Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2004, Page 24
I
4. 24 ÞRIÐJUDACUR 27. APRÍL 2004
Fókus DV
Ekki á leið
austur
„Það hefur ekki komið upp mis-
skilningur ennþá varðandi þetta en
ég var pínu undrandi þegar ég sá
fréttina og hélt að það væri verið að
ráða mig en ég er ekki á leið austur,
sendi nöfnu minni bestu kveðjur,"
segir Hrannar Pétursson. Alcoa til-
kynnti um helgina ráðningu Hrann-
ar Pétursdóttur í starf kynningar-
stjóra en nafni hennar Hrannar Pét-
ursson starfar hjá Alcan við sama
starf. „Fréttatilkynningin sem fór út
hljómar ekki svona," sagði Hrönn
Pétursdóttir „Ég hafði nú ekki tekið
sérstaklega eftir
þessu, þetta er
leikur að orðum
sem er svo sem
bara skemmti-
legur.“
Nú geta Idol aðdáendur farið að
hlakka til.Jón Sigurðsson brosmildi
Idol keppandinn sem lenti i öðru sæti
ætlar að gefaút plötu. Hann hefur
nýveriö gefið út lag sem hefur notið
dágóðra vinsælda. Lagið er Islenskt
en að öllum líkindum mun platan
vera á ensku. Áætlað er að platan
komi út með haustinu en Jón er i
samstarfí við Skífuna. DV náði tali af
Jóni og segir hann allt vera að gerast
Iþeim efnum.„Platan verður tribute
með lögum eftir Paul Simon, sem er
einn afminum uppáhaldstónlistar-
mönnum. En það er verið að afla til-
skilinna teyfa,“sagöi hann káturi
bragði.„En þetta er allt I startholun-
um og hefur platan ekki enn hlotið
nafn,“sagði Jón. Það kæmi fólki
kannski ekki á óvart efhún myndi
heita „Smile".
Karlar vilja líka
í Þjoðle
Allir Þjóðleikhússtjórar hafa verið karlmenn. í ljósi umræð-
unnar undanfarið virðist sem að breyting gæti orðið á en
senn líður að því að staðan verði auglýst til umsóknar. Leik-
húskonur stefna leynt og ljóst að þessari æðstu stöðu innan
íslensks leikhúss. Ekkert er þó gefið í þeim efnum eins og DV
hefur komist á snoðir um.
„Ég hef fengið áskoranir en hef
ekki tekið neina ákvörðun," segir
Kjartan Ragnarsson, einn ástsælasti
leikstjóri þjóðarinnar og leikskáld
sem einmitt skrifaði leikritið
„Saumastofuna", verk sem hefur
verið konum hugleikið um áratuga-
skeið en þar eru þær hvattar til þess
að standa saman: Áfram stelpur!
Kjartani fmnst gott hjá konum að
láta til sín taka og jákvætt að þær
skuli standa saman. „Ég ætla samt
ekki í kynskiptiaðgerð til að sækja
um starf."
Balti, Viðar og Hilmar orðaðir
við stólinn
Hilmar Jónssson er ungur mað-
ur sem hefur þótt koma með ferska
strauma inn í íslenskt leikhús bæði
sem leikstjóri og sem leikhússtjóri
hjá Hafnarfjarðarleikhúsinu. Hilm-
ar segir ekkert útilokað, starfið sé
vissulega mjög áhugavert.
Viðar Eggertsson gerði góða hluti
sem leikhússtjóri á Akureyri og hef-
ur alla tíð verið framsækinn leikhús-
maður. Hann segir ýmsa hafa kom-
ið að máli við sig en finnst ekki við
hæfi að ræða þessi mál fyrr en starf-
ið verður auglýst. „Hér er um starfs-
ráðningu að ræða en ekki framboð,"
sagði Viðar. Það er engum blöðum
um það að fletta að Baltasar Kor-
mákur er einn fremsti leikstjóri
landsins og á fullt erindi í stól leik-
hússtjóra. Flest ef ekki allt sem sá
drengur snertir gengur upp. Að-
spurður sagðist Baltasar ekki leggja
það í vana sinn að taka matinn af
fólki á meðan það er að borða.
