Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2004, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004
Fréttir 0V
Senn hefjast tökur á myndinni Guy X en þær fara fram á Snæfellsnesi. Stjörnum
myndarinnar verða skaffaðir sérlegir bílstjórar en þær gista víðsvegar undir
Snæfellsnesi.
Hilmir & Biggs saman í stormynd
Senn streyma til landsins erlendar kvikmyndastjörnur til að
leika og taka þátt í tökum myndarinnar Guy X sem framleidd er
í samstarfi Breta, Kanadamanna og fslendinga. Myndin verður
tekin á Snæfellsnesi, nánar tiltekið í Gufuskálum.
Fremstur í flokki stjarnanna er
Jason Biggs sem margir þekkja úr
myndinni American Pie - amerísk
gelgjumynd sem slær flestar út af
þeirri gerðinni. Hilmir Snær Guðna-
son, okkar maður, mun leika í
myndinni en samkvæmt upplýsing-
um frá önnu Maríu Karlsdóttur
verða þeir ekki fleiri íslendingamar
sem leika í myndinni þó það hafi á
trma verið til skoðunar. Það er fyrir-
tækið Ex hf., sem er í eigu Önnu
Maríu og Friðriks Þórs Friðriksson-
ar, sem er íslenski framleiðándi
myndarinnar.
Þrjú burðarhlutverk em í mynd-
inni og hefur verið gengið frá sérleg-
um fylgdarmönnum stjarnanna -
bílstjórum. Anna María segir það
trúnaðarmál hverjir munu gegna því
hlutverki en stöðu stjarnanna hér er
þannig háttað að þeir þurfa á bil-
stjómm að haida. „Leikararnir gista
víða á nesinu og það þarf að koma
þeim til og frá vinnustað. En þeir
verða sem sagt látnir leika, þeim gef-
ið að éta og svo fá þeir þak yfir höf-
uðið eins og tíðkast í verkefnum sem
þessum," segir Anria María og mein-
ar að ekki verði þeim hossað um-
fram það sem eðlilegt má teljast.
Myndin byggir á skáldsögu John
Jason Biggs Þekktursem hinn bandaríski
ofurunglingur. Hann mun bráðlega verða á
vappi um Snæfellsnes þvert og endilangt.
Griesemer sem heitir „No One
Thinks of Greenland" sem er svört
kómedía, sögð líkjast Catch 22 eftir
Joseph Heller. Leikstjórinn er Saul
Metzstein en hann kom meðal ann-
ars að gerð myndarinnar Train-
spotting. Þannig að Jason Biggs er
greinilega að vinna í að hverfa frá
ímynd sinni sem hinn ameríski of-
urunglingur. Hilmir Snær ætlar sér
ekki, samkvæmt heimildum DV, að
„teika" Biggs í leik sínum, enda tæp-
lega nokkur þörf á því.
jakob@dv.is 7
1 Hilmir Snær Mun efað líkum lætur
ekkigefa hinum erlendu kvikmynda-
stjörnum tommu eftirí myndinni. Hann
er líka á heimavelli, og ógleymanleg
senan er sú þegar hann liggur á Snæ-
fellsjökli í myndinni 101 Reykjavik. Mun
hann hafa lagt mikið á sig íhenni.
Björn Jörundur rit-
stjóri Bleikt og blátt
Fróði hefur nú ráðið til starfa
tónlistarmanninn og stjörnuna
Björn Jörund Friðbjörnsson til að
ritstýra tímaritinu Bleikt og blátt,
tímariti um kynlíf. Því er í nægu að
snúast hjá Birni á næstunni en auk
þess syngur með Ný dönsk og rekur
hljómsveitina íslenska fánann.
Þess var óskað af Magnúsi Hregg-
viðssyni, forstjóra Fróða, að hinn nýi
ritstjóri tjái sig ekki um málið í fjöl-
miðlum, það sé ekki trmabært.
Davíð Þór Jónsson, þýðandi og
skemmtikraftur, ritstýrði tímaritinu
í ijögur ár. „Ég óska Birni alls hins
besta. Ég þekki Bjöm Jörund af góðu
einu, frumlegur, skemmtilegur og
kjarkmikill maður. Óska honum
góðs gengis og vona að útgefendum
beri gæfa til að standa á bak við
hann til góðra verka."
Ragnar Pétursson er fráfarandi
ritstjóri. „Ég er ekkert að hætta í illu
og á eftir að ritstýra einu tölublaði
til. Þetta hefur verið skemmtileg
reynsla." Aðspurður segir Ragnar
þessa reynslu sína ekki hafa orðið til
að kynna sig fyrir íslensku þjóðinni
sem klámkóng eða Larry Flynt ís-
lands. „Þetta var bara vinna eins og
allt annað."