Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2004, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2004, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 15. MAÍ2004 Fréttir DV Gunga og drusla Steingrímur J. Sigfússon fór mikinn í ræðupúlti á Al- þingi í dag. Davxð Oddsson var ekki viðstaddur umræð- urnar og fór það fyrir brjóstið á Steingrími sem krafði hann um svör. „Svo er frískur maðurinn á vappi hérna í kringum salinn áðan," sagði Steingrímur. „Hann getur ekki haft nein lögleg forföll. Ég hlýt að líta svo á að hann þori ekki. Hann þori ekki að koma hér og eiga orðastað við mig. Eg hlýt að líta svo á og það skal svo standa - að Davíð Oddsson sé slík gunga og drusla að hann þori ekki að koma hér og eiga orðastað við mig.“ DavíðerAhab kafteinn Jóhann Ársælsson, þing- maður Samfylkingarinnar, líkti, í umræðum á þingi í gær, Davíð Oddssyni for- sætisráðherra við Kaftein Ahab í skáldsögunni um Moby Dick. Sagan fjallar um skipstjóra sem ædaði að drepa hvítan hval, sagði Jóhann. Hvalurinn slapp eftir að hafa bitið annan fótinn af skipstjóranum. Eftir það sigldi skipstjórinn og pískaði áhöfn sína áfram um öll heimsins höf í leit að hvalnum. Endirinn varð sá, rifjaði Jóhann upp, að skip og skipshöfn týnd- ust í haflð. Málsmeðferð fjölmiðlafrumvarpsins ber svip af þessu, sagði Jóhann. FI Meirihlutinn er hræddur viðDV „Það er augljóst að stjórnarmeirihlutinn er hræddur við DV. Það sé eitthvað sem þurfl að stöðva,“ sagði Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslyndra, í langri ræðu um fjölmiðlafrumvarpið á Alþingi í gær.Magnús Þór ræddi þá fullyrðingu Bjarna Benediktssonar, formanns allsherjarnefndar þingsins, að í fjölmiðlamálum væri „vá“ fyrir dyrum. TaJdi Magnús að af ummælum stjórnarliða mætti ráða að váin væri DV. Krafði hann Bjarna svara um hver þessi vá væri og einnig bað hann Arnbjörgu Sveinsdóttur skýringa á ummælum um að frumvarpið væri einskær tillitsemi við starfsfólk Norðurljósa. Stríðsástand milli foi Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, gat ekki yfirgefið landið vegna óvissu um afgreiðslu fjölmiðlafrumvarpsins og hunsaði brúðkaupsboð Danadrottningar. Hall- dór Blöndal, forseti Alþingis, segir skýringar Ólafs Ragnars á fjarverunni fáránleg- ar og segir forsetann ekki hafa heimild til að neita að skrifa undir lög. Halldór Ás- grímsson utanríkisráðherra segir Ólaf hafa heimildina en áttar sig ekki á skýring- um forsetans á heimverunni. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, sat heima á afmælisdaginn sinn og var ekki með eiginkonunni Dorrit á eins árs brúðkaupsafmælinu. Ástæðan: Hann gat ekki yfirgefið landið vegna óvissu um afgreiðslu fjölmiðlafrumvarpsins á Alþingi. Hann afþakkaði því boð sem hann hafði þegið frá Danadrotmingu um að vera viðstaddur brúðkaup Friðriks prins og Mary Donald- son. Frá skrifstofu forseta fengust þær upplýsingar að forseflnn hefði sinnt venjubundnum embættisstörfum í gær án þess að nánar væri farið út í þá sálma. Hann sótti síðan opnun- arhátíð Listahátíðar. Fáránlegar skýringar forseta DV hefur greint frá því að forset- inn íhugi alvarlega að vísa fjöl- miðlalögunum til þjóðaratkvæðis. „Mér finnst alveg fráleitt að forseti láti sér detta í hug að undirrita ekki lögin, honum ber embættisleg skylda til þess," segir Halldór Blön- dal, forseti Alþingis. „Mér finnst það fáránleg hugmynd. Mér finnst skýring hans á veru sinni hér á landi ekki gild og yfirlýsing hans f um það fáránleg. Hann var búinn að þiggja boð dönsku konungs- fjölskyldunnar að vera viðstaddur brúðkaupið og hefði átt að vera þar.“ i ^ Aðför að þingræðinu að ! % skrifa ekki undir „Það er ekkert að gerast _ á Alþingi sem krefst Gat ólafurRagnarGrimss°n ekkiyftrgefíölandiöuta finlmiðlafrurnvarp1 Davio5- landi," segir Halldór. „Alþingi er æðsta stofnun þjóðarinnar og ég núi ekki að forsetinn ætli að ganga gegn vilja þingsins. Það væri aðför að þingræðinu ef hann undirritar ekki lögin en ég trúi ekki öðru en að hann undirriti þau,“ segir forseti Alþingis. En hverjar verða aíleiðingar þess að hann undirriti ekki lögin ? „Það er mjög einfalt, trúnaðar- brestur milli Alþingis og forseta með afleiðingum sem enginn getur séð fyrir. Annars finnst mér erfitt að tala um þetta því í mínum huga hefur hann enga heimild til þess að neita að undirskrifa lög sem Alþingi hefur samþykkt eins og fremstu lögfræðingar íslands hafa rök- stutt." myndi gera það. Við í utanrfkisráðu- neytinu fréttum það ekki fyrr en í gærmorgun að hann myndi ekki mæta fyrir