin ákvörðun um að ráða Magnús. „Ég er ráðinn á afar skemmti- legum tímapunkti. Nú hefur leik- húsið verið gert upp, endurbyggt og öll aðstaða bætt til muna. Nú er stefnt að því að byggja upp kröft- ugt leikfélag til framtíðar," segir Magnús. Hann hefur verið orðað- ur við starf Þjóðleikhússtjóra en hann segir af og frá að hann muni sækja þar um nýbúinn að ráða sig til þriggja ára. Magnús mun byrja á því að kynna sér nákvæmlega hvernig staða félagsins er og þá fer í hönd stefnumótunarvinna. „Við ætlum að skoða hvernig leikhús þetta á að verða og hvaða leiðir eru bestar að því marki.“ Magnús ætlar að bjóða upp á leiklist í hæsta gæðaflokki sem höfðar til breiðs hóps. Og vonast til þess að sýningarnar verði svo spennandi að stríður straumur fólks verði norður. „Aukin áhersla verður lögð á að höfða til yngra fólks en því hefur fjölgað verulega á liðnum árum. Já, það má kanns- ki segja poppaðra, en vissulega verða metnaðarfullar drama-tísk- ar sýningar einnig á dagskrá." Magnús flytur norður strax næstu mánaðamót og tekur þá til óspilltra málanna. Magnús hefur starfað með LA og segir leikhúsið gott, það hefur gengið í gegnum erfiðleika en nú brosir framtfðin__________________ við. „Það má segja að þetta sé gamall draumur og sann- arlega eru spenn- andi tímar framundan." jakob@dv.is Magnús Geir Þ6r8arson Nýr leik- hússtjóri ætlar að leggja áherslu á að höfða til yngri kynslóðarinnar, enda hefur yngra fólki fjölgað verulega á Akureyri á liðnum árum. 4 ráð til að losna við Leoncie 1. Gera hana að sendiherra í Finnlandi. 2. Loka hana inni íölveri. 3. Senda hana í tónleikaferð á Kárahnjúka- svæðið. & 4. Múta henni. (Söngkonan Le- oncie hefur verið mjög áberandi í fjölmiðlum að undan- förnu.) mikla athygli. Menn hafa velt þess- um ummælum fyrir sér fram og til baka. Svo ótrúleg virðast þau að helst vilja menn meina að þarna sé um að ræða rangtúikun blaðamanns - sem er auðvitað fjarri lagi. Hins vegar hefur DV borist til eyrna sannfærandi kenning sem gæti útskýrt þetta viðhorf en kona hans Álfheiður F. Friðbjamardóttir mun vera framkvæmdastjóri sam- takanna Regnbogabörn. Þar er auð- vitað andstaða náungakærleikans til umfjöllunar daglega og líklega hefur sú umræða litað viðhorf bæj- arstjórans... • Gríðarleg spenna er í kringum það hvort Skjár 1 nái að stela enska boltanum af Stöð 2. Ekki er það al- veg frágengið en Premier League mun fyrst gera úttekt á Skjá ein- um, hvort fyrir- tækið ráði við saminginn, og leyfa ýmsir við Lyngháls 5 sér að efast um það. Sagan segir þó að í gær hafi Sigurður G. Guðjónsson flogið til Englands til fundar við þá sem um slíka samn- inga fjalla fyrir hönd ensku deildar- innar • Einn annar sem nú er staddur á Englandi er enginn annar en at- hafnamaðurinn Einar Bárðarson. Ekki mun hann vera að reka nein erindi tengd atvinnu sinni heldur er för hans til slökunnar fyrst og fremst. Þannig að enn mega þær 7 til 8 stúlkur sem eftir eru af þeim hundrað sem sóttu um að vera í stúlknabandi hans bíða eftir því að endan- legur dómur falii. Einar er að sækjast eftir 3 til 4 til að syngja, dansa og gera allt vitlaust á íslandi í sumar. ntunarsími 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.