Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2004, Blaðsíða 15
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 15
Styður forræðislausa feður
Karl Bretaprins sýndi forræðislausum feðr-
um stuðning í gær þegar hann sagðist telja
að enskir dómarar létu nær undantekning-
arlaust forræði barna í hendur mæðra í
stað feðra - jafnvel þegar feðurnir
ættu enga sök á skilnaðinum. Prins-
inn segir mál af þessum toga ekki
alltaf sanngjörn og konur hafi sjálf-
krafa yfirburði þegar forræðisdeilur
eru annars vegar. Karl ætti að vita
sitthvað um uppeldi barna enda verið
einstæður faðir um margra ára skeið.
Hafnar frétt um dauða Kan
Gústaf Svíakonungur kvað vera æfur yfir furðu-
frétt á sænskri útvarpsstöð en þar var fullyrt
að hann væri farinn yfir móðuna miklu. Á
eftir var svo leikin sorgarmúsík. Kon-
ungur er sprelllifandi og hefur falið
lögfræðingi sínum að stefna útvarps-
stöðinni fyrir tiltækið. „Við höfum nú
séð ýmislegt í gegnum tíðina en
sjaldan hefur dómgreindarleysið
verið meira,“ segir talsmaður
sænsku konungshallarinnar um mál-
ið. Talsmaðurinn vill ekki lýsa við-
brögðum konungs í smáatriðum en
segir fullvíst að hann hafi ekki brosað
að spauginu. Útvarpsstöðin leiðrétti
fréttina og baðst afsökunar.
ar fullyrt
lu. Á já
/
J"
am
E
New York heillar
Norska prinsessan, Marta Lovísa, ætlar að
yfirgefa Noreg í haust og flytja til Bandaríkj-
anna. Marta Lovísa og eiginmaður hennar, Ári
Behn, hafa í hyggju að eyða nokkrum árum
New York. Marta Lovísa og Ari fóru á sín-
um tíma í brúðkaupsferð til New York
og voru svo heilluð af
hétu því að einhvern tíma myndu þau
prófa að búa þar. Þau ætla að
stunda menningar- og listalífið af
kappi. Til stóð að þau flyttu vestur
á síðasta ári en alvarleg veikindi Har-
aldar konungs, föður Mörtu Lovísu,
settu strik í reikninginn auk þess
sem prinsessan vildi ekki missa af
fæðingu bróðurdóttur sinnar.
Siglfirðingar bjóða krónprinsinum í 100 ára afmæli síldveiða
Hákon og Mette-Marit til (slands
Hákon krónprins Noregs og
Mette-Marit krónprinsessa ætla að
heimsækja ísland þann 28. júní
næstkomandi og dvelja hérlendis í
tvo daga. Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti lýðveldsins, átti fund með
Hákoni í gær en krónprinsinn gegn-
ir störfum þjóðhöfðingja í veikinda-
forföllum Haraldar föður síns.
Eins og greint var frá f DV í byrjun
nóvember sl. þá verða Hákon og
Mette-Marit að öllum líkindum
meðal gesta sem fagna aldarafmæli
sfldveiða á Siglufirði. Afmælisnefnd-
in á Siglufirði sendi formlegt boð til
Noregs og samkvæmt heimildum
blaðsins mun boðinu hafa verið vel
tekið. Siglfirðingar ætla að efna til
mjög veglegra hátíðarhalda í tilefni
afmælisins og þar mun heimsókn
Hákons krónprins vafalaust bera
hæst.
í yfirlýsingu forseta segir að
heimsóknin feli í sér skilaboð um
hve mikilvægt sé af hálfu Norð-
manna að rækta sambandið við ís-
land og verður dagskrá heimsóknar-
innar miðuð við að krónprinsinn og
föruneyti hans farið á slóðir sem
tengjast sameiginlegri sögu land-
anna auk þess sem rfldsarfinn verð-
ur kynntur fyrir vísinda- og við-
skiptah'fi hérlendis.
Ekki liggur fyrir hvort krón-
prinsessan Ingiríður Alexandra
verður með í för - hún fæddist seint
í janúar síðastliðnum. Norskir hirð-
læknar gera þá kröfu að prinsessan
fari ekki í ferðalög fyrr en hún nær
sex mánaða aldri. Það er því hæpið
að prinsessan fylgi foreldrum sínum
hingað til lands.
Stórleikarinn Terence Stamp var ástmaður Díönu prinsessu um skeið. Þessar upp-
lýsingar er að finna í nýrri bók sem Andrew Morton er að skrifa um prinsessuna.
Ástamál prinsessunnar eru aðalefni bókarinnar.
