Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1958, Síða 4
50
TlMARIT VFl 1958
RÆÐA
dr. Gylfa Þ. Gíslasonar,
Sðnaðarmálaráðherra
Herra forseti Islands. Virðulega forsetafrú.
Heiðruðu gestir.
Islenzk þjóð hefur búið á Islandi í nær ellefu hundruð
ár án þess að hafa annað efni í landi sinu en torf og
óhöggvinn stein til þess að reisa sér híbýli og hús til at-
vinnurekstrar. Þetta á ekki við um nokkurt annað ná-
lægt ríki, þar sem lifað hefur verið menningarlífi. Margir
mundu segja það land óbyggilegt, þar sem engin væru
byggingarefni. Ýmsir mundu telja það ótrúlegt, að menn-
ing gæti þróazt með mönnum, sem búa í mold og grjóti.
Og enn mundu margir álíta það óhugsandi, að slíkt fólk
gæti verið sjálfstæð þjóð.
1 þessu efni sem svo mörgu öðru má saga Islendinga
þó teljast til einsdæma. Hún er ævintýri, sem er spenn-
andi af því að það greinir frá tvisýnni baráttu, heillandi,
af því að það er ótrúlegt, lærdómsríkt, af því að það er
satt. Á fyrstu öldum Islandsbyggðar voru aðstæður til
bygginga að vísu betri en síðar varð. 1 skógum þeim,
sem þá uxu i landinu, mátti höggva við til húsagerðar,
og gildur rekaviður flaut að ströndum. Samt varð að
flytja mikið timbur til landsins. En fornmenn töldu það
Ofninn í verksmiðjunni á Akranesi er 100 m að lengd. og hvílir hann á fjórum undirstöðum.