Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2004, Qupperneq 12
12 LAUGARDACUR 24. APRlL 2004
Fréttir DV
Móðgun á
Hvanneyri
Skólafélag Landbúnaðar-
háskólans á Hvanneyri hef-
ur óskað eftir
fundi með land-
búnaðamefnd Al-
þingis til að ræða
um frumvarp til
laga um búnaðarfræðslu,
sem fjallar m.a. um stofnun
Landbúnaðarháskóla í stað
Landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri og Rannsóknar-
stofnunar landbúnaðarins.
Nemendur em mjög
ósáttir við að ekki skuli vera
rætt við þá um fyrirhugaðar
breytingar. Einkum er
óánægja með að samkvæmt
frumvarpinu er ekki gert ráð
fyrir fulltrúa frá nemendum
í háskólaráði Landbúnaðar-
háskólans.
Kennara-
prikið á rík-
isstjórnina
Félag grannskóla-
kennara mótmælir harð-
lega öllum áformum um
að innheimta skólagjöld
við Háskóla íslands og
öðram ríkisreknum há-
skólum. Segir félagið að
slíkar áætlanir grafi und-
an einni meginstoð ís-
lenska velferðarkerfisins
sem er gjaldfrjáls al-
menningsmenntun.
Tölvuárás á
trillukarla
Erlendir tölvuþrjótar
gerðu nýverið árás á vef-
þjóninn sem sér um
heimasíðu Lands-
sambands smá-
bátaeigenda. Frétt
um árásina birtist
á heimasíðu LS,
en þar birtast
vanalega fréttir
um sjávarútveg. í
fréttinni segir að fjöldi
vírusforrita hafi verið
sendur inn á svæðið þar
sem lesendur geta ritað inn
athugasemdir við fréttir. Tii
að mynda sluppu inn nokk-
ur vírusforrit aftan við frétt
13. apríl sem fjallar um
fund Árborgar, félags smá-
bátaeigenda á Suðurlandi,
og ber titilinn: „Formaður
Árborgar - maður hefur
það á tilfmningunni að
þarna sé komin ný tegund
af þorski - jaðarþorskur!"
Landsíminn
„Það er alveg frábært að vera
hérna. Fyrirþá sem geta veriö
einir, “ segir Hafsteinn Eirlks-
son, veðurathugunarmaður á
Hveravöllum milli Langjökuls
og Hofsjökuls. Hafsteinn hefur
dvalistþarí
fjögur ár ásamt
eiginkonu sinni Kristínu
Björnsdóttur, en þau eru Isfírð-
ingar.„Ég myndi segja að það
sé miklu verra veður I byggð
heldur en hér. Miðað við veðr-
ið fyrir vestan er þetta bllða,"
segir Hafsteinn sem kemur af
fjöllum I lok júlí þegar veður-
athugunarstöðin verðurgerð
sjálfvirk.
Starfsmenn félagsmálaráðuneytis greiddu sjálfir flug og gistingu vegna vinnu- og
skemmtiferðar til Prag. Þeir fengu þó laun og skattfrjálsa dagpeninga þegar þeir
voru í opinberum heimsóknum en engar greiðslur fyrir þá daga sem þeir voru að
skemmta sér. Ráðuneytið segir þetta fjórðu slíku ferðina sem farin sé með blessun
ríkisendurskoðunar.
A dagpeningum
í blandaöri íerö
„Starfsmenn voru ekki
í orlofi þann tíma sem
laut að fundum og
fræðslu en í orlofi á
öðrum tíma íferðinni/'
Sautján starfsmenn félagsmálaráðuneytisins greiddu sjálfir
bæði flug og gistingu til Prag þar sem þeim var gert að mæta af
hálfu ráðuneytisins í opinberar heimsóknir. í staðinn fengu
starfsmennirnir laun og 30 þúsund krónur í dagpeninga.
Ferðin var farin á vegum starfs-
mannafélags félagsmálaráðuneytis-
ins dagana 18. til 22. mars síðastlið-
inn. í sameiginlegu svari ráðuneytis-
ins og starfsmannafélagsins við
fyrirspurn DV segir að ferðin hafi
verið skipulögð sem fræðslu- og
skemmtiferð.
