Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1964, Blaðsíða 30

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1964, Blaðsíða 30
86 TlMARIT VFl 1964 Mynd 2: Jarðvatnsfræðilegt kort af svæðinu austan Búrfells. 1: Hraun; 2: Hæð jarðvatnsborðs í m yfir sjó út frá mælingum í borholum 29. ágúst 1964 og hæð á lindum i Rangárbotnum og við Bjarnalæk; 3: Lindir; 4: Borholur. Auk heitis þeirra stendur hæð jarðvatns í m yfir sjó eins og það var 29. ágúst 1964. Sleppt er stafnum fyrir heilu hundruðin. Figure 2: Geohydrological map of the area east of Búrfell. 1: Postglacial Lava flows; 2: Elevation of ground water table in meters above see level according to measurements in bore- holes August 29th 1964 and from the elevation of springs in Rangárbotnar and at Bjarnalækur; 3: Springs; 4: Boreholes. Be- sides the designation of the hole is also figure for the elevation of ground water table in meters above sea level August 29th 1964. Thc figuro for the hundreths is omitted. 4. Þéttingartilraun. Tilraun á þéttunareiginleikum jökulvatns var gerð í júlí og ágúst 1963 með því að dæla vatni úr Þjórsá ofan í eina af holunum, sem boruð var í Tungnaárhraunin 1962. Valin var holan DI-3, sem er á hægri bakka árinnar. Snið af hoiunni ásamt niðurstöðum þriggja lektarmæl- inga er á 3. mynd. Holan er boruð gegnum eitt hraun, millilag og aðeins niður í annað hraun. Millilagið var um 1 m að þykkt. Holan er í til- rauninni hugsuð sem lekaleið og það í opnara lagi og niðurstöður tilraunarinnar því dæmi um, hvernig lekaleiðir geta þétzt og hversu langan tíma það tekur. Tilraunin var framkvæmd á eftirfarandi hátt; 1. Gerð var venjuleg lektarmæling í holunni, lekt- armæling I. Strax að lokinni borun 1962 var einnig gerð lektarmæling á holunni og er niður- staða hennar á 3. mynd. 2. Dælt var í holuna í 320 klukkustundir við um það bil 0.5 kg/cm2 vatnsþrýsting á yfirborði. Dælingin var gerð á 17 dögum og eins samfellt og unnt var. Tekið var sýnishorn af vatninu, sem dælt var niður, venjulega þrisvar á dag, að morgni, um miðjan dag og að kvöldi. 3. Aftur gerð venjuleg lektarmæling, lektar- mæling II. 4. Dælt var enn í þrjá sólarhringa eða 63 klst. Á 5. mynd eru mælingarlínuritin fyrir lektar- mælingu I í vinstri hluta myndarinnar, en fyrir lektarmælingu II í hægri hluta, og á 3. mynd er niðurstaða þriggja lektarmælinga á holunni. Við samanburð á lektarmælingu I við 1962 sést að

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.