Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2004, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2004, Page 4
4 LAUGARDAGUR24.APRlL.2004 Fréttir DV Fjölmiðlafrumvarp Davíðs Oddssonar sett til höfuðs Baugi og Norðurljósum. Óvíst hvaða breytingar verða á því í meðförum ríkisstjórnarinnar en þingmenn fram- sóknar eru ekki allir sáttir við það. Verði frumvarpið óbreytt að lögum verða mikl- ar hömlur á því hverjir geti eignast Qölmiðla og framtíð íslenskra fjölmiðla er sögð í hættu. Haraldur er hissa „Égermjöghissaá þessum áformum um að setja lög á fjölmiðla og tel að slíkt eigi alls ekki að gera,“ segir Haraldur Sveinsson stjórnarformað- ur Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins. „Það er verið að tala um að menn megi ekki standa í öðrum rekstri samhliða sem er undarlegt. Slíkt höfum við gert hjá Árvakri í áttatíu ár og ekki hefur það orðið til að eyðileggja íslenskt þjöð- félag nema síður sé. Ég tel að stjórnmálamenn eigi ekki að skipta sér af rekstri fjölmiðla heldur sinna öðr- um verkefnum sem þeir eru betur til fallnir." Úrvalsvísitalan bólgnar út Ekkert lát virðist á hækk- unurn á íslenska hlutabréfa- markaðinum. Við lokun markaða í gær endaði Úr- valsvísitalan í 2.721,9 stigum sem er um 1,64% hækkun innan dagsins og hæsta lokagildi vísitölunnar frá upphafi. Frá áramótum hef- ur vísitalan því hækkað um 28,7% sem bætist á 56% hækkun vísitölunnar á árinu 2003. Sé litið til síðustu 12 mánaða hefúr vísitalan hækkað um 92,4%. Hundruð kópa veiddir yjn 30 bændur stunda riu seíveiðar árlega og fer þeim heldur fækkandi. Nýt- ing á sel felst aðallega í sölu á skinnum og lítilsháttar af kjöti, spiki og hreifum. Undanfarin ár hafa verið veiddir 200-300 haustkópar af útsel. Sl. 15 ár hefur landselskópur verið veidd- ur á ný eftir langt hlé og veiddir eru u.þ.b. 250-500 vorkópar á ári. Fullorðinn landselur er ekki veiddur. Þetta kemur fram í svari landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Ástu R. Jó- hannesdóttur. Davíð vill búta niður Norðurljósin „Það þarfpá að leita uppi þá semeiga mikið haldbært fé en eru ekki þátttakendur í öðrum atvinnurekstri." Búist er við því að í dag skýrist hvort frumvarp verði lagt fram á Alþingi um breytingar á lögum sem snerta eignarhald á fjölmiðl- um og starfsskilyrði þeirra. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði á Alþingi í gær að hann gerði ráð fyrir því að slíkt frumvarp kæmi fram og það væri Alþingis að afgreiða það. Samkvæmt heimildum DV er ekki sátt í ríkisstjórninni um frumvarpið eins og það var lagt fram og vinna Davíð og Halldór Ásgrímsson að því að fínna sátt í málinu. Ekki er þó ljóst hvort allir ráðherrar eða þingmenn flokkanna verði sáttir við þá niðurstöðu. Samkvæmt heimildum DV er frumvarpinu stefnt til höfuðs Baugi og Norðurljósum, sem rekur út- varps- og sjónvarpsstöðvar og gefur út Fréttablaðið og DV. Skorður eru settar í frumvarpinu við eignarhlut- deild á fjölmiðlum sem miðar að því að fýrirtæki eins og Baugur megi ekki eiga ráðandi hlut í fjöl- miðlafyrirtæki. Frumvarpið gengur, samkvæmt heimildum, mun lengra en skýrsla fjölmiöla- t nefndarinnar lagði til, þótt hún hafi teldi mennta- málaráðherra að tilefni væri til að setja lög á grund- velli nið urstöðu nefndar- innar þá ætti nefndin að skrifa það * frumvarp. Það var ekki gert heldur ! Fram kom í fréttum Útvarpsins í gærkvöldi að frumvarpið væri stutt, aðeins tvær greinar. f því segir að fyrirtæki eða félög í rekstri óskyld- um fjölmiðlum megi hvorki eiga dagblöð né ljósvakamiðla og sama fyrirtæki má ekki eiga bæði dagblað og ljósvakamiðil. Tveggja ára aðlög- unartími er veittur en sektum beitt ef þeim er ekki fylgt eftir þann tíma. Aðstandendur Norður- ■ . , ljósa telja frumvarpi Davíðs sérstaklega ,í| beint gegn þeim og > v. segjast ekki trúa því að niðurstaðan afc % '* verði eins og frum- “"«Éw; ? varpið bendir til. Stjórnarformaður Árvakurs, útgáfufé- lags