Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1958, Side 10

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1958, Side 10
56 TlMARIT VFÍ 1958 Verksmiöjan sért frá sjó. Til vinstri stjómarbygginff, fremst efnageymsla. Byggingarframkvæmdir við verksmiðjuna hófust fyrir alvöru i lok maí 1956 og var haldið sleitulaust áfram. Þeim var að mestu lokið, er hornsteinn þessi var lagður. Uppsetning á vélum verksmiðjunnar hófst 11. mai 1957, og hófst mölun líparíts i Hvalfirði 30. maí 1958, en framleiðsla hráefnaleðju í verksmiðjunni á Akra- nesi 31. maí 1958. Sama dag og hornsteinn þessi var lagður vigði menntamála- og iðnaðarmálaráðherra, dr. Gylfi Þ. Gíslason, verksmiðjuna og kveikti um leið eld í ofni hennar. Fyrirkomulagi verksmiðjunnar hefur stjórn hennar ráðið ásamt Árna Snævarr, verkfræðingi, og verk- fræðingum, frá F. L. Smidth & Co. A/S. Uppdrætti að byggingum verksmiðjunnar hefur Almenna bygginga- félagið h.f., Borgartúni 7, Reykjavík, gert, en fram- kvæmdastjórar þess voru Ámi Snævarr og Gústaf E. Pálsson, verkfræðingur. Hornstein þenna lagði forseti Islands, herra Ásgeir Ásgeirsson. 1 landi voru hafa engar fornar byggingar varðveitzt. Orsök þess er öðrum þræði sú, að hér var skortur byggingarefnis, er þyldi tímans tönn. Þessari verk- smiðju er ætlað að framleiða varanlegt efni til fag- urra og nytsamra bygginga, öldum og óbornum til yndis og hagsældar. GÆFA FYLGI GÓÐU EFNI. Armstrong-Perfex gólfeinangrun fyrir geislahitun Armstrong korkverksmiðjurnar á Spáni hafa hafið framleiðslu á einangrunarplötum úr korki í þeim til- gangi að einangra hita í gólfum, þar sem geislahitun- arpípur eru fyrir. Einangrunarplöturnar eru framleiddar úr hreinum korki fyrsta gæðaflokks og i samræmi við amerísku gæðastaðlana: HH-F-341a Type 1 Class A, ASTM Spec. D 544—49 Type 1, ASTM Spec. D 544—52T Type 1, AASHO Spec. M 153—52 Type 1. Þær eru taldar hafa ágæta mótstöðu gegn raka, þola allt að 100°C hita og hafa eðlisþungann 0,2. Plötustærðirnar eru 12"X36'' í þykktunum 8 mm, %" og 1". Armstrong framleiðir einnig nýtt titringseinangrun- arefni, VIBRACORK, og er það m. a. sett i gólf undir vélar áður en steypt er, og einangrar það titring og hristing frá vélunum. Innflutningur er þegar hafinn á þessum einangr- unarefnum.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.