Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1964, Blaðsíða 37
TÍMARIT VFl 1964
93
í
er fergt með 2 metra þykku sandlagi 132 m
breiðu. Sjávarsandur, fluttur á prömmum, er
notaður til þessa. Síðan koma lög af sandi og
grjóti á víxl sbr. 4. mynd. Loks er steinmöttull
niður í — 6.0 m. Sig hefur verið mest um 1,0
metri. Þá er kerjum 5 X10 x 15 m sökkt á þessa
undirstöðu og brimveggur steyptur ofan á þau.
Kobe.
Eins og víðar í Japan er mjög landþröngt í
Kobe. Athafnasvæði við höfnina eru þar, eins og
víðar, fengin með uppfyllingu. Hins vegar
þrengja fjöll mjög að byggðinni landmegin. Til
þess að ráða bót á hvorutveggja, skortinum á at-
hafnasvæði við höfnina og góðum landsvæðum
undir íbúðarhús, jafnframt því sem skortur var
á fyllingarefni, ákváðu Kobemenn að moka einu
f jallinu í höfnina til þess að fá athafnasvæði þar
og rúm undir íbúðarhús, þar sem fjallið var.
(5500 íbúðir).
Sakir þéttbýlis og umferðarþunga á götum
borgarinnar var gripið til þess ráðs að flytja
fyllingarefnið að mestu á færiböndum í göng-
um undir borginni ofan úr fjallinu. Göngin
verða að loknum framkvæmdum notuð sem ræsi
fyrir skolp frá nýju íbúðahverfunum.
Frá því á árinu 1961 hefur 3.7 km langt band
verið í notkun. Breidd 1,2 m, hraði 150 m/mín, af-
köst 700 m3/klst eða 3 millj. m3/ár. Risasköfur
(bulldozers) og jarðýtur mala fjallið í lóðrétta
ganga niður á færibandið.
Sjávarendi færibandanna rís 20 m yfir jarð-
aryfirborð, og er efninu þar safnað á haug, en
ekið úr haugnum á vöruflutningabifreiðum.
Undirstaðan er unnin þannig: 5 m leirlag er fjar-
lægt, en þunnt grjótlag sett undir fyllingarefnið.
Maya Piers. Til þess að mæta ört vaxandi
hafnarviðskiptum í Kobe, var hafizt handa árið
1959 við að byggja nýja hafnargarða. Við þessa
nýju garða verður rúm fyrir 10 skip, sem rista
10 m og 8 skip, sem rista 8 m. Þrem fjórðu
verksins á að vera lokið fyrir árslok 1965.
Megindrættina í þessum hafnargörðum má
sjá á 6. mynd. Einn aðalvandinn við bygg-
ingu garðanna er hin veika undarstaða. 7 m
þykkt leirlag er fjarlægt og 3 m þykkt lag af
sandi kemur í þess stað. Garðurinn sjálfur er
byggður þannig: Stálsívalningum með 15.5 metra
þvermáli er sökkt í röð á sandfyllinguna, en bog-
bilum lokað með hinum venjulegu stálþiljum.
Sívalningarnir eru fylltir sandi. Fjóra til fimm
daga tekur að ganga frá hverjum sívalningi, og
er þá meðtalinn tíminn, sem fer í að fylla hann
sandi.
Til þess að bera svuntuna utan á garðinum og
taka við láréttum kröftum, eru reknar niður
5. mynd.
„Sandsúlur" reknar niður undir brimbrjótinn í Nagoya.