Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1964, Side 39
TÍMARIT VFl 1964
95
7. mynd. Maya piers. Stálrörum sökkt.
eru um 40% þeirrar vegalengdar rafvædd.
Fyrsta flokks járnbrautavagnar í Japan eru
hinum beztu á Vesturlöndum engu síðri. Þar eru
hreyfanlegir hægindastólar og símasamband við
umheiminn úr hverju sæti. Snotrar stúlkur ganga
um beina. Dyr eru sjálfvirkar. Stundvísi er að-
dáunarverð.
Ég skoðaði sérstaklega nýja brautarlögn, sem
unnið er að milli tveggja stærstu borganna, Tokyo
og Osaka. Brautin er 515 km löng. Styttist þann-
ig leiðin milli borganna um 41 km. Á þessari
leið eru 3.100 brýr og 640 jarðgöng. Samtals eru
brýrnar 44 km að lengd, en jarðgöngin 65 km.
Teikning U
8. mynd. Brimbrjótur nr. 5. Þverskurður 1:200.
Lengsta brúin er 1,2 km, og lengstu jarðgöngin
(í Tanna) eru 7,9 km. Samsíða hinum nýju jarð-
göngum í Tanna liggja önnur eldri. Það tók 16
ár að leggja þau. Áætlað er að 4 ár taki að
byggja hin nýrri.
Á þessari braut eiga að aka þrenns konar lest-
ir: hraðlestir með 170 km meðalhraða á klst.,
hæggengari hraðlestir með 130 km hraða á klst.
og flutningalestir.
Nokkrir hlutar leiðarinnar voru fullgerðir í
vor. Einn þeirra var notaður til þess að prófa
reynslulest, sem farið getur með allt að 250 km
hraða á klst. Mér gafst kostur á að fara eina
reynsluferð með þessari lest. Þegar hún fór hrað-
Brimbrjótur nr. 5. Forspenntu steinsteyptu röri sökkt.
10. mynd.
Ný braut er í byg-gingu milli Tokya og Osaka. Hrað-
skrciðasta lest í heimi mun aka eftir henni.