Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2004, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRlL 2004
Fréttir DV
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir 14 ára dóttur sína hafa verið í opinberri
sendinefnd ráðuneytisins til Kína. Ráðuneytið hafnar því enda hafi ekkert verið greitt fyrir dótturina.
Eiginmaðurinn hafi verið í nefndinni og ferðast á kostnað ráðuneytisins en hafnað dagpeningum. Ríkið
borgaði afmælisveislu eins sendinefndarmannsins. Seinlegt mun að greiða úr kortareikningum, sem eru
flestir á kínversku.
Fjórtán ára dáttir ráöherra í
opinberri senditör til Kína
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir 14
ára gamla dóttur sína og eiginmann hafa verið í opinberri sendi-
nefnd sem fór í vikuferð til Kína fyrr í mánuðinum.
f dagbók á heimasíðu sinni skýrir
ráðherrann frá ferðalaginu. Þar
kemur fram að í Kínaferðinni hafi
annars vegar verið um opinbera
sendinefnd að ræða, sem meðal
annars var skipuð eigimanni Val-
gerðar og 14 ára dóttur, og hins veg-
ar sendinefnd úr viðskiptalífmu, alls
30 manns frá 15 fyrirtækjum. Aðal-
tilgangur ferðar ráðherrans var að
sækja heim vörusýninguna í Guang-
zhou, sem áður hét Canton.
Eiginmaðurinn afþakkar dag-
peninga
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið
hafnar reyndar þeirri útlistun ráð-
herrans að dóttirin hafi verið hluti
hinnar opinberru sendinefndar. Það
hafi hún ekki verið og ráðuneytið
beri engan kostnað vegna ferðalags
hennar.
Arvid Kro, eiginmaður Valgerðar,
hafi á hinn bóginn verið meðlimur
sendinefndarinnar. í reglum ríkisins
segi að séu makar ráðherra með í för
fái þeir auk fargjalds og gistingar
greiddan helming þeirrar upphæðar
sem ráðherrar fái í dagpeninga:
„Samkvæmt þessum reglum
greiðir ráðuneytið fargjöld og gist-
ingu maka ráðherra, ráðherra hefur
ekki þegið greiðslu dagpeninga til
maka vegna þessarar ferðar né ann-
arra á undanförnum árum,“ segir í
svari ráðuneytisins til DV.
Alls voru sex manns í opinberu
sendinefndinni. Ráðuneytið segir
heildarkostnaðinn enn ekki liggja
fyrir. Þegar hafi verið lögð út um ein
milljón króna vegna ferða- og dval-
arkostnaðar. Kínversk stjórnvöld
muni þó greiða einhvern hluta
þeirrar upphæðar.
Ekki flýtir fyrir lokauppgjöri
vegna ferðarinnar að margar
greiðslukortakvittanir eru á kín-
versku. Búist er við að öll kurl verði
komin til grafar um miðjan júní.
Ferðamenn og grálúðutollar
„Á flugvellinum tóku á móti okk-
ur sendiherrann Eiður Guðnason og
Magnús Bjarnason sendifulltrúi. Við
biðum í VlP-lounge eftir töskunum
og síðan var haldið inn í borg. Við
gistum á Great Wall Sheraton hótel-
inu á 25. hæð," lýsir Valgerður kom-
unni til Kína sunnudaginn 11. febrú-
ar eftir strangt ferðalag sem staðið
hafði frá því á laugardeginum.
Valgerður og föruneyti skoðuðu
Kínamúrinn á sunnudeginum. Á
mánudeginum var hún viðstödd
þegar Eiður sendiherra undirritaði
samkomulag um ferðamál milli
Kína og íslands.
Þá hitti Valgerður viðskiptaráð-
herra Kína og bankastjóra Álþýðu-
banka Kína. Einnig ræddi hún við
varaorkumálaráðherrann. Um-
ræðuefnin voru meðal annars geng-
isskráning gjaldmiðla, tollar á grá-
lúðu og rækju og larðhitaskóli Sam-
einuðu þjóðanna, sem er á íslandi
og margir Kínverjar hafa sótt.
Skemmtikvöld hjá Eiði Guðn-
asyni
Eiður sendiherra og Eygló Helga
Haraldsdóttir, eiginkona hans, slógu
á mánudagskvöldinu upp veislu á
heimili sínu.
