Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2004, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2004, Qupperneq 31
DV Fókus LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 31 legt að hugsa til þess að manni eigi kannski alla tíð eftir að leiðast svona frekar í allri annarri vinnu en þeirri sem snýst um fjölmiðla og hasarinn þar. Það allra skemmtUeg- asta sem ég hef gert var reyndar fréttamannsstarfið sjálft. Ekki fréttastjórastarfið, hvað þá stjórn- arstörf önnur. Það er svo ófyrirsjá- anlegt og dýnamískt starf; maður veit aldrei hvað næsti dagur ber í skauti sér. Starfið mitt núna er nátt- úrlega talsvert annað en þetta dag- lega fréttahark, ég er ekki inni á fréttastofunni daginn út og inn, heldur er meira í því að móta heUd- arstefnu fyrirtækisins hvað snertir dagskrána og framsetningu hennar. En það er gaman að halda tengslum við gamla starfið með því að fá tækifæri til að lesa fréttirnar." Tvöfaldur afi Veistu hvers vegna þú varst feng- inn tU þess? „Ja, ætli þeir sem þar ráða húsum hafi ekki bara talið það skásta leik- inn í stöðunni? Ég hef hreinlega ekki spurt að því. Ég greip bara tækifærið og flnnst þetta aUtaf jafn gaman.“ Hann segir mér svolítið frá aðal- starfl sínu sem felst í að skipuleggja stefnu n og dagskrá hjá þeim sex útvarpsstöðvum og fimm sjónvarps- stöðvum sem íslenska útvarpsfélag- ið rekur. Svo hlær hann við. „Sem betur fer er það mjög hugmyndaríkt og frjótt fólk sem vinnur hérna, bæði í sjónvarpi og útvarpi, svo það þarf út af fyrir sig lifla hjálp ffá miðaldra manni eins og mér við að fá skemmtUegar hugmyndir. Þannig að ég held mig í hæfilegri fjarlægð og gef starfsfólkinu býsna lausan taum- inn, þó ég taki þátt í að móta heUd- arstefnuna og beri síðan endanlega ábyrgð á því sem gert er." Nú finnst mér ég vita allt um Pál og veru hans á Stöð 2 gegnum tíð- ina. Og kominn tími tU að kynnast þessum ljúfa manni á annan hátt en sem fréttalesara. Svo ég spyr hann um lífið utan vinnunnar. „Ég er afskaplega sáttur við mitt hlutskipti í lífinu," svarar hann strax. „Ég á tvær dætur af fyrra hjónabandi og er orðinn tvöfaldur afi því þær eiga nú hvor sína dótturina. Svo á ég tvö börn úr seinna hjónabandinu svo það er nóg af h'fi í kringum mig. Og það er voðalega gaman." Ekki góður jarðvegur fyrir fjölsky Iduííf Ég dirfist að spyrja hann um skilnaðinn við fyrri eiginkonu sína. Hann veltir vöngum en segir loks að sér hafi líklega ekki gengið neitt sér- staklega vel fýrst í stað að samhæfa fjölskyldulífið og vinnuna. „Upphafsárin á Stöð 2 fólu í sér gríðarlega vinnu og maður vann myrkranna á mUli. Svo var maður blautur á bak við eyrun, ungur og hress og fullt af truflandi elementum í kringum mann. Það má kannski segja að það hafi ekki verið góður jarðvegur fyrir fjölskyldulífið," segir hann síðan. En hann bætir því við að nú sé lífið allt öðruvísi og meira jafn- vægi í tUverunni. „Þessi truflun öll er að mestu far- in og maður er orðinn sjóaðri í bransanum svo það er færra sem kemur manni úr jafnvægi þótt vinnudagurinn sé aftur sem áður oft ansi langur." Hann kveðst oftast vera í vinn- unni frá klukkan hálfníu á morgn- anna tU hálfátta á kvöldin á virkum dögum, þannig að vart er hægt að segja að hann liggi á meltunni. „Neeei," samsinnir hann. „En ég er voðalega rólegur í þessu starfi núna. Ég er búinn að afgreiða allan þann hégómaþátt sem starfi í sviðs- ljósinu tengist. Ég var hins vegar ungur fyrst þegar ég varð þekktur í þjóðlífinu og ég get ekkert neitað því að vissulega truflaði það mann og kitlaði hégómagirndina. Og já, eitt- hvað gekkst ég upp í því. Því get ég ekki almennilega neitað." Svo brosir hann. „En það er löngu liðið." Allir komu þeir aftur og eng- inn þeirra dó í bókinni Á bak við tjöldin eftir Jón Óttar Ragnarsson, þar sem rakin eru upphafsár Stöðvar 2, er sagt frá því þegar nokkrir aðalkarlarnir á Stöðinni fóru í veiði í Haffjarðará og endaði bflferðin sú með ósköpum. BUlinn valt og þóttust höfuðpaur- arnir góðir að hafa sloppið án telj- andi meiðsla. Ég get ekki sleppt því að spyrja Pál hvað hafi eiginlega gerst. Hann segir ferðina engin stór- tíðindi. „Þetta var ekki meira drama en ein lítU bflvelta," segir hann. „BU- stjórinn keyrði út af og bflfinn valt. Allir komu þeir aftur og enginn þeirra dó.