Akranes - 01.01.1949, Blaðsíða 5

Akranes - 01.01.1949, Blaðsíða 5
Vistmaður frá gömlu Grund skoðaði nýja húsið, og sagði svo, er heim kom: „Húsið er reisulegt og fjarska fínt, en ég tók samt eftir slæmum galla á húsinu, það er nærri ómögulegt að rata þar út.“ — Það eru samt fernar dyr á húsinu. — Gömul kona gekk um húsið og sagði: „Þetta er a'llt ljómandi fallegt. En hvar eigum við að vera?“ Hún var alveg orðlaus, þegar henni var sagt að hún mætti kjósa sér herbergi þar sem hún stóð. Annars voru það fleiri, en gamlir ein- stæðingar, sem töluðu um hvað húsið væri fínt — „óþarflega fínt,“ — „of mikið i það horið“ o. s. frv.. En vér litum svo á, að það væri bein- línis skylda vor gagnvart höfuðstaðar- búum og ailri þjóðinni að vanda þetta hús svo sem kostur væri á„ svo að húsa- kynnin þættu viðunandi um langan aldur, þótt kröfur manna í þeim efnum vaxi. „Það á að vera til fyrirmyndar öðrum, sem reisa Eliiheimili, og landinu til sóma út á við,“ sögðum vér. — Fyrir fáum árum gekk ég um Elii- heimilið með þýzkum blaðamanni. Hann tók vel eftir öllu, en sagði svo fátt að ég spurði hann: „Hvað ætlið þér að skrifa um þetta hús, þegar heim kemur?“ „Ekkert,“ svaraði hann. Mér þótti svaraði undarlegt, og spurði: „Hvers vegna?“ „Af því að það trúa því engir heima, að svona Elliheimili sé til á íslandi,“ svar- aði Þjóðverjinn. Húsið var vígt 28. september 1930 að viðstöddu fjölmenni. Vistmenn voru þá orðnir 56. Víxluræðuna flutti sr. Bjarni Jónsson, aðrir ræðumenn voru Guðm. Björnsson landlæknir, sr. Ólafur fríkirkjuprestur o. a. Forsætisráðherrafrú Anna Klemens- dóttir festi „grunnsteininn,“ en í hann var lagt langt skjal til fróðleiks seinni-tíma- tnönnum. Það endaði á þessa leið: Sigurður Guðmundsson byggingameist- ari gerði teikningar að þessu húsi og hafði yfirumsjón verksins. Fulltrúar hans við umsjónina voru: Guðmundur Guðjónsson verkfræðingur, Flosi Sigurðsson trésmiðameistari, Agúst Pálsson arkitekt, Sigurður Ólafsson verkfræðingur. Húsasmíðið sjálft skiptist svo: Ólafur Th. Guðmundsson trésmíða- meistari lét steypa allt húsið og koma því undir þak. Bergsteinn Jóhannesson múrarameist- ari annaðist múrsléttun. Benedikt Gröndal verkfræðingur gerði teikningar að öllum pípulögnum og véla- utbúnaði; en Óskar Schmidt framkvæmdi verkið. Nikulás Friðriksson rafvirki gerði teikn- ingar að allri raflögn, en Júlíus Björnsson raffræðingur annaðist verkið. Árni Jónsson, Guðm. Hjörleifsson og Magnús Jónsson trésmíðameistarar önn- uðust trésmíðið. Albert Erlingsson og Óskar Jóhannsson málarameistarar önnuðust alla málningu. Haraldur Árnason kaupmaður útvegaði alla innanstokksmuni í húsið. Allir þessir menn og aðrir þeir, sem að húsinu hafa unnið, eiga þakkir skilið fyrir alla alúð og trúmennsku við störf sín. Dásamleg handleiðsla Drottins og traust og velvild góðra manna hafa fylgt þessari stofnun frá upphafi, og bæn vor er og von að svo verði framvegis, svo að fjölmörg þreytt gamalmenni geti hlotið ánægja- legt æfikvöld í þessu húsi.“------ Við vígsluna voru m. a. sungin þessi erindi eftir Þorstein Gíslason rithöfund: Vér biðjum þig, Drottinn, að blessa vorn rann, að blessa hér starf vort og sérhvem þann mann, sem hvíldir og skjól liér í ellinni á. Vor algóði faðirinn, vertu þeim hjá. Þeim unga svo langt fram til ellinnar finnst; hann orðinn er gamall þá varir hann minnst. Vér skiljum það síðast, að ævi vor er sem augnablik hverfandi, Drottinn, hjá þér. Þeim gömlu, þeim lúnu, sem leita hér inn frá lífsstriði, opnaðu helgidóm þinn og ljósin liin eilifu láttu þá sjá, sem lýsa ein jarðnesku vegunum frá.