Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2004, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2004, Blaðsíða 29
F DV Fókus FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 29 malefniim Ástralska söngkonan Kylie Minogue heldur því fram að rokksöngvarinn Michael Hutchence sé enn í sambandi við hana þó hann sé dáinn. Kynbomb- an Kylie segir að INXS-söngvarinn hafi snúið aftur frá dauðum til að heilsa upp á hana. Auk þess er hin 35 ára söngkona fullviss um að hún hafi verið endurholdguð nokkrum sinnum og að hún eigi oft samskipti við látið fólk. Yfirlýsingar hennar falla eins og flís við rass áð sögu- þræðinum í hinni vinsælu kvikmynd The Sixth Sense frá 1999 þar sem Haley Joel Osment segir við Bruce Willis að hann „sjái dautt fólk.“ Kylie segir sjálf: „Það var eitt ákveðið atvik sem sannfærði mig um að Michael væri enn á meðal okkar. Það var eins og hann hefði komið til mín til að segja „Hæ“." Hún segist vera í betra sam- bandi við Hutchence nú en þeg- ar hann var á h'fi, hún bætti við: „Stundum finnst manni maður komast nær fólki þegar það er látið." Poppprinsessan hefur mjög ákveðnar skoðanir á lífi eftir dauðann, endurholdgun, himna- ríki og svo mætti lengi telja. „Ég trúi því að ég hafi lifað áður, en ég er ekki mjög langt komin á „lífs- brautinni". Ég er ekki einu sinni komin yfir tíu h'f. Það er ekki eins og ég geti séð fyrir mér öll mín fyrri líf en ég trúi því að ég hafi komið einhvers staðar frá.“ „Eftir að hafa upplifað samskipti við látið fólk og sjötta skilningarvitið tel ég að það hljóti að vera meira til í dæminu en það sem við sjáum hér og nú. Ég trúi á al- heimsmátt og tel að við séum mjög skammt á veg komin í þróuninni. Við notum ekki nema hluta af heilanum okkar í dag og sjálfri finnst mér eins og égsé stundum að spara hann.“ Kylie er annars á fullu þessa dagana að kynna nýjustu plötu sína sem ber heitið Body Language. Hún hefur fundið ástina í Olivier Martinez, ffönskum leikara, og hef- ur meira að segja farið með hann í heim- sókn til foreldra sinna í Melbourne. Kylie Minogue „Ég trúi á al- heimsmátt og tel að við séum mjög skammt á veg komin í þróuninni. Við notum ekki nema hluta afheilanum okkar i dag og sjálfri finnst mér eins og ég sé stund- um að spara hann." Hverhefði trúað þvi að hún myndi segja þetta? Erfið æska hefur haft sínáhrif á óskarsverðlaunaleikkonu sækir í s Stjörnuspá Söngkonan Leoncie er 51 árs í dag. „Hún er hvers manns hugljúfi, elskandi móðir og umhyggjusöm eiginkona. Hún gefur allt sem hún kann að eiga ef svo ber undir og nýtur þess að skemmta sér með því að deila hamingju- (stundum sínum meðal fólksins sem skipar 't stóran sess í hjarta hennar," segir í stjörnuspá hennar. Leoncie VV Mnsbetm (20. jan.-18.febr.) —--------—----------------— Fólk fætt undir stjörnu vatns- berans erfært um að hreinsa allar hindr- anir úr vitund sinni um þessar mundir. Þú getur eignast sálarfrið með sjálfinu sem ekkert fær bugað þegar þú sækir fram af fullum krafti. Vorið færir þér tæki- færi sem þú nýtir til góðs. H F\sfam\\ (19. febr.-20.mars) Gleymdu ekki að innra með þér býr manneskja sem þráir hlýju og ást frá þeim sem hún elskar. T Hrúturiniv21.mars-19.aprH) Ef þú hefur nýlega upplifað einhvers konar höfnun á meðal vina ættir þú að ýta þeim tilfinningum burt og horfa eingöngu fram á við. Þú býrð yfir óbilandi drifkrafti, gleymdu því eigi. Nýr kafli hefst í byrjun aþrfl. ö NaUtið (20. apríl-20. mai) Þú býrð yfir miklu aðdráttarafli en átt það til að vanmeta útlit þitt. Sf Næstu daga ættir þú að varast það að •ff vera dómharður/dómhörð gagnvart þeim sem þú