Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2004, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRlL 2004
Fréttir DV
Fartölvum
stolið
Að sögn lögreglunnar í
Kópavogi var brotist inn í
tvær bifreiðar um
helgina. Önnur stóð
við Smáralind og úr
henni var stolið far-
tölvu. Hin bifreiðin
stóð við Smiðjuveg
en ekki er ljóst
hvort einhveiju var
stolið úr þeirri bif-
reið. Síðdegis á
fostudag var tilkynnt um
innbrot í íbúðarhúsnæði við
Liduvör. Þar hafði verið
stolið fartölvu og leikjatölvu.
Málin er í rannsókn.
Kaffistofu-
þýfií
Hafnarfirði
Lögreglan í Hafnar-
firði handtók um helgina
íjóra unga menn. Að sögn
lögreglunnar munu í fór-
um þeirra hafa fundist
munir sem tengjast inn-
brotum í Litlu kaffistof-
una um helgina. Grunur
er um að mennirnir hafi
brotist þar inn eða eigi
hlutdeild í innbrotinu.
Málið er í rannsókn en
þeir sem geta veitt upp-
lýsingar eru beðnir að
hafa samband í síma 480
1010.
HallaráSÁÁ
Framlag SÁA til sjúkra-
reksturs síns á árinu 2003
var 63 miUjónir og sam-
kvæmt rekstraráætíunum
stefnir að óbreyttum rekstri í
100 milijón króna halla á ár-
inu 2004. „SÁÁ getur ekki
bætt þennan halla. Allar
þessar breytingar kalla á ít-
arlegar viðræður milii heil-
brigðisráðuneytisins og SÁÁ
um kostnað og fjárframlög
til sjúkrastarfsemi SÁÁ,“ seg-
ir á heimasíðu SÁÁ um útíit-
ið fram undan varðandi
sjúkrahússrekstur samtak-
anna.
Logi Ólafsson er opinn og
þægilegur maður sem á auð-
velt með að sjá björtu hliðarn-
ar á hverju máli. Logi er gædd-
ur rtkri kímnigáfu sem hann
vill gjarnan miðla til samferð-
armanna sinna. Iðulega lyftir
hann fótboltalýsingum
íþróttafréttamanna Sýnar á
hærra plan með léttleika sln-
um og þekkingu.
Keppendur í Ungfrú Reykjavík fengu gamalt páskaegg og allt of stórar sokkabuxur.
Elín Gestsdóttir framkvæmdastjóri segir að gjafapakkinn frá Nóa-Siríusi hafi vald-
ið vonbrigðum.
Keppendahópurinn Þærsem komust
ekki i úrslit fengu slappar trakteringar.
Þeir keppendur í Ungfrú Reykjavík um helgina sem ekki komust
í úrslit fengu heldur snautíega gjafapakka að keppni lokinni.
Fyrir utan baðföt og þriggja mánaða kort í líkamsrækt reyndist
súkkulaðigjafapakki frá Nóa-Siríus vera gamalt páskaegg og frá
Oroblu kom extra large sokkabuxur. Þess utan vantaði eitthvað
upp á samskiptin, því einhverjar stúlknanna sem ekki komust í
úrslit héldu að þær myndu fá að vita um það símleiðis og biðu
árangurslaust marga klukkutíma eftir símtali.
Móðir einnar stúlkunnar segir
þessa framkomu fyrir neðan allar
hellur. „Það er ekkert að því að
dóttir mín hafi ekki komist áfram,
það er eins og gengur og gerist. En
eftir allt erfiðið voru gjafapakkarnir
sem þessar stúlkur fengu ekki beint
veglegir. Raunar niðurlæging eftir
alla vinnuna. Ekki síst finnst mér út
í hött að gefa gamalt páskaegg,
enda páskarnir löngu liðnir."
„Til háborinnar skammar"
Þessi móðir, sem ekki vildi
koma fram undir nafni, segir að
þetta hafi ekki verið það eina sem
olli hneykslan af því sem stúlkurnar
fengu að keppni lokinni. „Þegar
pakkinn frá Oroblu var opnaður
komu í ljós allt of stórar sokkabux-
ur, sem sé extra large. Það er bara af
því að dóttir mín á svo feita móður
að þessar sokkabuxur nýtast.“
17 stúlkur tóku þátt í keppninni
en þrjár fengu tilkynningu um að
þær hefðu komist í úrslit. Hinar
biðu sumar hverjar í ofvæni eftir
því að fá fréttir um afdrif sín og að
minnsta kosti einhverjar þeirra
töldu að hringt yrði og þær allar
boðaðar á fund þar sem niðurstað-
an yrði kynnt. Þær fengu hins vegar
engar fréttir frá keppnishöldurum,
en fréttu með óbeinum hætti hverj-
ar hefðu komist áfram. „Mín stúlka
beið allan daginn en það var aldrei
hringt. Hún er eðlilega mjög
móðguð og sár. Þetta ofan á þessar
undarlegu gjafir er til háborinnar
skammar," segir fyrrnefnd móðir.