Ríkisendurskoðun með
í ráðum
í fræðsluhluta ferðarinnar var
ráðuneytisfólkinu gert að mæta í
tékkneska inn-
anríkisráðu-
neytið til að
hlýða á umræð-
ur um breyting-
ar og umbætur
á tékkneskri
stjórnsýslu,
með sérstakri
áherslu á sveit-
arstjórnarstig-
ið. Einnig
þurftu starfs-
menn að mæta
Hótel Adria Sautján á kynningu og
starfsmenn félags- félagsþjónustu
málaráöuneytisins og sveitarfélaga í
tóifmakarþeirra Tékklandi í
dvolduaþessu fjogurra , *. ~ ,
stjörnu hóteli við boðl Pra8borg-
Wenceslas-torgið i
hjarta Prag í siðasta „Kostnaðar-
mánuði. þátttaka ráðu-
neytisins í ferð-
inni er liður í endurmenntun starfs-
manna. Fordæmi eru fyrir þess hátt-
ar fyrirkomulagi sem komið var á að
framkvæði starfsmannafélagsins.
Hafa áður.verið farnar 3 slíkar ferðir,
að jafnaði með tveggja ára millibili.
Var haft samráð við Rikisendurskoð-
un um fyrirkomulag við kostnaðar-
þátttöku ráðuneytisins," segir í svari
ráðuneytismanna.
í góðu atlæti í fjórum stjörn-
um
Starfsmennirnir sautján og tólf
makar létu fara vel um sig í Prag.
Dvalist var á Hótel Adria sem er
dæmigert fjögurra stjörnu hótel
með hárþurrku og mini-bar á her-
bergjunum. Samkvæmt verðskrá
Heimsferða kostaði flugið og næt-
urnar fjórar tæpar 53 þúsund krónur
á manninn miðað við tveggja
manna herbergi. Eins og áður segir
greiddu starfsmenn þá upphæð
sjálfir.
„Ráðuneytið greiddi starfsmönn-
um sínum um það bil 30.000 krónur
sem samsvarar dagpeningum fyrir
þann hluta ferðarinnar sem sneri að
fræðslu og fundum sem starfsmenn
áttu í innanríkisráðuneyti Tékklands
með ráðherra og embættismönnum
og aðstoðarborgarstjóra og emb
ættismönnum sveitarfélagsins
Prag. Makar stóðu sjálfir straum
af sínum kostnaði," segja ráðu- j
neytið og starfsmannafélagið.
Dagpeningarnir verða ekki
skattlagðir framvísi starfs-
fólki kvittun fyrir ferða
kostnaðinum til skattayfir-
valda.
Sumir daganna or-
lofsdagar
„Starfsmenn voru
ekki í orlofi þann
tíma sem laut að
fúndum og
fræðslu en í orlofi
á öðram tíma í
ferðinni," segja
ráðuneytismenn
aðspurðir um
hvort starfsfólkið hafi verið á sínun
venjulegu launum í Prag
„Sá tími sem telst til funda og
fræðslu er 18. og 19. mars," segir
ráðuneytið nánar spurt um þetta at-
riði. Að sögn Hermanns Sæmunds-
sonar ráðuneytisstjóra vora áður-
greind skyldustörf ráðuneytis-
manna, heimsóknirnar tvær
innanríkisráðuneytið og í
ráðhúsið í Prag, þó unnin
sama daginn, föstudag-
inn 19. mars.
Þess má geta að ferðin
hófst fimmtudaginn 18.
mars og henni lauk
mánudaginn 22. mars.
Þannig hefur ráðuneyt-
isfólkið aðeins misst úr
einn frídag vegna farar
sinnar til Prag.
Samtals var
kosmaður vegna
dagpeninganna
fyrir starfs-
mennina
517 þúsund krónur. Eini annar
kostnaðurinn sem félagsmálaráðu-
neytið segist færa á þessa ferð er
29.480 króna risna vegna hádegis-
verðarboðs Áma Magnússonar fé-
lagsmálaráðherra með innanríkis-
ráðherra Tékklands.