okkar hönd og þurftum að gera nýjar ráðstafanir. Það er ut- anrfldsráðuneytið sem sér um tengsl íslendinga við erlenda þjóðhöfð- ingja og Danir eru okkar vinaþjóð," segir Halldór. Um það hvort fjarvera Ólafs Ragnars sé móðgun við dönsku þjóðina segir Halldór: „Dan- ir eru ekki móðgunargjörn þjóð“. Þegar Halldór er spurður hvort honum finnist rétt að Dorrit Moussaieff forsetafrú sé fulltrúi ís- lands við athöfnina í Danmörku seg- ir hann: „Dorrit er ágætur fulltrúi en að mínu mati var eðlilegt að forset- inn væri þarna lflca." Forsetinn hefði átt að vera í Danmörku Halldór Ásgrímsson utanrflds- ráðherra er undrandi á því að forset- inn hafi ekki getað yfirgefið ísland vegna afgreiðslu mála á þinginu. „Ég var og er þeirrar skoðunar að forset- inn hefði átt að vera við brúðkaupið. Ég vissi ekki annað en að hann Forsetinn hefur neitunarvald Halldór segist ekki átta sig ekki á skýringum Olafs Ragnars á því hvers vegna hann hafi ákveðið að sitja heima. „Ég er mjög undrandi á skýringum forsetans að hann þurfi að vera hér á landi vegna um- ræðna á þingi. Það er ekkert að ger- ast á Alþingi sem krefst hans við- Stórstyrjöld hafin „Forsætisráðherra er greinilega að búa sig undir stórstyrjöld," segir Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar. „Orðbragð hans og óvirðing gagnvart Forseta ís- iands er með þvílíkum fádæmum að manni er orða vant. Það er öldungis fáheyrt að stjórnmálamenn f bar- áttu hafi dregið fjölskyldu manna sem þeir telja sig eiga óuppgerðar sakir við, hvað þá sjálfs forseta lýð- veldisins, með þessum ósæmilega hætti inn í umræður. Börn okkar eiga að vera friðhelg. Mér finnst að lýðræðið krefjist þess að umræða um fjölmiðlafrum- varpið á Alþingi og f samfélaginu fái að fara fram án þess að forsætisráð- herra mengi hana með þessum hætti sem er stétt stjórnmálamanna til vansa. Þetta sýnir hversu rök- þrota forsætisráðherra er enda er hann f enn eitt skiptið að berja fram lög sem Ifklegt er að hæstiréttur eigi eftir að rassskella hann með. Má ég minna forsætisráð- herra á að það er skammt síðan að hann sjálfur skrifaði undir ráðningu frænda síns í emb- ætti hæsta- réttardóm- ara og ég minnist þess ekki að hann hafi nefnt orð ið vanhæfi þá," segir Össur Skarphéð- insson. Davíð segir Ólaf Ragnar vanhæfan til að synja fjölmiðlalögum Davíð sakar Ólaf um að ganga erinda Baugs „Ef einhver er vanhæfur til að taka á þessu máli, þá er það Ólafur Ragnar Grímsson," sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra í gær í samtali við Rfldssjónvarpið. Hann fór hörðum orðum um ákvörðun Ólafs Ragnars að vera heima í stað þess að sækja konunglegt brúðkaup í Danmörku. „Það er alveg óskiljan- legt,“ sagði Davíð. „Ég trúi ekki að hann sé kailaður heim af einhverj- um mönnum út í bæ,“ sagði Davíð. „Hann talar ekki við neinn nema Dagblaðið, Baug og fýrrverandi kosningastjóra sinn, forstjóra Norð- urljósa." „Forsetinn getur ekki verið að ganga erinda eins auðhrings. Hann er forseti allrar þjóðarinnar. Það gefur auga leið.“ Davíð sagði alveg klárt að Ólafur Ragnar gæti ekki synjað því að und- irrita fjölmiðlalögin. Davíð rakti dæmi um að ráðherra gæti mælt Konunglegt brúðkaup í gær Dorrit var þar ein en Davið segist ekki trúa þvi að Úiafur forseti hafi verið kaitaður heim af einhverjum mönnum út i bæ." með því við þjóðhöfðingja að þeim yrði synjað, líkt og í nágrannalönd- unum. „Ef hin túlkunin er rétt að í þetta eina skipti sem þetta persónulega vald forsetans að geta synjað gildi, þá vakna allar vanhæfisreglur sem við búum við í þessu landi og ef ein- hver er vanhæfur til þess að taka á þessu máli, þá er það Ólafur Ragnar Grímsson. Forstjóri Norðurljósa er formaður stuðningsmannafélags Ólafs Ragnars Grímssonar. Það hef- ur komið fram í fjölmiðlum að fýrr- verandi forstjóri Norðurljósa hafi verið aðal fjárhagslegur stuðnings- maður forsetans. Það hefur komið fram að forsetinn bauð jafnan til kvöldverðar þegar Stöð 2 var að taka lán sem fyrirtæki úti í bæ hjá erlend- um lánastofnunum. Þá var veisla á Bessastöðum. Dóttir forsetans vinn- ur hjá Baugi þannig að ef einhver er algjörlega vanhæfur til slrkra hluta að synja þá er það forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson. Þannig að hvoru megin sem lögfræðitúlkunin liggur, þá er al- gjörlega ljóst að hann getur ekki synjað þessum lögum," sagði Davíð Oddsson. Tinna Ólafsdóttir Grímssonar vinnur hjá Baugi og segir Davið það vatda vanhæfi forseta. Dóttir forsetans

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.