“ Var áfengi með í för? „Bflstjórinn var ekki í glasi," segir Páll ákveðinn. „Hinir í bflnum hafa sjálfsagt verið búnir að drekka eitt- hvað." Og fyrst við erum farin að tala um áfengi spyr ég Pál hvað hafi orðið tU þess að hann fór í meðferð fyrir nokkru síðan. Hann færist hreint ekki undan spurningunni. „Það rann bara upp fyrir mér fyrir tæplega þremur árum að ég væri farinn að hafameiri ama af því að nota áfengi en ánægju," segir hann. „Áfengið var orðið mér tU meiri leiðinda en gleði. Og ég held að þegar þetta rennur upp fyrir manni, þá sé niðurstaðan aðeins ein. Maður verður bara að hætta. Og það er bara eitthvað sem maður verður að ákveða með sjálfum sér." Drykkjuskapur: stutta útgáf- an Varstu mikill drykkjumaður? „Tja, að minnsta kosti nógu mUdU tíl að komast að þessari niðurstöðu," segir hann. „Það er stutta útgáfan af þessu. Sú lengri er auðvitað flóknari eins og hjá öUum sem taka þessa ákvörðun, en við skulum ekkert fara nánar út í það. Þetta voru bara þátta- skU hjá mér. Viðskiptajöfhuðurinn var orðinn óhagstæður, ef svo má segja." Mér leikur forvitni á að vita hvort hann haldi að meðferðin eigi ein- hvern þátt í sterkri innkomu hans á skjáinn nú á útmánuðum. „Ja, mér líður að minnsta kosti betur eftir en áður. Vonandi skUar það sér í betri frammistöðu í því sem ég tek mér fyrir hendur." Getur ekki verið erfitt fyrir fólk, sem lifir að hálfu leyti opinberu lífi í sjónvarpinu, að takast á við persónu- leg vandamál svo að segja fyrir allra augum? „Jú, að sjálfsögðu," svarar hann hreinskilnislega. „Það hlýtur að skína í gegn á endanum ef fólk er alveg í keng í lífi sínu. Það getur enginn strítt við alvarlegt stress án þess að þess sjáist einhver merki." Fimmtugsafmælið yfirvof- andi Hefur þú sjálfur átt við slflc vanda- mál að stríða? „Ja, bara eins og hver annar. Það eiga allir sína dali og sínar hæðir í lífinu og ég ekkert síður en aðrir. En maður verður að bera sig bærilega þó eitthvað gangi á og ég held að slíkt hafi ekki haft mikU áhrif á mína framkomu í sjónvarpi. „The show must go on“ og aUt það. Auk þess hafa mín vandamál verið lítU hjá því sem hendir ýmsa aðra, svo ég kvarta ekki. Og nú líður mér sem sagt alveg prýðUega, og rúmlega það." Það er líka á honum að sjá. Ég hafði sannfrétt að PáU yrði fimmtug- ur í sumar en ekki skynjar maður að hann hafi áhyggjur af þeim ú'mamót- um. Ég spyr hvort hann æth að halda upp á afimælið sitt með viðhöfit. „Já, svo sannarlega," segir hann og brosir breitt. „Það verða úti- skemmtanir um aUan bæ á afmæUs- daginn. ÖUum boðið. Böm fá pylsur og kandífloss eins og hver vUl. Skemmtiatriði við höfnina og í Hljómskálagarðinum. AUar helstu hljómsveitir landsins leUca fyrir dansi langt fram á nótt." Og hann skeUihlær um leið og hann segir mér að hann eigi afrnæli 17. júm'. Var farínn aö hafa meiri ama af þvi að nota áfengi en ánægju." rmk rUi.1 1 STR'lfií V?fVlR A6JÖF WTfíif t OFH • BoR T FRA6' 6EJTA ' 6061 ■ HJN0$ T fj i* JS' 2 í / APru/? K> LUIJL slMÍh ÍANDI/W SETT uyo 3 j í D'iKI TUHGL Wjjm osm H\ I ííim LEim BLAí) FÆfil 5 í \ I *T" 1ANAK DUódiK 11 (o j f Bjbfó UTAK ' BifyfiA REIfí SLAlfcA FRE5A 2lÍ ? sihm DDLAST w V 8 j 2J tvt mm ÚUM L£0U- FÆH1 i i m $m\ 'ALfA HFSm 10 í i r9 13 orm 3 HömA V . væta wr M'öfiuR 5KEL 5KEMMA m- spim 11 tóAFÁRl g-ecm 'ALPA5Í FHmu SPYRól í /3 i 8 mm u/VOjK- L£IT 12, V H mtinis ORuHu TfiJÖHfi V ~1S I fipíi- SPIL m '0H9 TIILLL Hum 2S Ho » F SVfLli- UfilfÍN FSPA BcUAKA 'fiíom 1? p? SNtlÖ f Eim KALDl 23 SÍtlFLfi )8 /ET'lF) 1 1 WL E&6JA IH J£PL BF rMm 20 flF- KVÆMI H SVEFH 5XVETTA m 'A5AKA 21 r? /í mn 2D RAMMl 'AHALD/ 22 ffirf TOTT' Afil VOTIR if ANÖA TK'ITL 23 * VEIKi JU'Alft HÆRR1 KISM 2H HhSL- fljEH SAMT H ÞTO TRt 25 N '1 MjÖ6r K/\PP-' 5ÓM % m 'om 6 KÖOAfi f?£YKI fiÓLT KLAMP 5TÍA 1 RUÉrÍ V- MUKlV' U8 \(kUTI FRAM' tmm MJÚK 6 R'OF MÖIT MH m Att HÆQl SKbLl p” 10 HKATT F s K 6r LfÐ 5V hR- f\R ZH FLÖKTl T* henny@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.