Greinargerð um
ferðina er í
vinnslu hjá fé-
lagsmálaráðu-
neytmu. Ekki
náðist í ráð-
herrann sem
lagði upp í
ferðalag til
Kanada síð-
asta vetrar-
dag.
gar@dv.is
Ámi Magnússon Fór fyrir sinu
fólkí i félagssmálaráðuneytinu i
blandaða vinnu- og skemmtiferö
tUPrag. Ráduneyti Árna Magnús-
sonar segir rikisendurskoðun hafa
samþykkt þá tilhögun að storfs-
menn greiddu sjálfir ferðakostnað
en fengju laun og dogpeninga
fyrir að mæta a tékkneskar stjórn-
sýslukynningor.
Jákvæð áhrif bankasamninga
Stórframkvæmdir í miðbæ Hafnarfjarðar
Uppsveifla á skuldabréfum
Eftir fremur tilþrifalítil viðskipti á
skuldabréfamarkaði í vikunni tók
skuldabréfamarkaður heldur betur við
sér á miðvikudag og lækkaði ávöxtim-
arkrafa verðtryggðra ríkisskuldabréfa
um 4 til 6 punkta. Töluverð viðskipti
lágu að baki lækkun kröfunnar eða 8,2
milljarðar en langsamlega mest við-
skipti vora með húsbréf eða 7,2 millj-
arðar. Ástæða lækkunar kröfúnnar í
dag má meðal ann-
ars
s.SSHf
rekja til að íbúðalánasjóður tilkynnti
um samningaviðræður við Deutsche
Bank um mögulegt hlutverk bankans í
tengslum við útgáfu og skuldabréfa-
skipti vegna áædaðrar endurskipu-
lagningar á skuldabréfaútgáfú íbúða-
lánasjóðs.
í „Hálf fimm fréttum" KB banka
segir að tilkynningin staðfesti að
hreyfing sé á endurskipulagningu
sjóðsins. Einnig má geta þess að
Barclays Bank birti nú nýverið grein-
ingu á íslenska skuldabréfamarkaðn-
um sem var mjög jákvæð og staðfestir
aukinn áhuga erlendra fjárfesta á inn-
lendum skuldabréfamarkaði. En
innlendir raunvextir hafa
lækkað mikið að undan-
förnu og hafa aldrei verið
lægri en nú. Þrátt fyrir það bú-
ast þó flestir við að ávöxtunar-
krafa verðtryggðra bréfa muni
halda áfram að lækka..
Umhverfisslys
í hjarta bæjarins
„Ég myndi tvímælaust segja að
hér sé um umhverfisslys að ræða,"
segir Jóhann Skagfjörð, kennari og
varaformaður Ungra ffamsóknar-
manna í Hafnarfirði. Miklar ffarn-
kvæmdir standa yfir í miðbæ Hafn-
arfjarðar. Reisa á stóra byggingu á
hinu fræga Thorsplani sem er eini
græni reiturinn í miðbænum. Hálft
túnið hefur verið grafið upp og
gagnrýnir Jóhann bæjaryfirvöld fyrir
að hlusta ekki á rödd almennings
sem vill halda túninu eins og það er.
„Fyrir síðustu kosningar barðist
Samfylkingin manna harðast fyrir
því að koma á íbúalýðræði," segir
Jóhann. „Nú eru þeir komnir í stjórn
og þá virðist þetta ekki gilda um þá,“
bætir Jóhann við. Lúðvík Geirsson,
bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir um-
Thorsplanið Hefurlöngum verið friðað og er
eini græni reiturinn i miðbæ Hafnarfjarðar.
ræðuna villandi. „Þessi mikli upp-
gröftur á túninu er til kominn vegna
bílakjallara sem á að vera undir
byggingunni," segir Lúðvík. „Húsið
sjálft mun hins vegar ekki ná svona
langt inn á túnið svo hér er um
ákveðinn misskilning að ræða."
simon@dv.is