Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1958, Qupperneq 10
56
TlMARIT VFÍ 1958
Verksmiöjan sért frá sjó.
Til vinstri stjómarbygginff, fremst efnageymsla.
Byggingarframkvæmdir við verksmiðjuna hófust
fyrir alvöru i lok maí 1956 og var haldið sleitulaust
áfram. Þeim var að mestu lokið, er hornsteinn þessi
var lagður.
Uppsetning á vélum verksmiðjunnar hófst 11. mai
1957, og hófst mölun líparíts i Hvalfirði 30. maí 1958,
en framleiðsla hráefnaleðju í verksmiðjunni á Akra-
nesi 31. maí 1958. Sama dag og hornsteinn þessi var
lagður vigði menntamála- og iðnaðarmálaráðherra, dr.
Gylfi Þ. Gíslason, verksmiðjuna og kveikti um leið eld
í ofni hennar.
Fyrirkomulagi verksmiðjunnar hefur stjórn hennar
ráðið ásamt Árna Snævarr, verkfræðingi, og verk-
fræðingum, frá F. L. Smidth & Co. A/S. Uppdrætti að
byggingum verksmiðjunnar hefur Almenna bygginga-
félagið h.f., Borgartúni 7, Reykjavík, gert, en fram-
kvæmdastjórar þess voru Ámi Snævarr og Gústaf E.
Pálsson, verkfræðingur.
Hornstein þenna lagði forseti Islands, herra Ásgeir
Ásgeirsson.
1 landi voru hafa engar fornar byggingar varðveitzt.
Orsök þess er öðrum þræði sú, að hér var skortur
byggingarefnis, er þyldi tímans tönn. Þessari verk-
smiðju er ætlað að framleiða varanlegt efni til fag-
urra og nytsamra bygginga, öldum og óbornum til
yndis og hagsældar.
GÆFA FYLGI GÓÐU EFNI.
Armstrong-Perfex gólfeinangrun fyrir geislahitun
Armstrong korkverksmiðjurnar á Spáni hafa hafið
framleiðslu á einangrunarplötum úr korki í þeim til-
gangi að einangra hita í gólfum, þar sem geislahitun-
arpípur eru fyrir. Einangrunarplöturnar eru framleiddar
úr hreinum korki fyrsta gæðaflokks og i samræmi við
amerísku gæðastaðlana: HH-F-341a Type 1 Class A,
ASTM Spec. D 544—49 Type 1, ASTM Spec. D 544—52T
Type 1, AASHO Spec. M 153—52 Type 1. Þær eru taldar
hafa ágæta mótstöðu gegn raka, þola allt að 100°C
hita og hafa eðlisþungann 0,2.
Plötustærðirnar eru 12"X36'' í þykktunum 8 mm,
%" og 1".
Armstrong framleiðir einnig nýtt titringseinangrun-
arefni, VIBRACORK, og er það m. a. sett i gólf undir
vélar áður en steypt er, og einangrar það titring og
hristing frá vélunum.
Innflutningur er þegar hafinn á þessum einangr-
unarefnum.