elskar. Skipulag er kjörorð nautsins þessa dagana. I I Tvíburarnir (21. mi-2ijúni) Gleði og stolt einkennir stjörnu þína af einhverjum ástæðum. Þú ert fær um að blanda saman innsæi og raunsæi og ættir að tileinka þér þann eiginleika framvegis. faabbm (22.júni-22.júii)__________ Jákvæð reynsla er framundan þegar stjarna krabbans er skoðuð og engin ástæða af þinni hálfu að gera ná- kvæma áætlun varðandi framhaldið því þar með útilokar þú spennandi mögu- leika framtíðar. Cs LjÓflið (23.júlí- 22. ágúst) T15 Þú ættir að átta þig á því að allar þínar æðstu óskir rætast ef þú opnar huga þinn og sendir langanir þínar meðvitað frá þér kæra Ijón. Þú hefur gáfurnar og styrkinn til að verða það sem þú þráir. Meyjan (22. ágúst-22. sept.) Þú ert fær um að gefa fyrir- skipanir með réttu hugarfari og getur á auðyeldan hátt látið umhverfið starfa fyrir þig. Þú ættir að efla vitund þína á líðandi stundu því þar eflir þú áhrif þin til afkasta. Q Vogin 122.sept.-22.okt.) Ef þútemurþéraðhugaað jákvæðum gjörðum sem stuðla að vexti hjá þér og ekki síður náunganum ein- kennast ávextir verka þinna þegar fram- tíð þín er skoðuð af gleði, hamingju og ekki síður velgengni. "i Sporðdrekinn (24.okt.-21.nnrj Þú ættir að temja þér að veita því athygli sem aðrir eru að gera í kring- um þig og ekki hika við að veita þeim viðurkenningu. Þú átt það til að halda hugsunum þínum varðandi góðverk ná- ungans innra með þér í stað þess að veita öðrum blessun þína í verki. / Bogmaðurinn -2i. fcj Þú býrð yfir hæfileika sem felst í því að taka öllu sem gerist á já- kvæðan hátt og ættir að nýta þann eig- inleika hvern dag kæri bogmaður. Óskcirsverðlaunaleikkonan Halle Berry segist hafa eytt seinustu árum í að gera það sem fólk ætlast til af henni. „Ég var alltaf að reyna að vera eins og fólk vildi að ég væri og hafði stanslaust áhyggjur af þvf hvað fólki fannst um mig,“ sagði leikkonan. Berry hefur átt erfiða ævi og kennir fortíðinni um tilhneigingu sína að reyna að gera öðrum til hæfis. Hún ólst upp í mikilli fátækt og átti ofbeld- isfullan föður. í barnaskólanum mætti hún miklum kynþáttafordóm- um og leitaði ávailt í kærasta sem beittu hana ofbeldi. „Einn af mínum fýrrverandi sló mig svo fast að ég missti 80 % af heyrninni á öðru eyra.“ Hún giftist ung körfuboltamanninum David Justice en þau skildu eftir að hann var handtekinn fyrir eiturlyfjasölu og hórmang. Seinni maðurinn hennar sem var tannlæknir seldi sögur af ást- arlífi þeirra úr tannlæknastólnum og sá þriðju hélt stanslaust fram hjá henni. Berry segir að það hafi tekið hana langan tfma til að treysta fólki og nú fýrst sé hún hætt að reyna að gera öllum til geðs. Ferill Halle Berry fór líka frekar Halle Berry Leikkonan hefurátt erfitt líf sem einkennst hefur afofbeldi, fáteekt og svikum. Hún segist þó vera búin að fá nóg af þessu og ætlar að hætta að gera öllum öðr- um tilgeðs. hægt af stað og lengi vel var hún helst þekkt fýrir útlitið en ekki leikhæfileik- ana. Það var ekki fyrr en hún fékk óskarinn fyrir leik sinn í Monsters Ball að fólkið í Hollywood fór að meta hana að verðleikum. Nú hefur Halle efni á að vera einfaldlega hún sjálf og láta ekki ráðskast með sig. Steingeitin (22.des.-19.jan.) Þú ættir að tileinka þér að sætta þig við orðinn hlut og halda fast ( svokallaða nægjusemi þína. Þú ert for- rituð/foritaður til að bæta tilveru þína I sífellu sem er án efa ágætt í alla staði en það getur einnig leitt til þess að græðgin komi í veg fyrir innra jafnvægi þitt. Ekki sætta þig við minna en þú átt skilið eða þráir. SPÁMAÐUR.IS r. 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.