Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2004, Side 47
DV Síöast en ekki sist
LAUGARDAGUR 24. APRlL 2004 4r
Hlutskipti okkar listamanna
Vignir Jóhannesson velur þessa
vikuna myndina sem hann man eft-
ir.
„Mér dettur einna fyrst í hug
myndin Blindur leiðir blindan eftir
hollenska málarann Pieter Brueghel
sem uppi var á sextándu öld. Þegar
ég var í myndlistarskóla á sínum
tíma kynnti Björn Th. Björnsson
okkur nemendur sína fyrir þessari
mynd og hún hafði strax áhrif á mig.
Ég veit ekki hvort og þá að hvaða
leyti hún hefur haft áhrif á mig sem
myndlistarmann en þetta er bæði
ægilega flott mynd og svo er hugs-
unin í henni eitthvað skyld hlut-
skipti okkar myndlistarmanna og
listamanna yfirleitt. Einn leiðir ann-
an og enginn veit hvert þeir
eru að fara því jafnvel for-
inginn er blindur. Þetta
finnst mér táknrænt fyrir
listafólk því það er alltaf
að leita að einhverju en
verður eins og að fálma sig
áfram í myrkri. Maður veit í
rauninni ekkert hvert maður
er að fara. En ef maður kemst
þó ekki sé nema eitt skref
áfram, þá er maður þó alla
vega kominn eitthvað
áleiðis."
Vignir Jóhannesson
Myndlistarmaður
Hvar eru þau nú
Bryndís Petna *
Bragadóttin
Bryndrs Petra úrskrifaðist úr
Leiklistarskóla íslands árið 1986 og
við tóku verkefni hjá Leikfélagi
Reykjavrkur, Þjóðleikhúsinu, Leikfé-
lagi Akureyrar og ýmsum leikhóp-
um. Hún lék meðal annars í leik-
gerð skáldsögu Vígdísar Grímsdótt-
ur, Ég heiti lsbjörg, ég er ljón. Árið
1997 eignaðist Bryndís Petra dóttur
og lagði leiklistina til hliðar um
sinn. „En svo hef ég verið að pota
svona í hana síðustu árin. Ég hef
meðal annars leikið hina einu
sönnu Gilitrutt og húsfreyju Átján
barna föðurs í álfheimum í mynd-
bandi um íslenskar þjóðsögur sem
Spaugstöfubræðurnir Örn Árnason
og Sigurður Sigurjónsson gáfu út.
Síðastliðið haust var ég ein þeirra
sem setti upp leikverkið Dagbók
önnu eftir Kristján Hreinsson en
þar er tekið á átröskunum og afleið-
ingum þeirra. Nú er ég bara sjóð-
heit og tU í allt varðandi leiklistina,"
segir Bryndís Petra Bragadóttir,
leikkona og móðir.
• Á Pressuballi Blaðamannafélags-
ins í vikunni vakti athygli sá mikli
fjöldi fjölmiðlamanna sem
mætti til að endurvekja
þennan foma sið. Ræðu-
maður kvöldsins var Logi
Bergmann Eiðsson, varaf-
réttastjóri Sjónvarpsins, sem
fór á kostum með stuttum
hléum. DV var Loga hugleik-
ið og kom blaðið reglulega
við sögu í ræðu hans svo
ljóst má vera að hann er meðal
tryggustu lesenda. Fylgikona Loga
var að vanda, Kasdjósrósin hnellna
Svanhildur Hólm Valsdóttir
sem geislaði af kynþokka og
hamingju. Logi hafði á reið-
um höndum afsakanir vegna
þess að RÚV fékk ekki verð-
laun en það var að hans
sögn vegna gleymsku Boga
Ágústssonar yfirfréttastjóra,
sem ekki hafði gefið sér tíma
til að gaumgæfa verk undir-
mannanna...
Á ótraustum Egilskössum
„Markmiðið er hve hátt þú
kemst áður en þú dettur," segir Val-
geir Elíasson, upplýsingafulltrúi
Slysavarnafélagsins Landsbjargar. í
dag fer fram íslandsmeistaramótið
í kassaklifri. Mótið fer fram í húsi
Orkuveitunnar en undankeppnir
hafa verið háðar víðsvegar um land
þar sem þátttakendur hafa verið á
annað hundrað tals-
ins.
„Það eru um tíu
ár síðan við byrjuð-
um að stunda
þetta," segir Valgeir.
„Fyrir ári síðan
ákváðum við svo að
halda íslandsmeist-
aramót til að
efla sportið
i n n a n
o k k a r
raða en
kassaklif-
ur hefur
n o t i ð
mikilla
vinsælda
m e ð a 1
skáta og
L a n d s -
bjargar."
Valgeir segir kassaklifur nokkuð
sérstakt sport. Það gangi út á að
raða upp Egilskössum og klifra að
minnsta kosti átta metra upp í loft-
ið. íslandsmetið sé reyndar 36 kass-
ar og segir Valgeir að þeir sem eru
góðir í kletta- eða ísldifri séu líka
góðir í þessu.
„Mikilvægast er þó að menn
læra að horfast í augu við óttann.
Það er ótrúleg tilfinning að standa á
fimmtán metra háum stafla af köss-
um og hafa ekkert nema
eina línu sem bjargar þér
ef þú dettur," segir
Valgeir. „Þannig fá
krakkarnir dýr-
mæta reynslu sem
vonandi nýtist þeim
þegar alvaran tekur
við."
Mótið hefst klukk-
an eitt í dag. Keppend-
ur eru á aldrinum 13 til
18 ára og hvetur Valgeir
sem flesta að mæta og
fylgjast með þessu
óhefðbundna jaðarsporti
sem er á góðri leið með að
verða nýtt „æði" hjá ís
lenskum ungmennum.
MMfíJtl
WÆm/A
BLIKKSMIÐJA GYLFA EHF
BÍLDSHÖFÐA 18 • 110 REYKJAVIK • SIM1 567 -1222 • FAX 567 4232
Á undanfömum árum hefur það færst í vöxt að gera upp gömul
hús víða um land og þar kemur bárujámið sannarlega við sögu.
Einnig hafa hönnuðir húsa aldrei lagt bárujámið á hilluna þrátt
fyrir miklar tiskusveiflur í hönnun. Það sést vel á mörgum nýjum
húsum. Blikksmiðja Gytfa býður uppá heildarlausnir á þakfrágangi
og veggklæðningum úr bárujámi. Allir fýlgihlutir eru framleiddir
hjá Blikksmiðju Gylfa og ávallt til á lager. Þaulreyndir fagmenn
með áratuga reynslu eru til staðar og veita tæknilegar upplýsingar
og ráðgjöf. Nóg er að koma með teikningar á staðinn og
fagmenn Blikksmiðju Gylfa finna réttu lausnina.
FlUUUnUUMUUIH