“ Takmarkinu náS, en erfiSleikarnir aldrei meiri. Hér hafið þið nú fengið greinagott yfir- lit yfir aðdraganda, stofnun og starfrækslu Elliheimilisins Grund, til þessa, er lokið var við byggingu hins nýja húss við Hring- braut. Allt þetta er þrekvirki kjarkmikilla dáðadrengja. Hugsjónamanna, sem oft telfdu djarft vegna trúnaðar við þetta mikla nauðsynjamál, og vegna trausts á hjálp frá Drottni, ög styrk frá góðum mönnum. Enda voru víst ýmsir, sem álitu þetta allt vera glæfrafyrirtæki, þar sem allt færi á hausinn, og yrði aldrei þeim til gagns, sem ættu og þyrftu að njóta. Húsið kostaði fullbúið rúmar /00 000 krónur.; það voru miklir peningar þá. Færri úrræði heldur en nú. Enda þótt sæmilegt árferði væri og sæmileg afkoma landsmanna yfirleitt áður, og meðan bygg- ing hins mikla húss stóð yfir, breyttist það mjög í þann mund, er húsið var fullgert 1930. Því að allur áratugurinn fram að síðasta striði var samfellt og sannkallað neyðartímabil, að því er tók til afurða- sölu landsmanna og þá raunverulegrar afkomu einstaklinga og þjóðarheildar. Þetta bitnaði vitanlega hart á þessu mikla fyrirtæki, sem náttúrlega hafði reist sér hurðarás um öxl, en um fjárhagslega af- komu gat ekki hugsað til að láta reksturinn bera sig af árgjöldum vistmanna. Nokkru síðar en húsið var fullbyggt dó fyrsti for- stöðumaður heimilisins, Haraldur Sigurðs • son. Ágætur maður, sem gegndi starfinu sem væri það köllun. Samvizkusamur maður og vel liðinn af ölltun. Af framansögðu er því ljóst, að hagur þessa fyrsta, mikla Elliheimilis á Islandi stóð höllum fæti. Það var þvi ekki heigl- um hent að taka að sér forystu og fram- kvæmdastjórn á þessu stóra heimili. En stjórn heimilisins var ekki heillum horfin um val eftirmanns Haraldar Sigurðssonar, er hann lézt í okt. 1934. Fyrir valinu varð Gisli Sigurbjörnsson, frá Ási, sem verið hefur framkvæmda- stjóri Elliheimilisins og er enn. Út úr öllum erfiSleikum Gisli tók við forstjórastöðunni i októ- ber 1934. Eins og hér var sagt var efna- hagurinn bágborinn og við mikla erfið- leika að etja, í þesu févana fyrirtæki frá upphafi. Þurfti Gisli þvi mjög að halda á hugkvæmni, atorku og lánstrausti til þess að sigrast á erfiðleiktmum, því frem- ur, sem almenn vandræði i allri fram- leiðslu og rekstri héldu enn áfram, eins og áður er sagt. Þegar Gísli tók við, fór rúm- lega 16% af heildartekjum heimilisins í vexti eina, en nú fer ekki nema rúmlega 2% af tekjunum til þeirra hluta. Það er ljóst, en litið dæmi um aðstöðmnun, að því er rekstur fyrirtækisins snertir þá og nú. Síðan er þó búið að byggja á lóð Elliheim- ilisins starfsmannahús fyrir 1.100.00 krónur. Svona heimili þarf mikilla muua við, og skiptir miklu máli að hyggilega sé rek- ið. Gísli lét þegar taka upp allmikla garð- rækt fyrir heimilið. Einnig svinarækt, til þess að fullnýta matarleyfar og allan úr- gang. Að sjálfsögðu hafði heimilið frá upphafi sitt eigið þvottahús, aðeins pó fyr- ir heimilið sjálft. Gisli lét þá umbæta og; stækka þvottahúsið, svo að það gæti tekið að sér þvott fyrir almenning, og græddist nokkuð á því. Þá var hafinn allverulegur búskapur. Voru þrjár jarðir hafðar undir. Lauga- nes, Undraland og Kirkjuból. Þennan bú- skap varð síðar að leggja niður, þvi að allt þetta land er nú komið undir byggingai . Hefur Gísli nú til athugunar, hvar bera eigi niður til búskapar á ný, því að hann telur það sjálfsagt, og eigi að vera mögu- legt að reka bú með góðum árangri. 1 kringum Elliheimilið við Hringbraut er dálítil lóð. Er mikil fyriimynd að sjá, hvernig hún er um gengin og nytjuð, til yndis og afraksturs. Enda segir Gísli, að hann græði beint á ræktun hennar fyrir utan yndisaukann, sem sumarskrúð henn- ákranes 5

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.