Morgunblaðs- ins, segist telja að það eigi ekki að setja r lög á fjölmiðla. Skarphéðinn Berg Steinarsson stjórnarfor- ar aðgreindur í dag en hann segist eiga bágt með að sjá hvað átt sé við með því að menn sem eigi annars staðar í atvinnurekstri megi ekki eiga fjölmiðla. „Ég held að langstærsti hluti eigenda fjölmiðla- fyrirtækja þurfi þá að selja sfna hluti sem er ekki bara vandamál fýrir eigendur Norðurljósa, heldur einnig Árvakur og íslenska sjón- varpsfélagið," segir Skarphéðinn. Hann segist ekki sjá hverjir eigi þá að kaupa þessi fyrirtæki. „Það þarf þá að leita uppi þá sem eiga mikið haldbært fé en eru ekki þátttakend- ur í öðrum atvinnurekstri." Eigend- ur Norðurljósa hafa stefnt að því að gera fyrirtækið að almennings- hlutafélagi en Skarphéðinn segir al- gjörlega útilokað að skrá fjölmiðla- fyrirtæki á hlutabréfamarkað með þeim takmörkunum sem frumvarp Davíðs bendir til. velt fyrir sér var frumvarp samið v maður Norðurljósa segir möguleikum * þessu tagi. af í forsætisráðu- i - að rekstur dagblaða og V /%• éh ^ í neytinu. •Íí-.ljósvaka fyrirtæk- W'- ¥ skipunarbréfi t? *■ isins % ■ fjölmiðlanefnd- arinnar kom fram að 8 | Halldór Ásgrímsson 1 Vinnur að málamiðl- | I un við Davið. I Davlð Oddsson Gerir | ráð fyrir að fjölmiðla- I frumvarp veröi af- | greitt á Alþingi fyrir I þinglok. i Jón Ásgeir Jóhannesson I I Frumvarpi Davíðs beint | gegn fyrirtækjum hans. Svarthöfði kaupir Svarthöfða f ljósi nýju skýrslunnar og frum- varps ólíkindatólsins Davíðs Odds- sonar um lög sem takmarka eignar- hald á fjölmiðlum þá vill Svarthöfði koma því á framfæri að Svarthöfði hyggst kaupa Svarthöfða. Kaup- verðið verður að sjálfsögðu gefið upp þegar þar að kemur, því lögin vilja auðvitað gegnsæi hvað varðar eign hvers og eins í fjölmiðlum þótt hver sem er megi kaupa stjórn- málaflokka án þess að nokkurs gegnsæis sé krafist. Eins og er veit Svarthöfði ekki hvað hann mun gefa fyrir sjálfan sig Svarthöfði en hann borgar það sem sett verður upp. Því ekki vill hann styggja þann Svarthöfða sem öllu ræður í land- inu, Davíð nokkurn Oddsson. Enda er þetta frumvarp þjóðþrifaráð. Það gengur ekki að einhver annar en Ríkið eða Björn Bjarnason og félag- ar hjá Mogganum eigi fjölmiðla og að þessar 1.700 sálir sem vinna hjá Norðurljósum séu í vinnu hjá ein- hverjum öðrum en Ríkinu eða Hvernig hefur þú það? ,Ég erþreytturen þaö erþungu fargi af mér létt og stressiöeraö rjátlast af mér," segir Gunnar Páll Pálsson formaður VR en nýlega skrifaöi félagiö undir nýja kjarasamninga viö atvinnurekendur. Gunnar Páll segist vera þokkalega ánægður meö þá samninga sem náöust miðað við þá stöðu sem samningamálin voru komin f.„Við náðum vissum áfanga varðandi orlofsmálin sem við erum ánægö með en þannig geta menn lengt fríið sitt,"segir Gunnar Páll og ætlar að hafa það náð- ugt um helgina. Jafnvel að reyna að spila dálftið golfog hvíla sig vel eftir erfiða törn. Birni. Fólk á þá bara að vera í vinnu hjá sjálfu sér og Svarthöfði þekkir lflca mann innan DV sem er tilbúinn að gefa gott verð fýrir spurningu dagsins og ef vel er farið að Agli Helgasyni, sem skrifar kjallara- greinar í DV á laugardögum, væri hægt að fá hann til að gefa eitthvað fyrir kjallaraplássið á föstudögum. Það gengur nefnilega ekki annað en að hver síða í DV sé í eigu fjár- sterkra aðila. Ekki mega þessar 1.700 hræður fá útborgað um hver mánaðamót og eiga bjarta framtíð fyrir sér. Ekki ef fólkið starfar ekki hjá Birni eða Ríkinu. Og sú áætlun eigenda Norðurljósa að koma fyrir- tækinu jafnvel á markað - þeir hafa gefið út yfirlýsingar þess efnis - er auðvitað fráleit. Þá fengi almenn- ingur allt í einu tækifæri til að eign- ast hlut í stórum fjölmiðli. Rfldð og Björn mega ein eiga fjölmiðla. Al- menningur má bara kjósa á fjög- urra ára fresti - án þess þó að vita hver á stjómmálaflokkinn sem það kýs. Því kaupir Svarthöfði Svarthöfða með geði glöðu. Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.