Undrandi yfir páskaegginu
Elín Gestsdóttir, framkvæmda-
stjóri keppninnar, segir að það hafi
enginn keppandi átt að þurfa að
bíða í ofvæni. „Við sögðum við
keppendur fyrir klukkan þrjú síð-
degis á laugardag að það yrði fyrir
kvöldmat hringt í þær þrjár sem
myndu komast áfram,“ segir Elín,
en eitthvað hafa þessi skilaboð illa
komist til skila.
Hvað gjafapakkana varðar segir
Elín að vissulega hafi nammipakk-
inn frá Nóa-Siríusi valdið vonbrigð-
um. „Við áttum von á veglegum
nammipökkum og vorum undrandi
að þetta reyndist vera páskaegg.
Það er við Nóa-Siríus að sakast í
þeim efnum. En að öðru leyti get ég
ekki tekið undir að illa hafi verið
gert við þær stúlkur sem ekki
komust áfram. Fyrir utan páskaegg-
ið og sokkabuxurnar fengu þær
baðföt og þriggja mánaða kort frá
líkamsræktarstöð. Allar fengu slfkar
gjafir og þær sem komust áfram
fengu fleiri og veglegri verðlaun."
fridrik@dv.is
Þátttakendur í Ungfrú Reykjavík
Nota þær extra large sokkabuxur?
Leigubílstjórar vilja aukið eftirlit með leigujeppum
Vilja meira eftirlit með ferðajeppum
Leigubílstjórar Vilja að jafnræði ríki Iakstri með ferðamenn.
Leigubílstjórar vilja að þeir sem
gera út sérútbúna jeppa og leigja þá
til fjallaferða með bflstjórum gangist
undir sömu kröfur og gerðar eru til
leigubfla og bflstjóra hvað snertir
tryggingar, kröfur um meirapróf og
opinber gjöld. „Margar jeppabif-
reiðar í atvinnuferðamennsku eru
skráðar sem einkabflar og tryggðar
sem slíkar," segir Jón Stefánsson,
varaformaður Bifreiðafélagsins
Átaks en í því félagi eru á annað
hundrað leigubflstjórar. „Á meðan
ég borga 480 þúsund í tryggingar á
ári þurfa þeir að borga mun minna."
segir Jón og bætir við að ekki sé
gengið eftir því að ökumenn þessara
Fjallaferðajeppi Leigubílstjórar viija hert
eftirlit með slikum rekstri.
jeppa séu með meirapróf. Dam'el
Björnsson, formaður leigubflstjóra-
félagsins Frama, tekur í sama streng:
„Það er losarabragur á eftirlitinu.
Menn komast upp með það í þessari
þjónustu að hringja í kunningja með
jeppa og biðja hann að skreppa með
túrista upp á Langjökul," segir Dan-
íel, sem telur aðalmálið það að eftir-
litið með þessum rekstri eigi að vera
strangt. Jón Stefánsson bendir
einnig á að af þessum ferðajeppum
sé ekki greiddur 25% hærri þunga-
skattur eins og á við um leigubfla.
„Þeir eru að taka frá okkur viðskipti,
til dæmis með ferðum á Gullfoss-
Geysi og í Bláa lónið þó svo að leyfið
eigi að vera vegna fjallaferða,*' segir
Jón: „Við viljum annað hvort að þeir
sitji við sama borð og við eða þá að
við fáum að sitja við sama borð og
þeir.“
Golfkúlum dreift
á götuleið
Aðfaranótt laugardagsins var
skemmdarverk framið á mann-
lausri bifreið sem stóð við bygg-
ingavöruverslunina Núp á ísa-
firði. Rúða var brotin í bifreið-
inni auk þess sem teknar voru úr
henni golfkylfur nokkrar og golf-
kúlur. Þessum kylfum og kúlum
hafði verið dreift á hefðbundinni
gönguleið frá versluninni og út
eftir Seljalandsveginum, áleiðis
, niður í bæinn. Hafi einhverjir
upplýsingar um hver framdi
verknaðinn eru þeir vinsamleg-
ast beðnir um að hafa samband
við lögregluna.