„Þar voru saman komnir öll ís-
lenska sendinefndin, nokkrir skipti-
nemar frá Viðskiptaháskólanum í
Bifröst, sem stunda nám í Shanghai,
og nokkrir Kínverjar, alls milli 70 - 80
manns," skrifar Valgerður og greinir
frá því að í samkvæminu hafi verið
undirritaður samningur milli Kína
og Islands um innflutning tfi Kína á
lyfinu Angelicu, sem unnið sé úr
hvönn.
í veislu sendiherrans reifaði ráð-
herra kenningar um hugsanleg
tengsl íslenska og kínverska drekans
í gegnum siglingar víkinga til Kon-
stantínópel, en íbúar þar áttu í við-
skiptum við Kína:
„Víkingarnir hafi hugsanlega tek-
ið með sér tU íslands vitneskjuna um
hinn magnaða dreka, ásamt silkinu
sem þeir keyptu og þannig hafi
drekinn orðið hluti af okkar skjald-
armerki síðar. Var þetta hið
skemmtilegasta kvöld, sem lauk
með því að Eygló sendiherrafrú spU-
aði nokkur lög á flygUinn, en hún er
lærður pínókennari," segir í dagbók
Valgerðar.
Ráðherra nuddaður á hóteli
Valgerður og fjölskydda ásamt
félögum sínum úr opinberu sendi-
nefndinni flugu á þriðjudeginum tll
Sjanghæ.
„Borgin er ein sú glæsUegasta
sem ég hef augum litið og minnir
helst á Manhattan í New York,“ seg-
ir ráðherrann um Sjanghæ.
Um kvöldið þáði flokkurinn
kvöldverð hjá varaborgarstjóra
Sjanghæ. Sama kvöld var Valgerður
sjálf með móttöku á fimmtugustu
hæð á hóteli sínu. Gestir voru ís-
lenska viðskiptasendinefndin og
nokkrúr íslendingar sem eru við nám
og störf í Sjanghæ.
Á miðvikudeginum heimsótti
Valgerður kauphöllina í Sjanghæ:
„Eftir þetta fékk ég nudd á hótel-
inu og síðan flugum við tU Guang-
zhou, þar sem hin geysistóra vöru-
sýning var formlega opnuð um
kvöldið," segir Valgerður.
Ráðherrann drifinn á svið
í Guangzhou var gist á Hotel
Landmark Canton. Farið var beint af
flugvellinum til fundar við fylkis-
stjóra Guangdong. Undir kvöld var
Valgerður viðstödd móttöku vegna
opnunar kaupstefnunnar.
„Á meðan á kvöldverði stóð fór
fram mUdl skemmtun, söngur og
dans, glæsUeg sýning, eins og Kín-
verjum er einum lagið. Eftir að því
lauk dreif ráðherrann Bo Xilai mig
og fleiri með sér upp á svið til að
heUsa upp á skemmtikraftana, sem
ég gerði með ánægju," lýsir ráðherr-
ann.
Á fimmtudeginum skoðuðu ís-
„Síðan fengum við
fjölskyldan okkur há-
degisverð á Hard
Rock, sem dóttur
minni fannst góð til-
breyting frá kínverska
matnumr sem hún
hafði þó verið mjög
dugleg við að borða."
lendingarnir vörusýninguna sem
var í tveimur geysistórum sýninga-
höllum. Þar segir Valgerður að hægt
hafi verið að sjá aUt sem framleitt sé
í Kína. Miklir möguleikar hafi verið
þar fyrir íslenska innflytjendur að
eiga viðskipti.
Lifandi dýr elduð ofan í af-
mælisgesti
„Síðdegis fórum við í verslunar-
ferð. Ótrúlega gott verð var á fatnaði.
Um kvöldið var farið út að borða í
tUefni afmælis í hópnum. Staðurinn
sem varð fyrir valinu var þannig að
hægt var að velja lifandi dýr á 1. hæð
og fá það matreitt á öðrum hæðum
hússins," lýkur Valgerður dagbókar-
færslu fimmtudagsins 15. aprfl.
Sá sem átti afmæli var Grétar Már
Sigurðsson, sem var fulltrúi utanrfk-
isráðuneytisins í sendinefndinni.
