Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1964, Blaðsíða 34
90
TlMARIT VFl 1964
vötn eins og reynslan frá Hvjtárvatni, Leginum,
Langasjó og fleiri vötnum sannar, en vatnið í
þeim er alls staðar mjólkurhvítt af svífandi leir.
Magnið af mélu og leir í sýnishornum af vatn-
inu, sem dælt var niður, virðist svipað og geng-
ur og gerist á sumrin í Þjórsá, en sandur er senni-
lega meira upphrærður en sýnishornin gefa til
kynna. Væntanlega er orsök þess sú, að dælan
dregur inn vatnið undir kröppu horni miðao við
straumstefnu og nær því ekki nema í litlum mæli
að breyta stefnu upphrærðs sands úr straum-
stefnunni inn í stefnu sogbarkans.
Ef unnt á að vera að segja eitthvað fyrir um
þéttunareiginleika aurvatns á öðrum stöðum en
i Þjórsá við Búrfell, er nauðsynlegt að þekkja
magn og eðli aurburðar þar. Eitt af verkefnum
í virkjanarannsóknum er einmitt rannsókn á aur-
burði helztu virkjanlegra vatna á landinu og
hafa sýnishorn verið tekin öðru hverju allt frá
því að vatnamælingar tóku til starfa hjá raf-
orkumálastjóra. Á síðustu árum hefur þessi
starfsemi þó verið stóraukin og teknir í notkun
mililu fullkomnari sýnishornatakar. Samtímis
var hafin fjölbreyttari úrvinnsla úr cýnishorn-
unum, er aðallega felst í greiningu á kornastærð
aursins í öllum sýnishornum. Hingað til hefur
aðaláherzla verið lögð á sýnishornatöku úr
Þjórsá, Hvítá í Árnessýslu og Jökulsá á Fjöll-
um. Niðurstaða þessara rannsókna, en sýnishorn
hafa aðallega verið tekin á sumrum, er að al-
gengasti aurburður við Urriðafoss í Þjórsá er
um 300 mg/1, í Hvítá hjá Iðu 100 mg/1 og Jök-
ulsá á Fjöllum við Grímsstaði um 1200 mg/1.
Af þessu er venjulega um -l/j—% svifaur en
Ya—V-2 upphrærður sandur. Af þessu má álykta,
að aurburður Hvítár sé allmiklu seinvirkari til
þéttingar en Þjórsár, en Jökulsár á Fjöllum aftur
á rnóti þó nokkuð fljótvirkari.
TAFLA IV
Dælt á dag Pumped per day Magn aurs Quantiíy of sediments Kornastærðarflokkun aurs1) Grain size groups of sediments • uvó \ n;
Dagsetn. Date klukku- stundir hours lítrar liters ■ ' 1/mín. l/'min. mg/1 parts million per kg/'dag kg/day sandur sand kg 0.062 méla silt kg 0.062 0.002 leir clay kg 0.002
12.7. 12.35 216.535 287,0 430 93 5 53 35
13.7. 15.40 237.670 252,0 349 83 8 41 34
16.7. 24.15 975.280 670.0 234 270 27 132 111
17.7. 23.50 384.300 268.0 265 102 12 56 34
18.7. 23.15 337.500 242.0 247 83 18 40 25
19.7. 23.50 350.700 245.0 265 93 18 47 28
20.7. 23.25 308.800 220.0 194 60 8 34 18
21,7. 10.30 125.200 199.0 258 32 3 22 7
24.7. 23.45 196.200 138.0 164 32 2 17 13
25.7. 23.00 196.500 142.0 109 21 1 11 9
26.7. 24.00 143.100 99.5 110 16 2 9 5
27.7. 22.35 99.850 73.5 179 18 2 11 5
28.7. 13.40 47.850 53.3 298 14 3 8 3
29.7. 21.10 18.760 14.8 308 5 1 3 1
30.7. 24.00 8.200 5.7 1447 26 12 11 3
31.7. 9.15 4.084 7,2 414 2 — 1 1
1.8. 0.10 127 12.7 531 — — . —
Samtals 319.55 3650.656 950 122 496 332
Total
Meðaltal % % %
Average 306 13,6 55,0 31,4
') Mörk kornastærðarflokkanna eru I mm
The limits between grain size groups are mm