Hagfræðingur Þjóðleikhús-
stjóri
Formaður bygginganefndar
Þjóðleikhússins var Guðlaugur Rós-
inkranz, hagfræðingur og rektor við
Samvinnuskólann á Bifröst. Guð-
laugur var auk þess formaður Nor-
ræna félagsins á árunum 1945-50 og
hafði staðið að uppsetningu leik-
sýninga á íslandi í norrænu sam-
starfi. Þegar kom að ráðningu Þjóð-
leikhússtjóra sóttist Guðlaugur eftir
starfinu og var ráðinn af þáverandi
menntamálaráðherra Eysteini Jóns-
syni enda hafði Guðlaugur staðið
rösklega að uppbyggingu hússins.
Ráðningin var umdeild meðal leik-
ara og menningarelítunnar sem
„Ég ætla ekki í neina
kynskiptiaðgerð til að
sækja um starf."
sakaði menntamálaráðherra um
spillingu, en Guðlaugur var ekki
einungis framsóknarmaður og rekt-
or á Bifröst heldur var hann einnig
næsti nágranni menntamálaráð-
herra á Asvallagötunni og náinn
vinur hans.
Guðlaugur var tiltölulega fljótur
að lægja öldurnar og sýndi fljótt að
hann var fullfær um að sinna starf-
inu og vann sér traust leikara og
annarra listamanna þrátt fýrir
margar umdeildar og djarfar
ákvarðanir. Hann stofnaði meðal
annars listdansflokk, óperu og leik-
listarskólann.
Nú rúmum 50 árum eftir ráðn-
ingu Guðlaugs hafa um fjórar millj-
ónir áhorfenda sótt sýningar leik-
hússins. Stofnunin hefur vaxið gríð-
arlega og eru fastir starfsmenn á
annað hundrað samkvæmt upplýs-
ingum á heimasíðu leiklrússins.
Starfsmannafjöldi fer allt upp í 500
manns þegar mest er í gangi. Leik-
Lucy gengurí
það heilaga
Charlie’s Angels og Ally McBeal stjarnan
Lucy Liu ætlar að ganga í það heilaga með
kærastanum sínum Zach Helm fljótlega. Leik-
konan hefur verið að skipuleggja væntanlegt
brúðkaup í laumi þar sem hún hefur ekki
áhuga á að breyta atburðinum í fjölmiðla-
veislu. Brúðkaupið á að vera lítið og lát-
laust og einungis nánustu vinum og ætt-
ingjum boðið í veisluna.
Forstjóri og fréttamaður á leið á toppinn
Klífa Hvannadals-
hnjúk í annað skipti
Sigurður G. Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri íslenska útvarpsfé-
lagsins, og Róbert Marshall, frétta-
maður á Stöð 2, ætla að klífa
Hvannadalshnjúk, hæsta tind lands-
ins. Stefna þeir félagarnir á toppinn
8. maí næstkomandi. Þetta mun
vera annað skiptið sem þeir klífa
hnjúkinn ásamt félögum sínum
Teiti Þorkelssyni, fyrrverandi
fréttamanni á Stöð 2, Friðriki Erni
Hjaltested ljósmyndara og fleiri
góðum mönnum. Sami hóp-
ur hljóp upp hlíðar
Kilimanjaro í kjölfarið á
síðustu ferð á Hvanna-
dalshnjúk. „Nei við er-
um ekld á leið á Ever-
est, við erum að undir-
búa ferð á hæsta tind
Ameríku, Acoacagua, í
janúar á næsta ári það er
6.900 metra klifur," sagði Ró
bert Marshall.
Lucy Liu Hefurskipulagt
brúðkaup sitt i laumi.