„Ráðherra vildi þakka opinberu
sendmefndinni, starfsmönnum
sendiráðsins og fýlgdarliði gott starf
við undirbúning ferðarinnar og að-
stoð á fundum og bauð tU kvöld-
verðar af því tilefni. Dagurinn var
valinn í tilefni af afmæli eins úr
sendinefndinni," segir ráðuneytið
sem greiddi um 30 þúsund krónur
fyrir afmælisveislu Grétars. Hann er
45 ára.
Svömluðu um með miklum
buslugangi
Kínaferðin hélt áfram á föstu-
deginum með því að flogið var tU
borgarinnar Xianyang. Þar hafa ís-
lendingar átt í viðræðum við borg-
aryfirvöld um hitaveitufram-
kvæmdir. Spjallað var við borgar-
stjórann.
„Eftir fundinn fóru þeir með
okkur í heimsókn á tvo staði,
og voru þeir auðsýrúlega
mjög stoltir af báðum. Annar
þeirra var sundlaug, geysistór
og mikil og greinUega mjög vin-
sæl af borgarbúum sem svöml-
uðu þarna um með miklum
buslugangi," segir í dagbók ráð
herra.
Um kvöldið segist Valgerður hafa
átt glæsUegan kvöldverð með fylkis-
stjóra Shanxi-héraðs.
„Ég spurði hann meðal annars
þegar við borðuðum matinn okkar
með pinnum eins og endranær,
hvort hann teldi miðað við öU þau
vestrænu áhrif sem augljóslega
væru í Kína, að pinnamenningin
mundi verða undir. Hann svaraði
því til að hitt væri alveg eins lfklegt
að við í hinum vestræna heimi
tækjum upp menningu þeirra og
færum að nota pinna í stað hnífa-
para af okkar gerð. Hann brosti við
þegar hann lét þessi orð falla."
Meira kínverskt nudd
Hið fræga safn með hinum
svoköUuðu Terracotta-hermönnum
varð viðkomustaður ráðherrans
laugardaginn 17. aprfl. Valgerður
segir staðinn hafi fundist fýrir 30
árum. Hann hafi að geyma á annað
þúsund leirhermenn og leirhesta
sem Quin keisari lét grafa fyrir um
2.200 árum tU að hafa tfi taks í næsta
lífi.
„Þetta var mjög tUkomumikið að
sjá og bóndinn sem uppgötvaði
þetta allt saman er nú um áttrætt
og vinnur þarna á safninu,
áritar bók um þetta fyrir-
bæri og leyfir gestum að
láta mynda sig með $ U
honum. í hádeginu
notaði ég tækifærið
og fékk mér kín-
verskt nudd, sem
var afar gott. Stúlk-
an sem nuddaði
mig kunni greini- |
lega tíl verka,"
skrifar iðnaðar- og
viðskiptaráðherra í
dagbók sína á valgerd-
Dóttirin fegin á Hard
Rock Café
Aftur var komið tU Peking
síðdegi á laugardeginum. Torg
hins himneska friðar og For-
boðna borgin voru skoðuð á
sunnudeginum:
„Þar fór
greinilega vel um þá keisara sem þar
ríktu þar sem þeir höfðu þarna borg
útaf fýrir sig og um 1000 þjónustu-
menn á sínum snærum! Síðan feng-
um við fjölskyldan okkur hádegis-
verð á Hard Rock, sem dóttur minni
fannst góð tUbreyting frá kínverska
matnum, sem hún hafði þó verið
mjög dugleg við að borða," segir í
dagbókinni.
íslenski hópurinn hélt loks áleið-
is heim á mánudeginum. Flogið um
Helsinki og Kaupmannahöfn til ís-
lands. „Þar með lauk þessari opin-
beru heimsókn, sem verður okkur
öllum lengi í minni, enda þetta land
um flest engu öðru lflct."
gar@dv.is
Valqerður Sverrisdóttir „Um kvöldið var
farið út að borða í tilefni afmælis í hópnum.
Staðurinn sem varð fyrir valinu var þannig að
hægt var að velja lifandi dýr á 1. hæð og fa það
matreitt á öðrum hæðum hússins," segir með-
al annars i skemmtilegum lýsingum úr Kma-
ferð idagbók iðnaðar- og viðskiptaráðherra.