Stórleikarinn Terence Stamp
hefur viðurkennt að hafa átt í ástar-
sambandi við Di'önu prinsessu á ár-
inu 1987. Þau Stamp og Díana hitt-
ust í fyrsta sinn við ffumsýningu
kvikmyndarinnar Wall Street í
London. Þar mun ástin hafa kvikn-
að og ef marka má breska fjölmiðla
hófst eldheitt ástarsamband sem
varði í fáeina mánuði.
Andrew Morton rithöfundur lak
þessum upplýsingum í fjölmiðla
fyrr í vikunni. Morton, sem hefur
halað inn að minnsta kosti milljarð
króna á ævisögu sinni um Díönu
prinsessu, er að skrifa nýja bók um
prinsessuna. Bókin ber titilinn
„Díana - í leit að ást" og er væntan-
leg í bókabúðir í sumar. Morton
boðar spennandi kafla um Stamp
og Díönu og auk þess kafla um tvo
aðra elskhuga sem prinsessunni
tókst að halda utan sviðsljóssins.
Að sögn mun annar þeirra vera
kvæntur kvikmyndaleikari og hinn
er forstjóri stórfyrirtækis sem allir
þekkja. Meira lætur Morton ekki
uppi að sinni enda vill hann auðvit-
að selja sem mest af bók sinni þeg-
ar hún kemur út.
Ljóst þykir að Morton liggur á
Morton boðar spenn-
andi kafla um Stamp
og tvo aðra elskhuga
sem prinsessunni
tókst að halda utan
sviðsljóssins.
ýmsum óbirtum upplýsingum um
lífshlaup Díönu og hann er líka
maðurinn á bak við þættina sem nú
eru sýndir á fimmtudagskvöldum á
NBC-sjónvarpsstöðinni í Banda-
rtkjunum við gríðarlegar vinsældir.
Morton mun hafa fengið 60 millj-
ónir króna fyrir upptökur sem hann
lánaði sjónvarpsstöðinni. Meðal
annars hafa verið leiknir kaflar þar
sem Díana lýsir andúð sinni á nú-
verandi kærustu Karls prins,
Camillu Parker Bowles. Þá hefur
Díana lýst konungsfjölskyldunni
sem kaldlyndri og sér óvinveittri á
erfiðum tímum.
Terence Stamp hefur alla tíð
þótt mikið kvennagull og hefur átt í
sambandi við margar frægar konur.
Þeirra þekktastar eru Julie Christie,
Joan Collins og Jean Shrimpton.
Terence Stamp er fæddur á
Englandi árið 1939. Hann varð
frægur á sjöunda áratugnum og
þótti mikið kvennagull. Meðal
lagskvenna hans voru stórstirni á
borð við Julie Christie, Brigitte Bar- Desert og Limey. Hann lék einnig í
dot og Jean Shrimpton. Sú
síðastnefnda hefur
verið talin stóra
ástin í lífi hans.
Hún yfirgaf
hann hins
vegar og í
kjölfarið
hætti Stamp
að mestu að
leika. Hann
sneri aftur
seint á áttunda
áratugnum og
lék þá í Super-
man II, The Hit,
Priscilla - Queen
of the
Star Wars Episode I, Red Planet, My
Boss's Daughter og
Limey svo fá-
einar séu
nefndar.
Fjölskyldan Hákon krónprins
I ásamt konu sinni Mette-Marit,
, I krónprinsessunni Ingiríði Alexöndru
I og Mariusi sem er sonur Mette-
I Marit frá þvífyrir hjónaband.
Flott saman Terence og Diana áttu
i eldheitu ástarsambandi árið 1987.
Þau kynntust i bió og hófu þegar i
stað að daðra hvort við annað.
Ást á fpumsýningu
Drottning hannar
brúðarkjolinn
Mary Donaldson lagði á
dögunum land undir fót og
fór til Mflanó á Ítalíu. Til-
gangur ferðarinnar var að
velja efni í brúðarkjólinn
sem hún ædar að klæðast
þann 14. maí næstkomandi
þegar hún gengur í hjóna-
band með Friðriki krón-
prins. Mary mun hafa leitað
vítt og breitt að heppilegu
efni en ekki fundið. Hún
fékk höfðinglegar móttökur
í Mflanó þar sem danski
fatahönnuðurinn Jörgen
Simonsen tók á móti henni.
Simonsen nýtur mddllar
virðingar í tískuheiminum,
hefur verið yfirhönnuður
hjá Versace og Valentino.
Simonsen fór með Mary í
búðir og fundu þau rétta
efnið. Mikil spenna ríkir
varðandi hönnun kjólsins
en þau mál eru á huldu að
því undanskildu að talið er
víst að Margrét drottning
muni hafa hönd í bagga
enda annáluð listakona.